Fréttablaðið - 30.03.2008, Page 81
SUNNUDAGUR 30. mars 2008 25
HANDBOLTI Topplið Hauka getur
aftur náð átta stiga forskoti á
Fram í N1-deild karla og nánast
eytt um leið vonum Valsmanna
um að verja Íslandsmeistaratitil-
inn sinn frá því í fyrra. Leikurinn
er klukkan 16 á Ásvöllum í
Hafnarfirði.
Valsmenn tryggðu sér titilinn á
Ásvöllum í fyrra en tapi þeir
leiknum í dag verða þeir níu
stigum á eftir Haukum þegar
aðeins tólf stig eru eftir í
pottinum og raunhæfar vonir á að
halda titlinum að engu orðnar.
Haukar hafa reyndar ekki náð
að vinna Valsmenn í tæpa sjö
mánuði eða síðan þeir unnu þá 23-
20 í fyrstu umferð á Hlíðarenda
14. september. Síðan þá hafa liðin
gert 22-22 jafntefli á Ásvöllum og
Valsmenn hafa unnið Hauka
tvisvar í Vodafone-höllinni, fyrst
23-22 í Eimskipsbikarnum og
síðan 32-27 í síðasta deildarleik
liðanna sem fram fór 1. febrúar
síðastliðinn.
Til þess að vinna Val þurfa
Haukar að finna leið framhjá
Ólafi Hauki Gíslasyni í markinu
sem hefur varið 52 skot frá þeim í
síðustu tveimur leikjum.
Tveir aðrir leikir eru í deildinni
í dag. Akureyri tekur á móti
Aftureldingu í KA-
húsinu klukkan 15
og Stjarnan fær
síðan nágranna
sína í HK í
heimsókn í
Mýrina klukkan
20. - óój
Topplið Hauka í N1-deildinni:
Ná þeir níu stiga
forskoti á Val?
DÝFINGAR Hið þrettán ára breska
dýfingarundur Tom Daley segist
ekki stefna á verðlaun á Ólympíu-
leikunum í Peking. Stefnan hjá
honum sé enn sett á að vinna til
verðlauna á ÓL í London 2012 og
Peking verði ferð inn á reynslu-
bankann.
Miklar væntingar eru gerðar til
Daleys og verðlaun ekki talin
fjarlægur möguleiki af sér-
fræðingum.
Daley varð nýlega Evrópu-
meistari í dýfingum af tíu metra
palli í flokki fullorðinna og er
þegar talinn á meðal bestu
dýfingamanna heims. - hbg
Breska dýfingarundrið:
Peking verður
reynsluferð
TOM DALEY Evrópumeistari í flokki full-
orðinna í dýfingum af tíu metra palli.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
SKÍÐI Dagný Linda Kristjánsdóttir
frá Akureyri og Björgvin Björg-
vinsson frá Dalvík tryggðu sér
bæði gull í svigi í gær á Skíðamóti
Íslands daginn eftir að þau höfðu
bæði unnið öruggan sigur í stór-
svigi.
Dagný hefur átt erfitt uppdrátt-
ar í vetur enda verið meira og
minna meidd og var það því mjög
sterkt hjá henni að vinna báðar
þessar greinar. Í stórsviginu varð
hin unga og efnilega Tinna Dag-
bjartsdóttir önnur en hún kemur
einnig frá Akureyri eins og systir
Dagnýjar, Katrín, sem varð þriðja.
Katrín gerði enn betur í gær og
varð þá í öðru sæti á eftir systur
sinni en Selma Benediktsdóttir úr
Ármanni í Reykjavík hreppti þá
bronsverðlaunin.
Björgvin Björgvinsson vann
báðar greinarnar með miklum
yfirburðum en hann var rúm-
lega þremur sekúndum á undan
Árna Þorvaldssyni úr Ármanni í
stórsviginu og varð síðan tæpum
þremur sekúndum á undan Gísla
Rafni Guðmundssyni úr Ármanni
í sviginu. Gísli Rafn varð í þriðja
sæti í stórsviginu en Akureyr-
ingurinn Stefán Jón Sigurgeirs-
son varð þriðji í sviginu í gær.
Sólveig G. Guðmundsdóttir frá
Ísafirði varð Íslandsmeistari í
göngu með frjálsri aðferð en
gengnir voru 5 km. Stella Hjalta-
dóttir varð önnur en Silja Rán
Guðmundsdóttir þriðja. Þær
koma báðar frá Ísafirði líkt og
Sólveig. Stella sigraði í 5 km
hefðbundinni göngu í fyrradag.
Sævar Birgisson frá Sauðár-
króki varð Íslandsmeistari í göngu
með frjálsri aðferð en hann var
rúmum þremur sekúndum á undan
Andra Steindórssyni frá Akureyri.
Í þriðja sæti varð síðan Birkir Þór
Stefánsson af Ströndum. Andri
sigraði í 15 km hefðbundinni
göngu í fyrradag en Sævar hafði
unnið sprettgönguna á fyrsta degi.
- óój
Dagný Linda Kristjánsdóttir og Björgvin Björgvinsson á Skíðamóti Íslands í gær:
Bæði með gull tvo daga í röð
BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON Tvö gull.
FRÉTTBLAÐIÐ/GUÐMUNDUR
Á FULLRI FERÐ Dagný
Linda Kristjánsdóttir í
sigurferð sinni í stórsvigi.
ÍSHOKKÍ Íslenska kvennalandsliðið
vann 3-0 sigur á Eistlandi í
lokaleik sínum í 4. deild heims-
meistarakeppninnar og endaði
því með fullt hús og markatöluna
30-5 úr fimm leikjum sínum.
Ísland vann sér þar með sæti í
3. deild í fyrsta sinn en þetta var í
þriðja sinn sem kvennalandsliðið
tók þátt í HM. Birna Baldurs-
dóttir, Steinunn Sigurgeirsdóttir
og Hanna Heimisdóttir skoruðu
mörkin í lokaleiknum en Sólveig
Smáradóttir var valin maður
leiksins.
Varnarmaðurinn Anna Sonja
Ágústsdóttir var valin besti
leikmaður Íslands á mótinu en
hún var jafnframt sókndjarfasti
varnarmaður keppninnar. -óój
Kvennalandsliðið í íshokkí:
Fengu fullt hús
GAMAN Það var mikil stemning í
íslenska liðinu í Rúmeníu.
FRÉTTABLAÐIÐ/MARGRÉT
LOKAR
MARK-
INU
Ólafur
Haukur Gíslason
hefur varið 26 skot
að meðaltali í síðustu
tveimur sigurleikjum Vals á
Haukum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON