Fréttablaðið - 30.03.2008, Side 86

Fréttablaðið - 30.03.2008, Side 86
30 30. mars 2008 SUNNUDAGUR HVAÐ SEGIR MAMMA? Hvað er að frétta? Ég var að koma frá Túnis og er að fara að frumsýna leikritið Mammamamma í Hafnarfjarðarleikhúsinu 11. apríl. Augnlitur: Blár. Starf: Leikkona og leiðsögumaður. Fjölskylduhagir: Maður og barn. Hvaðan ertu? Að vestan og sunnan. Ertu hjátrúarfull? Stundum, þegar það hentar. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Fréttir á ruv.is í tölvunni og gott grín eins og Næturvaktin. Uppáhaldsmatur: Maturinn hans Þossa Kebab. Fallegasti staðurinn: Rúmið mitt í augnablikinu, en ferðalög eru lífsnauðsynleg! iPod eða geislaspilari: Hvorugt. Hvað er skemmtilegast? Að skellihlæja. Hvað er leiðinlegast? Kvíði. Helsti veikleiki: Freknur. Helsti kostur: Freknur. Helsta afrek: Dóttir mín og ferðalögin. Mestu vonbrigðin: Ég er of ung til þess að eiga stór vonbrigði. Hver er draumurinn? Hann er stórskemmtilegur og inniheldur vini mína og fjölskyldu. Hver er fyndnastur/fyndnust? María Þórsdóttir. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Skoðanaleysi. Hvað er mikilvægast? Bros og b-in þrjú. HIN HLIÐIN MAGNEA BJÖRK VALDIMARSDÓTTIR LEIKKONA Hjátrúarfull eftir hentugleika „Dylan í stuði á tónleikum er betri en gott kynlíf,“ segir Sigurjón Þór Friðþjófsson, sem er einn fjölda Íslendinga sem hefur tryggt sér miða á tónleika Bob Dylan í Egils- höll í maí. Er það ekki í frásögur færandi nema að þetta verða 39. tónleikarnir sem Sigurjón sér með goðinu sínu. „Ég sé hann eiginlega á hverju ári og fer örugglega aftur í júní í Evrópu, annaðhvort á Ítalíu eða í Tékklandi,“ segir Sigurjón, sem sá Dylan síðast í Amsterdam í fyrra. Honum finnst þessi mikli Dylan- áhugi ekkert tiltökumál. „Það telst ekki merkilegt í þeim félagsskap sem ég þekki úti í löndum. Það eru margir sem eru búnir að sjá hann tvö hundruð og eitthvað sinnum en ég held að 38 sé alveg nóg.“ Sigurjón barði Dylan fyrst augum á tónleikum á Wembley Arena 1987. „Það er ekki hægt að lýsa því. Blóð flæddi aftur til heil- ans strax við fyrstu tónana,“ segir hann um upplifunina og útskýrir að engir tónleikar með honum séu eins. „Á tímabili var það blanda af kvíða og tilhlökkun að sjá hann því maður vissi ekki hvaða Dylan kæmi fram enda er hann svo „spontant“ tónlistarmaður. Ég hef oft sagt að maður hafi ekki séð hann á tónleikum fyrr en maður sjái hann nokkrum sinnum í röð.“ Sigurjón var vitaskuld á meðal gesta í Laugardalshöll 1990 þegar Dylan spilaði þar. Var hann sáttur við sinn mann þrátt fyrir að ein- hverjir séu ekki á sama máli. „Þeir mega alveg vera það. Mér fannst mjög gaman en ég var ekki ánægð- ur með hljóminn í Höllinni. Ég var að vona að Dylan kæmi ekki aftur fyrr en nýja tónlistarhöllin væri tilbúin. Ég hef ekki farið á tónleika í Egilshöll en af lýsingunum að dæma er hljómurinn það helsta sem þarf að hafa áhyggjur af.“ Hann segist hafa heillast af Dylan um leið og hann heyrði hann í fyrsta sinn. „Sumir fíla hann ekki strax og þurfa að venjast honum en þetta „klikkaði“ alveg um leið hjá mér. Sumir kvarta yfir röddinni en hún er það fyrsta sem ég féll fyrir. Mér finnst hann alveg stórkostleg- ur söngvari og hann hefur haft gríðarleg áhrif sem slíkur. Megas hefði aldrei byrjað að syngja án þess að hafa hann sem fyrirmynd, en ég vil taka það fram að ég er mikill Megasar-aðdáandi.“ Þrátt fyrir að sjá Dylan bráðum í fertugasta skiptið ætlar Sigurjón ekkert að slaka á klónni. „Það er of seint að fara að hætta þessu núna. Ég hlusta samt ekki eins mikið á hann og ég gerði áður fyrr. Það var meðvituð ákvörðun sem ég tók vegna þess að mér fannst þetta verið komið út í öfgar. Það verður að hafa þetta heilbrigt.“ freyr@frettabladid.is SIGURJÓN ÞÓR FRIÐÞJÓFSSON: 38 BOB DYLAN-TÓNLEIKAR AÐ BAKI Dylan betri en gott kynlíf SIGURJÓN ÞÓR FRIÐÞJÓFSSON Sigurjón ætlar að sjá goðið sitt Bob Dylan í 39. sinn í Egilshöll 26. maí. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Þetta er bara ótrúlega skemmti- legt og ég er auðvit- að eins og allar mömmur myndu vera, mjög stolt. Svo á ég von á því að heyra einhvern tímann mömmu-þakk- arræðuna – „I want to thank my mother“ – þegar hún tekur á móti næstu verðlaunum.“ Hafdís Vilhjálmsdóttir, móðir kvikmynda- leikstjórans Veru Sölvadóttur, sem hlaut á dögunum verðlaun sem Bjartasta von Skandinavíu. Sýningaréttur á sjónvarpsþátta- röðinni Nonni og Manni er ekki til á Íslandi. RÚV keypti hann á sínum tíma af þýsku framleiðslu- fyrirtæki sem nú er farið á haus- inn og ekki liggur fyrir hvaða fyr- irtæki ræður yfir honum núna. „Ef við vildum endursýna Nonna og Manna yrðum við að kaupa sýn- ingarréttinn aftur,“ segir Þórhall- ur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV. Nonni og Manni tilheyra því ekki gullkistu Ríkisútvarpsins sem var opnuð fyrir skömmu. Aðstandendur Nonnahúss á Akureyri hafa í mörg ár barist fyrir því að fá þættina endursýnda í íslensku sjónvarp. Bent hefur verið á að þættirnir hafi mikið kynningargildi fyrir rithöfundinn sjálfan og safnið. „Margir af þeim erlendu ferðamönnum sem koma hingað láta þess getið í gesta- bókinni að þættirnir hafi kveikt áhuga á Nonna,“ segir Brynhildur Pétursdóttir, safnstjóri Nonna- hússins. „Ég held að ég verði að taka þetta alvarlega og beita mér fyrir þessu, að fá Nonna og Manna aftur heim,“ segir Ágúst Guðmundsson sem leikstýrði þáttunum um bræð- urna. Ágúst reyndi sjálfur í þrjú ár að ná sambandi við þýska fram- leiðslufyrirtækið sem á sýningar- réttinn. Leikstjórinn vann þá fyrir tónleikahaldarann Samúel Kristj- ánsson sem vill gefa þættina út á DVD. Samúel staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið en sagði enn um langan veg að fara. „Við erum samt að vonast til þess það fari að hylla undir lokin á leitinni. Þessir þættir eiga auðvitað að vera til fyrir okkur Íslendinga.“ - fgg Sýningarréttur Nonna og Manna týndur BARA TIL Á ÞÝSKU Þættirnir um Jón Sveinsson eru bara til á þýskum DVD og hafa verið sýndir í hollenska sjónvarpinu. Nú styttist í að leikritið Kommúnan, sem hefur gengið fyrir fullu húsi í Borgaleikhúsinu undanfarinn mánuð, verði sýnt í Mexíkó. Alls verða sýningarnar sex talsins, þrjár á stórri hátíð í Mexíkó borg og þrjár í Guatalajara, heimaborg Gaels Garcia Bernal sem fer með eitt aðalhlutverkanna. „Við förum út sjöunda apríl. Þá setur maður upp sólgleraugun og fer í sandalana,“ segir Sara Dögg Ásgeirsdóttir sem leikur eiginkonu Rúnars Freys Gíslasonar í sýningunni. „Maður á víst að hafa allan varann á og taka því rólega fyrstu dagana þarna úti. Það er bæði svo heitt og svo er þetta svo hátt uppi. Ég held að maður verði líka svolítið að passa sig því ég hef heyrt talað um „Montesuma´s Revenge“. Það var víst farið frekar illa með einn af síðustu höfðingj unum þarna og hann á að hafa lagt bölvun yfir landið. Ef þú færð í magann þegar þú kemur þangað þá er það „Montesuma´s Revenge“. Ætli maður verði ekki að taka með sér vætti frá Íslandi,“ segir Sara Dögg. Þetta verður í þriðja sinn sem Sara kemur til Mexíkó en síðast kom hún þangað fyrir tólf árum. „En ég hef aldrei komið til Mexíkóborgar eða Guatalajara þannig að það verður skemmtilegt að prófa það. Svo er gott að hafa einn innfæddan með sem getur sagt manni hvert maður á að fara.“ Hún segist ekki vita hvernig hópurinn ætli að eyða frítíma sínum þessar tvær vikur sem dvölin stendur yfir. „Ég hef engar áhyggjur af að okkur eigi eftir að leiðast enda er þessi hópur af fólki heil skemmtinefnd. Ég hef miklu meiri áhyggjur af Montesuma´s Revenge.“ - fb Sara óttast bölvun í Mexíkó SARA DÖGG ÁSGEIRSDÓTTIR Sara Dögg er á leiðinni til Mexíkó sjöunda apríl næst- komandi þar sem hún leikur í Kommúnunni. 01.01. 1979

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.