Fréttablaðið - 30.03.2008, Page 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Davíðs Þórs
Jónssonar
Í dag er sunnudagurinn 30.
mars, 90. dagur ársins.
6.52 13.32 20.14
6.34 13.17 20.02
með ánægju
í sumar
14 áfangastaðir
Iceland Express býður flug til 14 áfangastaða í sumar, vítt og breitt
um Evrópu. Bókaðu núna á www.icelandexpress.is
Barcelona Frankfurt Hahn Alicante Varsjá
Stokkhólmur London Gautaborg París
Eindhoven Billund Berlín
Basel Kaupmannahöfn Friedrichshafen
Bókaðu
núna!
50%
Börn:
Börn, 11 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum, fá helmingsafslátt af
verði fyrir skatta og aðrar greiðslur.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
5
5
0
8
Konan mín vann einu sinni á spít-ala. Af þeim sökum virðast því
lítil takmörk sett hve ítarlega sam-
ræðurnar við kvöldverðar borðið
geta fjallað um síðari stigu melting-
arkerfisins, iðrastarfsemi og lík-
amsvessa án þess að hún missi mat-
arlystina. Ég er við kvæmari. Sem
betur fer sýnir hún mér þó tillits-
semi í þessum efnum þegar ég fer
þess á leit við hana. Þessi viðkvæmni
háir mér stundum, einkum þegar
vinnu dagurinn hefur dregist á lang-
inn og ég freistast til að snæða
kvöldverðinn fyrir framan
sjónvarpið. Sjónvarpsauglýsing-
arnar sýna mér nefnilega alls ekki
sömu tillitssemi og betri helmingur-
inn.
ÞEGAR umræðan um það hvort
leyfa ætti áfengisauglýsingar eða
ekki blossaði upp hér um árið,
heyrði ég fullyrt að áfengis-
auglýsingar stuðluðu ekki að auk-
inni áfengisneyslu heldur færðu
þær fyrst og fremst neysluna á milli
tegunda. Þetta finnst mér sennilegt.
Þetta kemur nefnilega heim og
saman við kynni mín af drykkju-
skap. Umhverfið hafði lítil áhrif á
það hvort ég drakk – hins vegar gat
það haft úrslitaáhrif á það hvað ég
drakk. Ég held að þessu hljóti að
vera svipað farið með ýmsan annan
varning. Til dæmis dömubindi.
ÉG á erfitt með að ímynda mér að
annað hafi áhrif á sölu dömubinda
en fjöldi kvenna sem hefur á klæð-
um. Þetta ætti þó að mega staðfesta
með tölfræði, því fyrir nokkrum
árum dundi á þjóðinni slík bylgja
dömubindaauglýsinga að engu var
líkara en að þau væru orðin helsta
neysluvara lands manna. Þennan
varning hafði ég aldrei séð auglýst-
an fyrr, þeir sem á honum þurftu að
halda vissu einfaldlega hvar hann
var að finna. Einhver einn framleið-
andi reið hins vegar á vaðið og aug-
lýsti sitt vörumerki með þeim afleið-
ingum að allir aðrir þurftu að fylgja
í kjölfarið til að halda velli.
OG nú er komið að salernis-
hreinsiefnum. Það mætti hreinlega
halda að einhver hvimleiður melt-
ingarfaraldur hafi lagst á hálfa þjóð-
ina. Önnur hver auglýsing sýnir
manni ofan í viðbjóðslegt skíta-
klósett. Ekki gott áhorf yfir kjöt-
bollum í brúnni sósu!
ÉG sá í sjónvarpinu um daginn að
það er víst afar óhollt að borða
kvöldmat yfir sjónvarpinu. Það
hvarflar því að mér að Lýðheilsu-
stöð standi á bak við þessar auglýs-
ingar. Þær hafa nefnilega gert það
að verkum að ég er nánast stein-
hættur þeim ósið.
Salernishreinsi-
efnaauglýsinga-
fárið