Fréttablaðið - 11.04.2008, Side 1

Fréttablaðið - 11.04.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Katrín Rós Baldursdóttir líffræðingur er af mörgum sögð vera meistarakokkur. Ímyndunar- afl Katrínar í eldhúsinu er óendanlegt og hefur hún borið á borð hvern frábæran réttinn á fætur öðrum. Katrín Rós lumar á fjölmörgum uppskriftum að girnilegum kjúklingaréttum úr kjúklinga-bringum og eina uppskrift, sem hefur verið í miklu uppáhaldi, fékk hún hjá vinkonu sinni.„Úr kjúklingi er hæ t ð piparostur og þrír fjórðu úr pela af matreiðslurjóma. Í sósuna fer ein dós af rjómaostinum, hálfur piparostur og matreiðslurjóminn.„Aðferðin er fljótleg og góð en byrjað er á því að kljúfa bringurnar í tvennt þannig að tvær þunnar sneiðar verði úr hverri bringu. Bringurnar eru síðan penslaðar með pestóinu. Á aðra hlið bringnanna er sett ein teskeið af rjómaosti, sólþurrkaðir tómatar og ólífur. Þegar þetta er komið er bringunum rúllað upp ogþær festar sam Sólþurrkaðir tómatar, pestó og svartar ólífur Katrín Rós segir að kjúklinga-bringur sé hægt að matreiða á margvíslegan skemmtilegan hátt og gott sé að leyfa ímyndunaraflinu að ráða. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ SA ÁR KARTÖFLUNNARNýr uppskriftabæklingur er kominn út í tilefni af ári kartöflunnar en í honum má finna ýmsar útfærslur af kartöfluréttum. MATUR 2 FYRIR SÆLKERANAKavíar þykir vera einhver fínasti matur í heimi og á veitingastöðum víða um heim geta matgæð-ingar fundið kavíar á svimandi háu verði. MATUR 3 6.290 kr. 4ra rétta tilboðog nýr A la Carte · Léttreiktur lax með granateplum og wasabi sósu ·· Tom Yum súpa með grilluðum tígrisrækjum ·· Kryddlegin dádýralund með seljurótarsósu ·· Banana- og súkkulaðifrauð með vanillusósu · Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf! Hægt er að panta 4ra rétta seðilinn með sérvöldu víni með hverjum rétti: 9.680 kr. heilsa og lífsstíllFÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 Premium veiði og útivistarfatnaður frá fi nnska framleiðandanum Jahti Jakt. Sími: 512 5000 FÖSTUDAGUR 11. apríl 2008 — 98. tölublað — 8. árgangur KATRÍN RÓS BALDURSDÓTTIR Alls konar kjúklingur í miklu uppáhaldi matur Í MIÐJU BLAÐSINS Marín Magnús- dóttir Lætur ævin- týrin gerast. FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG FÖSTUDAGUR11. APRÍL 2008 FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS Maraþon frama- HANNES STEINDÓRSSON Selur eignir fræga fólksins NANNA KRISTÍN Ekki hætt að leika SIGTRYGGUR BALDURSSON Skrifar kvikmynda- handrit Marín Magnúsdóttir í Practical FÖSTUDAGUR VEÐRIÐ Í DAG Rockwood fellihýsin 2008 Komdu á Fossháls 5-9 og skoðaðu glæsileg Rockwood fellihýsi. Logi í golfið Logi Bergmann Eiðs- son gerir sjónvarps- þætti um íslenskt golf í sumar. FÓLK 54 DORRIT FORSETAFRÚ Með skófluna á lofti Tekur fyrstu skóflustungu að sundlaug Lilju Pálmadóttur og Steinunnar Jónsdóttur FÓLK 54 HEILSA OG LÍFSSTÍLL Útileikir, endurhæfing og listamenn í nýju ljósi Sérblað um heilsu og lífsstíl FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG. Í stöðugum vexti Tíu ár eru liðin frá stofnun Atlantsskipa. Haldið verður upp á það með pompi og prakt 16. maí næstkomandi. TÍMAMÓT 32 FASTEIGNAMARKAÐUR „Þetta er algjörlega úr takti við það sem greiningardeildir bankanna hafa verið að spá. Rökstuðningur Seðlabankans fyrir þessu verður að koma fram því annars er þetta ekkert annað en rakalaus dómsdagspá,“ segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala. Seðlabankinn spáir kollsteypu á fasteigna- markaði á næstu tveimur árum. Telur bankinn líkur á að húsnæðisverð lækki um þriðjung að raunvirði til ársins 2010. Rökstuðningur bankans er að lækkun ráðstöfunartekna, þrengingar á lánamörkuðum og aukið framboð íbúðarhúsnæðis leiði til þessara lækkana á húsnæði. Grétar segir spá Seðlabankans geta haft skaðleg og óþörf áhrif á hagi fólks. „Það bendir ekkert til þess að verð hér hrynji og séu einhverjir að spá því, til dæmis opinberar stofnanir, þá er lágmarkskrafa að rökstuðning- urinn sé gagnsær og skýr.“ Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningar- deildar Kaupþings, segir að spána verði að skoða í því ljósi að öll hagspá bankans sé svört. „Seðlabankinn ræður vöxtum á Íslandi og hefur töluvert mikið um það að segja hversu hörð lendingin verður. Yfirlýst stefna hans virðist ganga þvert á yfirlýsingar ráðamanna.“ Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningar- deildar Glitnis, segir ekki von á sömu þróun á fasteignamarkaði og víða erlendis þar sem hefur orðið mikil lækkun. „Hér er ekki mikil spákaupmennska og Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóðirnir eru að útvega fjármagn inn á markaðinn. Lánaframboðið á húsnæðismarkaði erlendis hefur hins vegar stöðvast að stórum hluta vegna þess að bankarnir lána ekki lengur.“ Gylfi Magnússon, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, segir eðlilegt að fasteignaverð lækki umtalsvert, miðað við þær aðstæður sem nú eru á mörkuðum og hafa áhrif á fasteignamarkaðinn. „Bankarnir hafa skrúfað fyrir lán, nánast að fullu, og það hefur vitanlega mikil áhrif á eftirspurnina á markaðnum.“ - mh / - shá / sjá síðu 4 Spá hruni á fasteignamarkaði Seðlabankinn spáir að fasteignaverð lækki um 30 prósent á tveimur árum. Seðlabankinn er að biðja um harða lendingu segir hagfræðingur. Órökstudd dómsdagsspá, segir formaður Félags fasteignasala. VIÐSKIPTI Stjórnendur stórs vogunar sjóðs hvöttu enskan hag- fræðiprófessor, Richard Portes, til að huga að mannorði sínu er hann væri að fjalla um íslenskt fjármálalíf. Portes hefur að undan- förnu fjallað ítarlega um íslenskt fjármálakerfi á erlendum vett- vangi og dregið upp jákvæðari mynd af stöðu mála hér og styrk bankanna en ýmsir aðrir. Portes hefur greint fjármálaeftirlitinu í Bretlandi og á Íslandi frá sam- skiptum sínum við stjórnendur vogunarsjóðsins. Þessi vogunarsjóður er einn þeirra fjögurra sem Sigurður Ein- arsson, starfandi stjórnarformað- ur Kaupþings, hefur sakað um að gera atlögu að Íslandi og íslensku fjármálakerfi. „Ég áttaði mig fljótt á því hvað væri á seyði og ákvað þá að hlusta vandlega og taka niður minnis- punkta,“ segir Portes. Hann bætir við að í samtalinu hafi verið dregin upp afar dökk mynd af stöðu mála hér á landi og mikið fjallað um vandræði íslenskra fjármálafyrir- tækja. „Þessi mál eru nú í eðlilegum farvegi, og ég hef fulla ástæðu til að halda að fjármálaeftirlitið hafi tekið þessar upplýsingar mínar alvarlega,“ segir hann. - bih / sjá síðu 6 Hvattur til að huga að mannorði sínu er hann fjallaði um íslenskt fjármálalíf: Fjármálaeftirliti gert viðvart BJART Á KÖFLUM Í dag verða norðaustan 3-10 m/s en hvassara úti við suðausturströndina. Bjart með köflum en stöku él á Norður- og Austurlandi. Hiti 0-7 stig, mildast sunnan til. VEÐUR 4 5 2 0 0 4 SAMFÉLAGSMÁL „Það er gríðarlegt vinnuálag á unglingum,“ segir Árni Jónsson, stjórnarmaður í SAMFÉS, sem hefur nýlega látið af störfum sem forstöðumaður í frístundamiðstöðinni Kamps. Segir hann að grunnskólanemar séu farnir að sinna störfum vaktstjóra og að haft hafi verið samband við vinnuveitendur og gert athugasemdir við það. Fréttablaðið hefur fréttaskýr- ingaumfjöllun um unglinga í dag. - jse / sjá síðu 16 Unglingar: Vinna mikið og lesa á ensku HEILSA Sítrónusýra og fosfórsýra sem notaðar eru sem rotvarnar- efni í íslenska drykki valda óbætanlegum skemmdum á glerungi tanna. Einkum er sítrónusýran mikill skaðvaldur en hún er meðal annars notuð í orkudrykki og bragðbætta vatnsdrykki. Þetta sýnir ný rannsókn útskriftar- nema Tannlæknadeildar Háskóla Íslands. - gun / sjá sérblað um heilsu og lífsstíl Glerungseyðing tanna: Sökudólgur fundinn HAFIST HANDA Á REYKJANESBRAUT Vegagerðin hófst handa við að bæta merkingar á Reykjanesbraut í gær. Settir verða fastir gátskildir milli akreina til að aðskilja akstursstefnur auk þess sem aðvörunarskiltum verður fjölgað. Samgönguyfirvöld hafa undan- farna daga legið undir harðri gagnrýni fyrir að merkingar hafi verið ófullnægjandi á þeim stað sem verið er að tvöfalda veginn og af því hafi hlotist mikil slysahætta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 2-0 fyrir Snæfell Grindavík lá öðru sinni fyrir Snæfelli er liðin mættust í Fjárhúsinu í gær. ÍÞRÓTTIR 46

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.