Fréttablaðið - 11.04.2008, Page 6
6 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
VIÐSKIPTI Enski hagfræðiprófessorinn Richard Portes
hefur greint fjármálaeftirlitinu í Bretlandi og á
Íslandi frá samskiptum við stjórnendur stórs
vogunarsjóðs í kjölfar umfjöllunar hans um íslenskt
fjármálakerfi. Í samtalinu var prófessorinn meðal
annars hvattur til að huga að mannorði sínu, þegar
hann væri að fjalla um Ísland og íslensku bankana.
Dr. Richard Portes, prófessor í hagfræði við
London Business School, skrifaði á haustdögum
skýrslu ásamt dr. Friðriki Má Baldurssyni fyrir
Viðskiptaráð Íslands um stöðu og framþróun íslenska
fjármálakerfisins. Hefur hann verið tíður viðmæl-
andi erlendra fjölmiðla um íslenskt fjármálalíf upp á
síðkastið og dregið upp aðra og jákvæðari mynd af
stöðu mála hér og styrk bankanna en ýmsir aðrir.
Segir Portes engan vafa á því að þessi staðreynd hafi
leitt til símtals frá stórum vogunarsjóði fyrir hálfum
mánuði.
„Ég áttaði mig fljótt á því hvað væri á seyði og
ákvað þá að hlusta vandlega og taka niður minnis-
punkta,“ segir Portes. Hann bætir við að í samtalinu
hafi verið dregin upp afar dökk mynd af stöðu mála
hér á landi og mikið fjallað um vandræði íslenskra
fjármálafyrirtækja. Um leið hafi hann verið hvattur
til að huga vel að mannorði sínu þegar hann væri að
fjalla opinberlega um þessi mál.
Portes segist þegar hafa verið staðráðinn í að
tilkynna réttum yfirvöldum um þessi samskipti, sem
og hann hafi gert. „Þessi mál eru nú í eðlilegum
farvegi, og ég hef fulla ástæðu til að halda að
fjármálaeftirlitið hafi tekið þessar upplýsingar mínar
alvarlega,“ segir hann.
Að sögn Portes er ljóst að fjölmargir erlendir
vogunarsjóðir hafi beint sjónum sínum að Íslandi og
fleiri löndum sem eigi við tímabundna erfiðleika að
etja, til dæmis Tyrkland og Ungverjaland. Frægt sé
dæmið frá Hong Kong árið 1998 þegar stjórnvöld þar
vörðust umfangsmikilli atlögu að fjármálakerfinu
með því að kaupa sjálf hlutabréf í mörgum félögum
með ærnum tilkostnaði. Til lengdar hafi það skilað
tilætluðum árangri og raunar hagnaði, þegar upp var
staðið.
„Raunar má segja að Ísland sé enn heppilegra fyrir
spákaupmenn af þessu tagi. Á Íslandi er bein tenging
milli þróunar hlutabréfa og krónunnar og því tvöfalt
tækifæri til skjótfengins gróða. Hátt vaxtastig er
aðlaðandi og tiltölulega auðvelt er að hafa bein áhrif
á hinn óskilvirka markað með skuldatryggingar, sem
aftur kemur íslensku bönkunum afar illa. Þess vegna
er alls ekki skrítið að stórir aðilar sjái sér hag í því að
takast á við aðstæður sem þessar,“ segir Portes.
bjorningi@markadurinn.is
Hvattur til að huga
að mannorði sínu
Enski hagfræðiprófessorinn Richard Portes sem fjallað hefur um íslenskt fjár-
málalíf fékk nýverið símtal frá stjórnendum stórs vogunarsjóðs.
RICHARD PORTES Hagfræðingurinn segist telja að fjármála eftirlit
Bretlands og Íslands hafi tekið athugasemdirnar alvarlega.
KERFISBUNDIN ÁRÁS AÐ BAKI?
Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður
Kaupþings, sagði að fjórir vogunarsjóðir í Lundúnum
hefðu staðið fyrir kerfisbundnum árásum á íslenskan
fjármálamarkað og íslensku bankana síðustu vikur og
mánuði. Tilgreindi hann sérstaklega Trafalgar Fund,
Landsdowne Fund, Ako Capital og Cheney Capital í því
sambandi.
Portes vill ekki skýra frá nafni vogunarsjóðsins að svo
stöddu, en staðfestir að hann sé einn þeirra fjögurra
sem stjórnarformaður Kaupþings hafi tilgreint. Fyrir
hálfum mánuði hafi stjórnendur hans haft samband
og hvatt sig til að gæta að orðspori sínu í umfjöllun
um Ísland og íslensku bankana. Segir Portes fulltrúa
vogunarsjóðsins hafa dregið upp mjög dökka mynd
af ástandi mála hér á landi og í kjölfarið tilkynnti próf-
essorinn atvikið til fjármálaeftirlitsins í Bretlandi og á
Íslandi. Þar er málið nú til rannsóknar.
Portes bætir því við að í síðustu viku hafi fulltrúar
fleiri vogunarsjóða haft samband við sig í þeim tilgangi
að fræðast um stöðuna í íslensku fjármálalífi. Á kvöld-
verðarfundi sem hann hafi sótt af því tilefni hafi komið
í ljós að allir sjóðirnir, nema einn, ættu stórra fjárhags-
legra hagsmuna að gæta hér á landi. Hins vegar virtist
sem það væri ekki lengur í formi skortstöðu, heldur
fjárfestinga til lengri tíma litið.
Munu pálmatré skjóta rótum á
Íslandi á okkar tímum?
Já 15,8%
Nei 84,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er umferðarmerkingum á
Reykjanesbraut ábótavant?
Segðu skoðun þína á visir.is
LÍKAMSÁRÁS „Honum líður hræði-
lega,“ segir Hrafnhildur Arnars-
dóttir, móðir nítján ára manns sem
viðbeinsbrotnaði í átökum við
dyravörð snemma á sunnudags-
morgun. Hafði manninum verið
meinaður aðgangur að Barnum,
veitingastað við Laugaveg 22. Var
hann ósáttur en vissi ekki fyrr en
dyravörður sneri hann harkalega
niður. Að sögn Hrafnhildar hafa
þau kært málið til lögreglu.
Agatha Ýr Gunnarsdóttir,
rekstrarstjóri Barsins, segir málið
í skoðun. Segir hún dyraverði ekki
hafa viljað hleypa manninum inn
vegna þess að hann hafi verið
ofurölvi. „Í staðinn fyrir að fara í
burtu eins og hann var beðinn um
var hann eitthvað að ráðast að
einum dyraverðinum.“
Hún segir þau hjá Barnum ekki
hafa heyrt frá lögreglu ennþá. „En
við erum með myndatökuvélar og
eigum þetta allt á upptöku.“ Hún
segir aldurstakmark að Barnum
vera tuttugu ár.
„Það er ekki rétt að hann hafi
verið ofurölvi,“ segir Hrafnhildur.
Hún hafi hitt hann um klukku-
stund eftir að hann kom á slya-
deildina og hún geti því vitnað um
ástand hans. „Hann er í skóla og er
að taka tvö stúdentspróf en getur
ekki skrifað.“ Þá geti hann ekki
legið út af eða sofið í rúmi. „Lög-
reglan segir þetta vera mjög
alvarlegt og tekið verði á þessu,“
segir Hrafnhildur. - ovd
Nítján ára karlmaður viðbeinsbrotnaði þegar hann var snúinn niður af dyraverði:
Viðbeinsbrotinn af dyraverði
BEINBROT Á slysadeild var maðurinn
settur í spelku sem hann þarf að vera í á
meðan brotið grær.
SKIPULAGSMÁL „Hræðsluáróður
hefur aldrei virkað vel,“ segir
Kormákur Geirharðsson
verslunar maður um þau skilaboð
Ólafs F. Magnús sonar borgar-
stjóra um að miðborg Reykjavík-
ur sé hættulegur staður. Í frétt-
um Stöðvar tvö í síðustu viku
sagði Ólafur vaxandi sóðaskap og
aukið ofbeldi í miðborginni. Var
þar haft eftir borgarstjóra að
miðborg Reykjavíkur væri bein-
línis hættuleg fólki sökum
drykkjuskapar og ofbeldis.
„Ég lít ekki á Reykjavík sem
hættulegan stað og mér finnst að
hann eigi að fara varlega í svona
mál,“ segir Kormákur, sem búið
hefur í miðborg Reykjavíkur í um
þrjátíu ár og stundað verslun og
veitingarekstur í um tíu ár. „Hins
vegar hefur miðborgin verið að
drabbast niður.“
Kormákur telur að borgarstjóri
verði að fara að reka borgina eins
og fyrirtæki en ekki pólitíska
stofnun og þá skipti jákvæð
ímynd miklu. „Ef það væru fleiri
lögreglumenn á götum borgar-
innar og þeir sýnilegri eins og
lofað var væru allir í friði.“
„Ég myndi ekki orða það sem
svo að miðbærinn sé hættulegur,“
segir Lísbet Sveinsdóttir, fata-
hönnuður hjá Elm á Laugavegi.
Hún kallar einnig eftir aukinni
löggæslu og segir ástandið „rosa-
legt“ vegna veggjakrots og
skemmdarverka. „Þetta eru
árásir á eignir fólks í miðborginni
vegna þess að það er ekkert eftir-
lit.“ - ovd
Verslunarmenn við Laugaveg kalla eftir aukinni löggæslu eins og lofað var:
Hræðsluáróður borgarstjóra
KORMÁKUR GEIRHARÐSSON Vill að
borgarstjóri reki borgina eins og fyrir-
tæki í stað pólitískrar stofnunar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
EFNAHAGSMÁL „Það er rétt hjá
Davíð að bankarnir njóta engrar
ríkisábyrgðar,“
segir Pétur
Blöndal,
formaður
efnahags- og
skattanefndar,
um þau orð
Davíðs Odds-
sonar seðla-
bankastjóra að
„meginverkefni
banka [sé] að bjarga sér sjálfir“.
„Ég vil undirstrika að íslenskir
bankar eru ekki á leið í ógöngur,
en erlendis þar sem það hefur
gerst hafa hluthafar tapað sínu fé
og ríkið eignast banka eða stóra
hluti í þeim. Hins vegar telja
menn að það sé hlutverk Seðla-
banka að halda viðskiptalífinu
gangandi og sjá til þess að alltaf
sé til gjaldeyrir.“ - sgj
Pétur Blöndal:
Bankarnir ekki
með ríkisábyrgð
PÉTUR BLÖNDAL
SVEITARSTJÓRNIR Þorleifur Gunn-
laugsson, borgarfulltrúi VG, vill að
borgin hætti við sölu á Fríkirkju-
vegi 11 til Björgólfs Thors
Björgófssonar.
„Hallargarðurinn og fasteignin
sem í honum stendur hefur
ómetanlegt menningarsögulegt
gildi fyrir Reykvíkinga alla. Þar
sem ljóst er að núverandi eigendur
telja breytingar á garðinum
mikilvægar til að nýting hússins
gagnist þeim ættu borgaryfirvöld
að beita sér fyrir því að salan gangi
til baka og borgin fái fullt forræði
yfir húsinu og garðinum öllum,“
sagði í tillögu Þorleifs sem
borgarráð frestaði í gær. - gar
VG um Fríkirkjuveg 11:
Borgin hætti
við sölu hússins
BANDARÍKIN, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti segir að David
Petraeus,
yfirmaður
herafla
bandaríkjanna í
Írak, fái „allan
þann tíma sem
hann þarf“ til
að meta hvort
óhætt sé að
kalla fleiri
bandaríska
hermenn frá Írak.
Bush skýrði í gær frá þeirri
ákvörðun sinni að fækkun í
herliði Bandaríkjamanna í Írak
yrði stöðvuð í júlí um óákveðinn
tíma. Á síðasta ári var bandarísk-
um hermönnum þar fjölgað um
30 þúsund, og hafa þeir síðan
verið yfir 160 þúsund, en á næstu
mánuðum verður þeim fækkað
niður í rúmlega 130 þúsund. - gb
Ekki frekari fækkun í Írak:
Petraeus fær
nægan tíma
GEORGE W. BUSH
KJÖRKASSINN