Fréttablaðið - 11.04.2008, Page 10
10 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
STJÓRNMÁL „Þessi vaxtahækkun er
makalaus og undrunarefni,“ segir
Guðni Ágústsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, en bankastjórn
Seðlabankans ákvað í gær að
hækka stýrivexti um 0,5 prósent –
í 15,5 prósent. Hvergi í ríkjum
með þróað efnahagskerfi eru
vextir jafn háir.
Guðni furðar sig á aðferðafræði
Seðlabankans og segir öðruvísi
farið að í öðrum ríkjum. Víðast
hvar séu stýri-
vextir undir
fimm prósent-
um. Hann segir
ástandið hafa
verið nógu erf-
itt fyrir. „Og nú
leyfir Seðla-
bankinn sér að
keyra vextina
upp. Til hvers?
Það hlýtur að vera til að dauðrota.
Ég held að þetta hafi engin áhrif á
verðbólguna en þetta mun dauð-
rota allt athafnalíf. Enginn ræður
við að taka lán á þessum vöxtum
og fjármál heimila og fyrirtækja
eru í miklu uppnámi. Ég óttast
afleiðingar sem verða gjaldþrot
og eignatap,“ segir Guðni.
Fátt hefur spurst af aðgerðum
stjórnvalda til að mæta þrenging-
um bankakerfisins. Guðni segir
málið vefjast fyrir ríkisstjórninni,
sem geri lítið annað en að tala. „Ég
sé engin úrræði verða að veru-
leika, hvorki styrkingu gjaldeyris-
forðans né annað. Ég vantreysti
forystu forsætisráðherra í efna-
hagsmálum og held að hann ráði
ekki við málið. Úrræðaleysið er
algjört.“
20. febrúar óskaði Guðni eftir
svörum Seðlabanka við sex spurn-
ingum um efnahagsmál. Hann
óskaði eftir því að svörin bærust í
síðasta lagi 20. mars en ekkert
bólar á þeim. „Ég ræddi þetta við
Davíð Oddsson seðlabankastjóra
og hann sagði að þessu yrði svarað
en það tæki tíma. Ég fer nú að
ókyrrast enda mikilvægt að fá
þessi svör sem fyrst.“
Þegar Þjóðhagsstofnun var lögð
niður á sínum tíma var svo búið
um hnútana að þingmenn áttu að
geta leitað til Seðlabankans með
efnahagsleg álitaefni. Guðni segir
að berist svar bankans seint og illa
verði þingið að grípa til úrræða
svo þingmenn, bæði í stjórn og
stjórnarandstöðu, geti aflað hald-
góðra upplýsinga um efnahags-
mál. Sér hann helst fyrir sér að
nefndasvið Alþingis verði styrkt.
bjorn@frettabladid.is
Óttast að
gjaldþrot fylgi
vaxtahækkun
Formaður Framsóknarflokksins telur að vaxta-
hækkun Seðlabankans slái ekki á verðbólgu. Á hinn
bóginn verði hún til að dauðrota athafnalíf. Hann
lýsir vantrausti á forsætisráðherra í efnahagsmálum.
GUÐNI ÁGÚSTSSON
SEÐLABANKI ÍSLANDS Stýrivextir voru hækkaðir upp í 15,5 prósent í gær. Guðni
Ágústsson segir hækkunina ekki vinna á verðbólgunni, líkt og henni er ætlað að
gera. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
SPURT UM ÁLIT SEÐLABANKANS
■ Hvaða áhrif telur Seðlabankinn
að breytingar á fjármálamörkuðum
hér heima fyrir og erlendis síðustu
vikur hafi á tekjuöflun ríkisins?
■ Hvaða áhrif telur Seðlabankinn
að nýloknir kjarasamningar hafi á
þróun efnahagslífsins og tekjuöflun
ríkisins?
■ Hvaða áhrif telur Seðlabankinn
að nýkynntar tillögur ríkisstjórnar-
innar til að liðka fyrir kjaramálum
hafi á þróun efnahagslífsins, ríkisút-
gjöld og tekjuöflun ríkisins?
■ Hvað telur Seðlabankinn mikið
svigrúm til frekari útgjaldaaukning-
ar hjá ríkissjóði í tengslum við þá
kjarasamninga sem ólokið er?
■ Hvort telur Seðlabankinn að
fjárlög ársins 2008 hafi haft jákvæð
eða neikvæð áhrif á það ójafnvægi
sem við búum við í efnahagsmálum
nú um stundir?
■ Telur Seðlabankinn að ríkisstjórn
Íslands hafi gengið nógu langt í þá
átt að draga úr þenslu í samfélag-
inu?
RV Unique örtrefjaræstikerfið
- hagkvæmt, vistvænt og mannvænt
Nánari upplýsingar
veita sölumenn og ráðgjafar RV
Bodil Fur,
sölumaður hjá
RV Unique í Danmörku
UniFlex II H Fiber ræstivagn
RV
U
N
IQ
U
E
02
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
RV
U
N
IQ
U
E
04
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Réttu tækin í þrifin
- háþrýstidælur, ryk- og vatnssugur frá 8.888 kr.
Nilfisk P160 1-15 B X-tra
Dæluþrýstingur: 160 bör
Vatnsmagn: 650 l/klst.
Nilfisk E140 2-9 X-tra
Dæluþrýstingur: 140 bör.
Vatnsmagn: 500 l/klst.
Nilfisk C100 4-5
Dæluþrýstingur: 100 bör.
Vatnsmagn: 320 l/klst.
Nilfisk Buddy 18
ryk- og vatnssuga
Loftflæði: 3600 l/mín.
Mótor: 1300W
15 l tankur
Nilfisk C120 2-6
Dæluþrýstingur: 120 bör.
Vatnsmagn: 520 l/klst.
20%
afslá
ttur
GERVIBRÚÐKAUP Á CHAMPS ELYSÉES
Umhverfisverndarsinnar úr Green-
peace-samtökunum draga dár að
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta og
Angelu Merkel Þýskalandskanslara
við bílasölu á Champs Elysées í París.
Gervibrúðkaup þeirra var sviðsett til
að mótmæla metnaðarleysi Evrópu-
sambandsins við að draga úr útblæstri
gróðurhúsalofttegunda. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUR Farþegum Strætó
hefur fjölgað um eina milljón á
ársgrundvelli. Er aukningin nán-
ast öll tilkomin vegna tilrauna-
verkefnisins „frítt í strætó“ sem
fór af stað í ágúst síðastliðnum og
tryggir námsmönnum á fram-
halds- og háskólastigi endurgjalds-
lausa notkun á almenningssam-
göngum.
Þetta kemur fram í nýrri úttekt
sem Strætó bs. og Viðskiptafræði-
stofnun Háskóla Íslands hafa gert
á þeim þáttum er snúa að notkun á
strætó samfara þessu verkefni. Í
niðurstöðum úttektarinnar kemur
meðal annars í ljós að námsmenn
nýta sér strætó meira en áður og
nemendur á framhalds- og háskóla-
stigi eru nú um fjörutíu prósent
allra þeirra sem ferðast með
strætó. Einnig kemur í ljós að um
það bil 35 þúsund íbúar á höfuð-
borgarsvæðinu nota strætó einu
sinni í viku eða oftar. Eru þetta um
fimmtán prósent af íbúum svæðis-
ins og er það sambærilegt við það
sem gengur og gerist annars stað-
ar á Norðurlöndunum.
Samkvæmt þjónustumati eru níu
af hverjum tíu farþegum ánægðir
með þjónustu Strætó og telja hana
falla vel að sínum þörfum. Almennt
viðhorf til verkefnisins „frítt í
strætó „ er jákvætt, en þó kemur í
ljós að þrjátíu prósent þeirra náms-
manna sem sótt hafa fríkort í
strætó nota kortið lítið eða ekkert,
og margir sem rétt hafa á slíku
korti hafa ekki enn sótt það. - kg
Tilraunaverkefnið „frítt í strætó“ fyrir námsmenn hefur skilað árangri:
Farþegum fjölgar um milljón
AUKNING: Verkefnið „frítt í strætó“ hefur
skilað sér í mikilli aukningu farþega.
MENNTUN SÍNE, Samband
íslenskra námsmanna erlendis,
vill að námslán verði greidd út
mánaðarlega vegna gengis-
sveiflna krónunnar. Þetta kemur
fram í ályktun frá sambandinu.
Lánasjóður íslenskra náms-
manna greiðir lán út að lokinni
önn. Þetta er óhagstætt fyrir
námsmenn erlendis, sem neyðast
til að framfleyta sér með
yfirdráttarlánum, sem bera háa
vexti, að sögn Garðars Stefáns-
sonar, framkvæmdastjóra SÍNE.
Garðar bendir á að námslán
hafi verið greidd út mánaðarlega
á Íslandi til ársins 1992 og að slíkt
tíðkist á Norðurlöndum. - sgj
Námsmenn erlendis:
Vilja námslán
mánaðarlega