Fréttablaðið - 11.04.2008, Side 13
FÖSTUDAGUR 11. apríl 2008 13
Charlotte er
þessa dagana
á ferðalagi í
Bandaríkjunum
ásamt unnusta
sínum. Það sem
af er ferðar hafa
þau heimsótt
borgirnar
Boston, Washington og New York.
„Við höfum búið hjá vinum, sem
hefur verið dásamlegt. Það gerir allt
auðveldara og vinir okkar vita hverju
á að mæla með í hverri borg. Við
höfum borðað frábæran mat, verslað
svolítið og heimsótt söfn og minnis-
varða. Á miðvikudaginn heimsóttum
við vin pabba sem vinnur í Alþjóða-
bankanum og það var upplifun að
koma inn í svo merkilega byggingu.
Veðurspáin segir að það eigi að vera
18 stiga hiti og sól svo við ætlum að
drífa okkur í Central Park og skoða
Guggenheim-safnið.“
Charlotte Ólöf Ferrier:
Á FERÐALAGI Í
BANDARÍKJUNUM
Rachid finnst
verðlag hafa
hækkað mikið á
Íslandi að undan-
förnu. „Það
er erfitt að ná
endum saman
við mánaðamót.
Örfáir hlutir í
matvörubúð kosta kannski þrjú til
fjögur þúsund krónur en það fer
auðvitað eftir hvað maður kaupir.
Bensínið hefur líka hækkað í verði
og ég finn fyrir því. Ég held að það
sé komið nóg og stjórnvöld hér
hljóta að gera eitthvað. Ef verðlag
hækkar meira verður allt brjálað.“
Hækkanirnar breyta samt áætlunum
Rachids ekki mikið. „Ég stefni á
að heimsækja fjölskylduna mína í
sumar en það kostar mikið. Flugmið-
inn kostar til dæmis meira en áður.
Þetta breytir því helst að ég get ekki
sparað neitt.“
Rachid Benguella:
ALLT KOSTAR
MIKLU MEIRA
VIKA 10
DAGBÓK NÝRRA
ÍSLENDINGA
Glæn‡ verslun á Íslandi me› innanstokksmuni og fleira fyrir falleg krakkaherbergi.
OPNUM Á MORGUN Í HOLTAGÖR‹UM
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
2
8
2
9
Komdu og upplif›u ævint‡ri innandyra!
Opi› frá kl. 10 - 18.
Klukkan 14 s‡na hressir
stubbar flottan fatna› og
húsgögn úr vörulínu
Stubbasmi›junnar. Eftir fla›
tökum vi› svo sérstakt
stubbatjútt í tilefni dagsins.
HÚLLUMHÆ
Te & Kaffi í Holtagör›um
kynnir einstakt frambo› á
girnilegum og ljúffengum mat-
og drykkjarvörum fyrir börn.
BARNVÆNT
KAFFIHÚS
„Það er lítið um
að vera hjá mér.
Ég var að vonast
til að komast
héðan frá Ísafirði
til Akureyrar til
að sinna vinnu
þar en flugi hefur
verið aflýst hvað
eftir annað. En ég hef mikið fylgst
með fréttum frá Portúgal enda er
athyglisvert mál þar til umræðu.
Þannig var að kennari vildi taka
farsíma af framhaldsskólanema sem
var upptekinn við hann í kennslu-
stund, kom þá til smá átaka og
annar nemandi tók það upp og setti
inn á Youtube. Síðan þá hefur aga-
leysið í framhaldsskólum verið mikið
til umræðu í þjóðfélaginu.“
Filipe Figueiredo:
AGALEYSI NEM-
ENDA Í PORTÚGAL
„Ég er ekki enn
búin að fá ríkis-
borgararéttinn,
kannski á mánu-
daginn,“ segir
Junphen, sem
bíður svara frá
yfirvaldinu. „Ann-
ars er ég á fullu
að æfa Tai-dans með níu öðrum
löndum mínum enda eru taílensku
áramótin á sunnudaginn. Reyndar
verður ekki áramótafagnaðurinn fyrr
en laugardaginn 19. apríl í Vodafone-
höllinni og þá mun dansinn duna.
Við æfum hjá einum félaga en við
erum tíu í danshópnum. Þetta er
líka tækifæri fyrir mig að sýna kjólinn
sem ég var að hanna.“
Junphen Sriyoha:
ÁRAMÓTIN Á
NÆSTA LEITI
NEPAL, AP Íbúar í Nepal gengu til kosninga í
gær. Kosið var til 601 manns stjórnlagaþings,
sem fær það verkefni að ákveða nýja stjórn-
skipan fyrir landið.
Samkvæmt samkomulagi sem gert var í
vetur verður gamla konungsveldið formlega
lagt niður og lýðveldi stofnað þar sem
maóískir byltingarsinnar fá tækifæri til að
taka þátt í stjórn landsins á forsendum
lýðræðis.
Ekki er búist við að endanleg úrslit kosning-
anna verði ljós fyrr en seint í apríl eða byrjun
maí. Óttast er að næstu vikur geti orðið
spennuþrungnar, skipst verði á ásökunum um
kosningasvik og átök brjótist út.
Nokkuð var um átök á kosningadaginn.
Byssumenn á mótorhjólum skutu á frambjóð-
anda í bænum Janakpur sunnantil í Nepal, en
misstu marks. Í bænum Galkot reyndu
maóistar að ná einum kjörstað á sitt vald, en
kveiktu síðan í byggingunni eftir átök við
lögreglu og kosningastarfsmenn.
Átökin voru þó ekki útbreidd og almenn
bjartsýni virðist ríkja um að kosningarnar
verði upphafið að friðsælum tíma og efna-
hagsuppgangi.
Um það bil hundrað þúsund manns sinntu
eftirliti með framkvæmd kosninganna. Þeirra
á meðal var Jimmy Carter, fyrrverandi
Bandaríkjaforseti. - gb
Íbúar í Nepal kjósa stjórnlagaþing til að leggja formlega niður konungsveldið:
Upphafið að stofnun lýðveldis
KOSIÐ Í NEPAL Meira en sautján milljónir manna voru
á kjörskrá í þessu landi þar sem konungssinnar og
maóistar hafa árum saman barist af hörku.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP