Fréttablaðið - 11.04.2008, Side 14
14 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
NOREGUR „Það er ekki mitt hlutverk
að hafa skoðun á því hvort Íslend-
ingar eigi að binda myntina sína við
aðra mynt eða hefja myntsamstarf.
Það er spurning sem íslensk stjórn-
völd verða hugsanlega að velta
fyrir sér,“ segir Kristin Halvorsen,
fjármálaráðherra Noregs, um þá
hugmynd að binda íslensku krón-
una við þá norsku, eins og Þórólfur
Matthíasson, prófessor í viðskipta-
og hagfræðideild Háskóla Íslands,
hefur lagt til.
„Til að taka þátt í myntsamstarfi
innan Evrópusambandsins gerir
stöðugleikasáttmáli Myntbanda-
lagsins grundvallarkröfur til efna-
hagslegs stöðugleika, bæði hvað
varðar verðbólgu, vexti og ríkisfjár-
mál. Það er sennilega ekki stemning
fyrir ESB-aðild á Íslandi nú en ef
það hefði verið það þá lítur ekki út
fyrir í augnablikinu að íslenskur
efnahagur uppfylli þær kröfur sem
eru settar til að fá að taka þátt í
myntsamstarfinu,“ segir hún.
„Þessar kröfur eru gerðar til að
tryggja að viðkomandi land geti
haft gleði af því að hafa fast gengi
eða þátttöku í myntsamstarfi.
Slíkar forsendur gilda jafnmikið
ef Ísland myndi óska þess að
binda krónuna við Bandaríkjadal
eða norska krónu. Hvað varðar
norsku krónuna þá á Noregur
frekar lítil viðskipti við Ísland og
uppbyggingin á þessum tveimur
efnahagskerfum er frekar ólík.
Þó að íslenskur hagfræðiprófess-
or hafi skrifað um möguleikann á
krónusamstarfi milli landa okkar
þá er þetta ekki virk umræða í
pólitíkinni,“ segir hún.
- ghs
Fjármálaráðherra Noregs um hugmyndina um að binda krónuna við aðra mynt:
Hagkerfi landanna of ólík
Áfram í gæsluvarðhaldi
Héraðsdómur hefur framlengt gæslu-
varðhald yfir manni, sem grunaður er
um kynferðisbrot gagnvart tveimur
dætrum sínum, til 30. apríl. Dætur
mannsins eru átta og þrettán ára
gamlar.
DÓMSMÁL
Sýknaður af líkamsárás
Hæstiréttur sneri í gær við dómi
yfir manni fyrir líkamsárás fyrir utan
skemmtistaðinn Hverfisbarinn árið
2005. Maðurinn hafði verið dæmdur
í héraðsdómi fyrir að kasta glasi fram-
an í annan mann, en Hæstiréttur taldi
sekt hans ekki sannaða.
Páll Gunnar ekki vanhæfur
Hæstiréttur úrskurðaði í gær að Páll
Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppnis-
eftirlitsins, væri hæfur til að rannsaka
meint brot Mjólkursamsölunnar,
Auðhumlu, og Osta- og smjörsöl-
unnar gegn samkeppnislögum. Vildu
fyrirtækin að hann viki sæti vegna
tiltekinna ummæla hans um málið.
ÞÝSKALAND, AP Dómstóll í Þýska-
landi hefur kveðið upp þann
úrskurð að kennslukonur megi
ekki bera alpahúfu frekar en
höfuðslæðu að íslömskum hætti.
Íslömsk kennslukona brá til þess
ráðs, eftir að henni var bannað að
bera höfuðslæðu í vinnunni, að
setja upp alpahúfu sem huldi hár
hennar.
Dómstóll segir að skólayfirvöld
megi reka kennslukonuna ef hún
tekur ekki niður húfuna. Í
Nordrhein-Westfalen er bannað
að bera trúartákn sem geta brotið
gegn óhlutdrægni hins opinbera
gagnvart nemendum og foreldr-
um þeirra. - gb
Dómstóll í Þýskalandi:
Alpahúfur
bannaðar
EKKI Í VIRKRI
UMRÆÐU
„Þetta er ekki
virk umræða
í pólitíkinni,“
segir Kristin
Halvorsen,
fjármálaráð-
herra Noregs.
MENNING Sendiherra Kanada á Íslandi, frú
Anna Blauveldt, afhenti í gær Gaëtan
Montoriol, forstjóra frönsku menningarstofn-
unarinnar Alliance Francaise á Íslandi, þrjátíu
mynddiska með frönsku kennsluefni. Herra
Olivier Mauvisseau, sendiherra Frakklands á
Íslandi, var einnig viðstaddur afhendinguna.
Kanadíska sendiráðið afhendir gjöfina í
tengslum við nýafstaðna viku franskrar tungu.
Er henni ætlað að stuðla að enn betri frönsku-
kennslu á Íslandi, ekki síst meðal barna.
Kennsluefnið þykir afar gott en það er
framleitt af sjónvarpsstöðinni Téléfrancais TV
í Ontario í Kanada. Er efnið sagt krefjandi,
gefandi og skemmtilegt.
Á diskunum er hver kennslustund sett upp
þannig að hún sameinar einfaldan orðaforða og
setningarfræði. Er efnið sett fram munnlega
og svo endurtekið með letri á skjánum. Frönsk
tunga er þannig sett fram á lifandi og skemmti-
legan hátt. Ævintýri, sönglög, leikir, spurning-
ar og próf gleðja þá sem horfa og hvetja til
þátttöku í náminu. - ovd
Sendiráð Kanada á Íslandi gefur kennsluefni til franskrar menningarstofnunar:
Krefjandi og skemmtilegt efni
FRÁ AFHENDINGU GJAFARINNAR
Sólveig Simha og Gaëtan Montoriol hjá
Alliance Francaise taka við gjöfinni frá
Önnu Blauveldt, sendiherra Kanada á
Íslandi. Olivier Mauvisseau, sendiherra
Frakklands, stendur hjá.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Komdu og re
ynsluaktu
Volkswagen
með sparney
tinni
bensín- eða d
ísilvél.
Prófaðu að s
para
Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Tilboðsverð á Polo
1.950.000 kr.
Verð áður 2.110.000 krónur. Mánaðarleg afborgun miðast við
gengistryggðan bílasamning til 84 mánaða og 30% útborgun
(585.000 kr.). Árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,12%.
Eða aðeins 22.790 kr. á mánuði
PassatGolfPolo
5,0
l/100 km
4,5
l/100 km
Touran
5,9
l/100 km
5,8
l/100 km
Eyðsla, miðað við TDI® vél frá Volkswagen í blönduðum akstri.
Tiguan
6,9
l/100 km
Aukahlutur á mynd: Álfelgur
FLUGÞRAUTIR Bandaríski flugkappinn
Kirby Chambliss stýrir flugvél sinni
fimlega milli hindrana í fyrstu umferð
flugkeppni í Abu Dhabi. NORDICPHOTOS/AFP