Fréttablaðið - 11.04.2008, Síða 15
FÖSTUDAGUR 11. apríl 2008 15
FÉLAGSMÁL Stutt hlé var gert á
fundum borgarráðs Reykjavíkur-
borgar í gær þegar fundarmenn
fengu vatnspásu. Vildi borgarráð
með þessu leggja UNICEF,
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna,
lið í að vekja athygli á því alvarlega
vandamáli sem takmarkaður eða
enginn aðgangur að heilnæmu
drykkjarvatni er í heiminum.
Á hverjum degi neyðist yfir
milljarður jarðarbúa til að svala
þorsta sínum með óheilnæmu vatni.
Á bilinu 5 til 6 þúsund börn deyja
daglega af þessum orsökum og
mun fleiri veikjast alvarlega. Skort-
ur á aðgengi að hreinu vatni er
næstalgengasta dánarorsök barna
undir fimm ára aldri. Vatnsvika
UNICEF stendur til 13. apríl
næstkomandi þar sem viðskiptavin-
ir valinna veitingahúsa geta greitt
fyrir vatn sem þeir drekka. - ovd
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, vekur athygli á takmörkuðum aðgangi að vatni í heiminum:
Borgarráðsmenn skáluðu í vatni
GLÖS Á LOFT Fulltrúar í borgarráði gerðu hlé á fundinum til að svala þorsta sínum í gærmorgun. Vatnsvika UNICEF stendur yfir
þessa dagana. Safnað er fé sem verður notað til að auka aðgang barna að heilnæmu vatni í yfir níutíu löndum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
NEYTENDAMÁL Síminn og Vodafone
hafa fallist á tilmæli talsmanns
neytenda um að tilkynna fram-
vegis öllum neytendum fyrir
fram um verðhækkanir og aðrar
breytingar á skilmálum. Hafa
neytendur þá einn mánuð til að
bregðast við.
Þetta kemur fram á vefsíðu
talsmanns neytenda. Þar segir
enn frekar að fram til þessa hafi
slíkar breytingar aðeins verið
kynntar með fréttum og upplýs-
ingum á vefsíðum fyrirtækjanna
auk tilkynningar til Póst- og
fjarskiptastofnunar. Tilefni
tilmæla talsmannsins er að
fyrirtækin hafa frá áramótum
breytt verðskrá sinni til hækkun-
ar án þess að tilkynna viðskipta-
vinum sínum hverjum og einum
um breytingarnar með bréfi,
tölvuskeyti eða öðrum hætti. - ovd
Tilmæli talsmanns neytenda:
Verðhækkanir
kynntar betur
Das Auto.
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Polo er einn af fjölmörgum sparneytnum bílum frá Volkswagen
Ef sparneytni væri skrásett vörumerki, væri það að sjálfsögðu í eigu Volkswagen
Það er ekki hægt að fá einkaleyfi á orðinu sparneytni. Jafnvel þótt við hjá Volkswagen höfum í raun
fundið upp það hugtak. Jafnvel þótt hönnuðir okkar séu á hverjum degi að finna upp leiðir til að auka
sparneytnina enn frekar – til dæmis með nýju kraftmiklu TDI dísilvélunum. Komdu og kynntu þér
Volkswagen, sölumenn okkar taka vel á móti þér.
ALVÖRU
SJÁLF-
SKIPTINGAR
SVEIGJAN-
LEGIR
SÖLUMENN
ÖFLUGAR EN
HLJÓÐLÁTAR
DÍSILVÉLAR
EYÐSLU-
GRANNAR
VÉLAR
KOLEFNIS-
JAFNAÐIR
Í EITT ÁR
MINNI
LOSUN ÚT Í
UMHVERFIÐ
HAGKVÆMIR
Í REKSTRI OG
VIÐHALDI
UPPFYLLA
STRÖNGUSTU
ÖRYGGISSTAÐLA
Sparneytni
SKÓLAMÁL Foreldrar sem hafa fullnýtt
fæðingarorlof sitt munu eiga kost á þjónustu-
tryggingu meðan beðið er eftir leikskólaplássi
eða dagforeldri, samkvæmt tillögu meirihlut-
ans í borgarstjórn.
Áætlunin ber heitið Borgarbörn og hefur
það að markmiði að fjölga leikskólaplássum
og kynna ný og ólík úrræði fyrir börn í
Reykjavík. Í áætluninni kemur fram að á
næstu þremur árum verði leikskólaplássum
fjölgað í nýjum leikskólum og nýjum deildum
bætt við rótgróna leikskóla.
Þjónustutrygging er jafn há greiðsla og
Reykjavíkurborg greiðir með barni sem er í
vistun hjá dagforeldri, eða 35.000 krónur, og
stendur til boða eftir að fæðingarorlofi lýkur.
Þessi tímabundna greiðsla er hugsuð sem leið
til að auðvelda foreldrum að brúa bilið frá því
að fæðingarorlofi lýkur og þar til barn fær
þjónustu dagforeldra eða leikskóla, til dæmis
til að greiða þriðja aðila, skyldmenni eða
öðrum, fyrir aðstoð. Foreldrar sem þiggja
þjónustutryggingu en ráðstafa henni ekki til
þriðja aðila skipta henni á milli sín líkt og lög
um fæðingarorlof gera ráð fyrir. Samkvæmt
tillögunni mun þjónustutrygging standa
foreldrum til boða frá 1. september á þessu ári.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður
leikskólaráðs, segir áætlunina vera stærsta
málið sem snýr að leikskólaráði á þessu ári.
„Með Borgarbörnum erum við að loka gatinu
sem myndast milli fæðingarorlofs og leik-
skóla eins og kosningaloforð gerðu ráð fyrir.
Eftir níu mánaða meðgöngu og yndislegt níu
mánaða fæðingarorlof taka oft við níu
mánuðir af óvissu og óþægindum við að reyna
að redda ýmsum hlutum, svíkja vinnuveitend-
ur og svo framvegis og það er það sem við
erum að koma í veg fyrir. Það er átak og
kostar gríðarlegan pening en við teljum okkur
setja þetta upp á mjög raunhæfan hátt.“ - kg
Nýjar tillögur gera ráð fyrir hjálp við að brúa bilið frá fæðingarorlofi til leikskóla:
Foreldrar fái þjónustutryggingu
ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚSDÓTTIR Formaður leikskóla-
ráðs segir áætlunina vera stærsta mál leikskólaráðs á
þessu ári.
REYKJAVÍK Borgarráð samþykkti í
gær samhljóða tillögu Ólafs F.
Magnússonar borgarstjóra um
vist fatlaðra barna 10 til 16 ára í
frístundaklúbbum í sumar. Veitti
borgarráð 19 milljónum króna til
verkefnisins.
Minnihluti borgarráðs bendir á
að borgarstjóri hafi í upphafi
ætlað að efna til viðræðna við
félagsmálaráðherra og Samband
íslenskra sveitarfélaga um
fjármögnun frístundastarfsins.
Fagnar minnihlutinn því að hann
hafi vikið frá þeirri stefnu og
tryggt fjármuni þess í stað.
Borgarstjóri mun ræða við þessa
aðila um frekari aðgerðir. - sgj
Borgarráð leggur til fé:
Fötluð börn í
frístundaklúbba