Fréttablaðið - 11.04.2008, Side 34
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjóri Marta María Jónasdóttir
martamaria@365.is
Bergþóra Magnúsdóttir
bergthora@365.is
Forsíðumynd Teitur Jónasson
Útlitshönnun
Arnór Bogason og
Kristín Agnarsdóttir
Auglýsingar Guðný Gunnlaugsdóttir
gunnyg@365.is sími 512 5462
Föstudagur Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
FÖSTUDAGUR
fréttir
„Reynir Traustason ritstjóri bað mig að
taka helgarviðtöl fyrir DV. Ég sló til þar
sem ég hafði tíma aflögu og er núna að
skrifa mitt fimmta helgarviðtal. Þetta
er gott með öðrum verkefnum,“ segir
Sigríður Arnardóttir, Sirrý, en hún hóf
fjölmiðlaferil sinn sem blaðamaður
á Þjóðviljanum aðeins 19 ára gömul.
Einnig hefur hún verið ritstjóri á tíma-
riti, en er þekktust sem sjónvarps- og
útvarpskona. „Mér finnst mjög gaman
að skrifa og bara almennt að taka við-
töl við fólk. Auk þess fæ ég mikla útrás
fyrir sköpunarþörfina í gegnum skrif-
in. Ég verð að fást við eitthvað upp-
byggilegt og fjalla um fólk. Ég er fé-
lags- og fjölmiðlafræðingur svo það
skýrir kannski þennan áhuga minn á
fólki og samfélaginu,“ segir Sirrý sem
er langt frá því að hafa sagt skilið við
fjölmiðla eftir að hún hætti hjá Stöð 2
um áramótin. „Mér stóð til boða að fara
að vinna á Fréttastofu Stöðvar 2 þegar
serían Örlagadagurinn var á enda en
ég hafði ekki áhuga á því og ákvað því
að snúa mér að öðrum verkefnum.“
Sirrý hefur haft nóg á sinni könnu og
er nú að undirbúa stórt verkefni sem
hún getur ekki upplýst hvað er að svo
stöddu, auk þess heldur hún námskeið
og fyrirlestra fyrir hópa í framsækni.
„Þetta eru námskeið sem ég hannaði og
hef haldið í nokkur ár og er með kvik-
myndatökumann með mér. Þar þjálfa
ég fólk í öruggri tjáningu og fjölmiðla-
framkomu. Það kemur sér vel í mörg-
um störfum að geta staðið upp og
tjáð sig vel fyrir framan fólk og hafa
gaman af en til þess er nú leikurinn
gerður.“ Framsækni-námskeiðin hafa
notið mikilla vinsælda en Sirrý miðl-
ar þar af áratugalangri reynslu sinni
í fjölmiðlum til þátttak-
enda. „Hóparnir koma úr
öllum stéttum þjóðfélags-
ins sem gerir þetta enn
þá skemmtilegra. Þetta er
ekkert ósvipað því að vera
í beinni útsendingu, gagn-
virk samskipti, og maður
einbeitir sér að því að
laða það besta fram í
fólki. Á næstunni verð
ég líka með námskeið
fyrir konur á Tene-
rife,“ bætir Sirrý
við að lokum alsæl
með lífið og til-
veruna.
bergthora@
frettabladid.is
SIRRÝ VILL FREKAR SKRIFA FYRIR DV EN AÐ VINNA Á FRÉTTASTOFU STÖÐVAR 2
Undirbýr stórt verkefni
Söngkonan Birgitta Haukdal og unnusti henn-
ar, Benedikt Einarsson lögfræðinemi, hafa
fjárfest í 211 fermetra húsi við Bakkaflöt 3 í
Garðabæ. „Við keyptum þetta hús á dögunum
og hlökkum til að flytja,“ segir Birgitta Hauk-
dal þegar Föstudagur hafði samband við hana.
Það kemur ekki á óvart að Birgitta og Benedikt
hafi fjárfest í húsinu því foreldrar hans, Einar
Sveinsson og Birna Hrólfsdóttir, búa í Bakka-
flöt 10 og stóri bróðir hans, Hrólfur, á húsið að
Bakkaflöt 8. Hann býr þó ekki í húsinu eins og
stendur því hann leigir þeim Svövu Johansen
og Birni Sveinbjörnssyni í augnablikinu.
Þótt húsið sé glæsilegt hyggjast þau fara í
allnokkrar framkvæmdir í húsinu, meðal ann-
ars skipta um eldhúsinnréttingu og gera það
eftir sínu höfði. Birgitta og Benedikt eru þó
ekki eina framkvæmdaglaða fólkið í götunni
því beint á móti þeim, að Bakkaflöt 2, býr
frændi Benedikts, Bjarni Benediktsson al-
þingismaður, ásamt fjölskyldu sinni og eru
þau að byggja við húsið sitt. Birgitta og Bene-
dikt bjuggu áður í miðbænum og því má segja
að hann sé kominn heim.
Birgitta Haukdal og Benedikt Einarsson keyptu Bakkaflöt 3
Komin í faðm fjölskyldunnar
Bakkaflöt 2. Bjarni Benediksson
alþingismaður er að byggja við
húsið sitt.
Benedikt og Birgitta eru
ekki viss hvenær þau ná að
flytja inn í draumahúsið.
Bakkaflöt 3. Húsið er 211 fermetrar
og stendur á besta stað í Garðabæ.
„Við erum að skrifa kvikmynda-
handrit fyrir Pegasus en handritið
er enn þá í smíðum. Að svo stöddu
er ekki komið á hreint hvenær tökur
eru áætlaðar enda á margt eftir að
gerast í ferlinu áður en það verður
ljóst,“ segir Sigtryggur Baldurs-
son, tónlistarmaður og handritshöf-
undur, en hann og Marteinn Þórs-
son kvikmyndagerðarmaður skrifa
handritið saman. „Þetta er kómísk
morðsaga í sex þáttum. Hún fjallar
um samkynhneigt par sem kaup-
ir bakarí en þar er ekki allt sem
sýnist. Gamli bakarinn var myrt-
ur og gengur aftur í bakaríinu og
reynir að benda á morðingja sinn
með vísbendingum að handan,“
segir Sigtryggur og bætir því við
að margar aðrar persónur fléttist
inn í söguna en atburðarásin á sér
stað í götunni þar sem bakaríið er.
„Við Marteinn höfum skrifað nokk-
ur handrit saman í gegnum tíðina
en þetta er fyrsta handrit-
ið okkar sem fer í fram-
leiðslu,“ segir
Sigtryggur
en hann og
Marteinn
eru gaml-
ir vinir. Þetta
er annað hand-
rit Sigtryggs
sem fer í framleiðslu en á síð-
asta ári var stuttmynd hans, Loka-
hnykkur, frumsýnd. Marteinn
hefur getið sér gott orð bæði sem
leikstjóri og handritshöfundur en
mynd hans Einn komma núll hlaut
mikið lof gagnrýnenda og síðar á
þessu ári leikstýrir hann Roklandi.
Það verður því spennandi að sjá
útkomu þessa öfluga tvíeykis.
bergthora@365.is
Skrifa morðsögu
með gamansömu ívafi
Sigtryggi Baldurssyni,
tónlistarmanni og
Marteini Þórssyni
kvikmyndagerðar-
manni, er margt
til lista lagt.
Það er ekkert lát á skráningu eigna
í sölu þessa daga. Árni Þór Vigfús-
son og Mariko Margrét Ragnars-
dóttur hafa til dæmis sett penth-
ouse-íbúð sína á sölu og sjónvarps-
stjarnan Ellý Ármanns hefur sett
300 fermetra einbýlishús á sölu í
Hörgshlíðinni. Upphaflega voru tvær
íbúðir í húsi Ellýjar og byrjaði hún á
því að kaupa efri hæðina sem hún
gerði alla upp. Þegar því var lokið
keypti hún neðri hæðina og var hún
allt síðasta sumar í framkvæmdum
til að gera húsið sem fjölskylduvæn-
ast. Penthouse-
íbúð Árna Þórs
og Mariko er
144 fermetr-
ar og vilja þau fá
75 milljónir fyrir
slotið. Báðar
eignirnar eru á
sölu hjá Hann-
esi Steindórs-
syni, fasteigna-
sala hjá Remax, en í gegnum tíð-
ina hafa íslensku stjörnurnar flykkst
með híbýli sín í sölu til hans en hann
var lengi sölustjóri á Skjá einum og
síðar hjá 365 miðlum áður en hann
fór út í fasteignabrans-
ann. Hannes er þó
ekki bara að selja
fyrir Ellý og Árna
Þór heldur líka fyrir
Völu Matt, Ha-
bitat-hjónin
Jón Arnar og
Ingibjörgu,
tónleika-
haldar-
ann Björn
Steinbeck
og svo
mætti lengi
telja.
„Fram eftir deginum ætla ég að njóta þess að
slæpast með fjölskyldunni minni. Um kvöldið fer
ég í þrítugsafmæli til danskrar vinkonu minnar,
Irene, auk þess mun ég spila í einkasamkvæmi
fyrir bandarískan vin minn með Jónsa í Svörtum
fötum. Atriðið var planað með stuttum fyrirvara
og verður mjög framandi fyrir mig. Ég byrja alla
laugardaga á því að fara á dansnámskeið með
eldri dóttur minni sem er mjög hressandi. Um
eftirmiðdaginn leik ég með stórsveit Samma í Ráð-
húsinu en þar munu öll big-bönd Íslands spila.
Þaðan fer ég í Þjóðleikhúsið og spila í sýningunni
Baðstofan. Árshátíð stórsveitar Samma er plön-
uð þetta sama kvöld og hver veit nema að ég
kíki þangað eftir sýninguna. Á sunnudags-
morgnum förum við oftast í barnamessu
og það verður líklegast engin undanteking
á sunnudaginn, síðan fer ég örugglega í
íbúðina sem við vorum að kaupa, reyni
að mála og gera eitthvað af viti. Mun
enda helgina á því að grilla og njóta
þess að vera með fjölskyldunni.“
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ
GERA UM HELGINA?
Helgi Svavar Helgason tónlistarmaður
2 • FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008