Fréttablaðið - 11.04.2008, Side 36
Hinar hollensku Bugaboo-kerr-
ur hafa verið gríðarlega vinsælar
síðustu árin og þá sérstaklega hjá
fræga fólkinu í útlöndum. Þegar
Nanna Kristín Magnúsdóttir leik-
kona var ólétt komst hún í kynni
við kerrurnar. Þegar hún ákvað að
opna barnavöruverslunina Stubb-
asmiðjuna í Holtagörðum kom
ekkert annað til greina en að selja
kerrurnar þar. „Nína Dögg, vin-
kona mín og leikkona, á Bugaboo-
kerru. Þegar ég var ófrísk ráð-
færði ég mig við hana og Selmu
Björnsdóttur, vinkonu mína, sem
á aðra tegund af kerru. Nína Dögg
var svo sannfærandi að ég kolféll
fyrir Bugaboo. Eftir það fór ég að
grennslast fyrir og komst þá að
því að ég yrði að kaupa mér far-
miða til útlanda ef ég ætlaði að fá
mér þessa kerru því þær fengust
ekki hér. En nú verður breyting á
því við munum selja allar tegund-
irnar af Bugaboo í Stubbasmiðj-
unni,“ segir Nanna Kristín. Þegar
hún er spurð að því hvað hafi heill-
að hana mest við kerruna segir hún
að það hafi verið hvað þær væru
praktískar. Það er hægt að brjóta
þær saman með einu handtaki og
svo eru þær úr áli og því fisléttar.
„Svo skiptir útlitið alltaf máli og
gaman að leika sér með litina. Það
er hægt að skipta um lit á skerm-
unum og svuntunum sem gerir
kerruna mun eigulegri,“ segir
hún. Þótt Nanna Kristín sé að opna
barnavöruverslun segist hún alls
ekki vera hætt að leika. „Ég er í
fæðingarorlofi, sonur minn, Krist-
inn Kolur, er fjögurra mánaða og
ég er því að vinna í þessu í orlof-
inu. Þetta lá beinast við núna því
ég fékk svo mikinn áhuga á öllu
sem tengist meðgöngu og börn-
um þegar ég var ólétt. Þetta er af-
raksturinn af því og ég er ánægð
með það.“ Hún segist heilmikla
listræna útrás en í búðinni eru 13
barnaherbergi sem hún er að inn-
rétta ásamt starfsfólkinu. Nanna
Kristín ætlar að geysast fram
á leiksviðið að fæðingarorlofi
loknu. Þeir sem hyggjast fjárfesta
í Bugaboo-kerru ættu að koma á
laugardaginn því þá veður Robb-
ert Cohen de Lara frá Bugaboo í
versluninni. martamaria@365.is
Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona er ekki hætt að leika þótt hún opni barnavöruverslun
Fær útrás fyrir sköpunar-
kraftinn í fæðingarorlofinu
Nanna Kristín segir að í sumar
muni enn ein nýjungin frá Buga-
boo líta dagsins ljós þegar bílstóll
frá þeim kemur á markað. Þeir
sem vilja skoða kerrurnar betur
geta farið inn á bugaboo.com.
Arnar Þór Gíslason, eigandi
Ólivers, segir að Blue Cari-
bic sé heitasti drykkurinn á
staðnum í dag. Fyrir þá sem
vilja sturta í sig bláum veig-
um heima hjá sér geta sett 3
cl af Reyka-vodka í glas, 2 cl
af M.B. Blue og fyllt svo upp
með grape-gosi. Til að full-
komna stemninguna er dás-
amlegt að setja regnhlífar og
annað baðstrandaskraut í
drykkinn, strá sandi á stofu-
gólfið og fara í Kanaríeyjafötin.
Kreppa hvað?
Blár
yndis-
auki
DRYKKUR VIKUNNAR
4 • FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008