Fréttablaðið - 11.04.2008, Page 42
11. APRÍL 2008 FÖSTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● heilsa og lífsstíll
Fáir tengja listamenn við íþróttir þótt
afreksmenn á því sviði leynist vissulega
í þeirra röðum. Samt sem áður verður
í sumar starfrækt íþróttabandalag
þar sem listamenn safnast saman og
spretta á eftir boltanum.
„Við vorum að tala í síma, ég og Bryndís
Ragnarsdóttir myndlistarkona, um hreyf-
ingu og íþróttir. Hvað listamenn eru oft út-
undan einhvern veginn.“ segir Snorri Ás-
mundsson myndlistarmaður rólega og
gerir hlé á ræðu sinni til að hugsa. „Þetta er
svona annað mengi af fólki sem hefur sjald-
an áhuga á íþróttum. Þá datt okkur í hug
að stofna Íþróttabandalagið eða ÍBÐ sem
verður liður í að draga listamennina út að
hlaupa.“
Snorri segir félagið vera í viðræðum við
óskaþjálfara en upprunalega stóð til að fela
góðkunningja í íþróttaheiminum hlutverk-
ið. „Okkur langaði helst til að fá Bjarna Fel-
ixson til að þjálfa. Hann treysti sér ekki í
það en gerðist þess í stað heiðursfélagi,“
segir Snorri, sem telur þó vissara að nefna
engin nöfn á þjálfurum fyrr en málið er
komið í höfn. „Við ætlum samt að vera dug-
leg að æfa okkur. Þetta er kynjablandað lið
því þarna munu bæði karlar og konur spila
saman. Svo verður þetta sennilega ný teg-
und af fótbolta. Við ætlum að þróa nýjar
leikaðferðir, nýjar leikreglur og það gætu
komið upp spennandi aðferðir sem gætu
nýst knattspyrnumönnum víða um heim,“
segir Snorri og Bryndís Ragnarsdóttir
myndlistarkona, sem er meðlimur í banda-
laginu, tekur í sama streng.
Íþróttabandalagið ÍBÐ ætlar að spila við
hina ýmsu hópa í samfélaginu sem vilja.
Auk þess sem bandalagið stefnir hærra og
vílar ekki fyrir sér að skora úrvalsdeildar-
lið og landsliðið á hólm. Snorri segir að það
yrði spennandi að sjá útkomuna. „Búning-
urinn á liðið er reyndar ekki tilbúinn en það
eru alls konar hugmyndir um hann. Hann
á örugglega eftir að rugla andstæðinginn í
ríminu. Ein af okkar brellum er meðal ann-
ars að vera með búninga sem rugla,“ út-
skýra Snorri og Bryndís.
Snorri segir fólk oft með fordóma gagn-
vart listamönnum, eins og þeir kunni bara
að leika sér en taki ekki þátt í samfélaginu
af alvöru. Sömuleiðis hafi listamenn oft for-
dóma fyrir fótboltamönnum sem slá megi
á. ÍBÐ er liður í að breyta þeirri ímynd
og sýna að listamenn geta líka verið fyrir-
myndar þjóðfélagsþegnar.
„Þarna verður fólk sem kann ekki fót-
bolta og því þarf að nota það í aðra hluti í
bandalaginu. Þetta verða pottþétt óvenju-
leg hlutverk sem menn munu leika og við
hlökkum mikið til,“ segir Snorri og held-
ur áfram: „Ef við erum hins vegar að spila
við landsliðið þar sem dómari dæmir eftir
þeirra reglum þá verðum við að hlíta þeim.
Samt eiga boð og bönn ekki vel við listafólk-
ið í ÍBÐ. Og eiginlega eru boð og bönn bönn-
uð í Íþróttabandalaginu.“ - nrg
Úrvalslið lista-
manna í fótbolta
Boltinn mundaður milli vina í Listasafni Íslands. Íþróttabandalagið stefnir á góða spretti í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ /GVA
Bjarni Fel heiðursfélagi gefur Snorra og Bryndísi
góð boltaráð. FRÉTTABLAÐIÐ /VALLI
Sumardagurinn fyrsti er á næstu vorgrösum. Þá er kominn tími til að minnast góðra stunda við útileik. Draga fram leikföng fyrir bæði fjölskyldur og börn. Demba sér
síðan í badminton, krikket, kubb eða yfir. Láta boltann skoppa um allar koppagrundir og gleyma sér við sandkökur úti í sandkassa með skóflu í hönd.
Vorið er komið og grundirnar gróa
Hjólbörur, skófla, fata og mót fyrir krakka á
öllum aldri. Sandkassinn er staðurinn á vorin.
Settið fæst í Hagkaupum, Skeifunni.
Kostar 2.999 krónur.
Kubb-fjölskylduspilið
frá Intersport. Til-
valið á Klambratúni
eða í sumarbústað-
inn í sumar. Kostar
4.990 krónur.
Krikket sem fær fjölskylduna
í æsispennandi leik um allan
garð. Fæst í Rúmfatalagern-
um. Kostar 990 krónur.
Bolti fyrir hollí hú
og aðra hoppandi
skoppandi leiki. Frá
Rúmfatalagernum.
Kostar 399 krónur.
Badminton með mjúkri kúlu og
fokku. Það er full ástæða til að slá
í gegn í sumar. Frá Hagkaupum,
Skeifunni. Kostar 349 krónur.