Fréttablaðið - 11.04.2008, Síða 61

Fréttablaðið - 11.04.2008, Síða 61
FÖSTUDAGUR 11. apríl 2008 Tillögur að nýrri byggingu fyrir Hönnunarsafn Íslands eru til sýnis í sýningarsal safnsins við Garðatorg. Hönnunarsafnið mun rísa á lóð við Garðatorg og verður eitt af helstu kennileitum í nýjum miðbæ Garðabæjar. Alls bárust 36 tillögur í samkeppni um hönnun hússins. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 dagana 10.-27. apríl. Aðgangur ókeypis. 1. VERÐLAUN G ra fik a 20 08 Hönnunarsafn Íslands í Garðabæ Ísland og umheimurinn UMRÆÐAN Alþjóðleg viðskipti Í þeim brotsjóum alþjóða fjármála- markaða sem riðið hafa yfir heiminn að undan- förnu hafa Íslendingar æ ofan í æ þurft að bera til baka ranghugmynd- ir og rógburð um íslenskt viðskiptalíf á erlendum vettvangi. Við bregðumst að vanda hart við: Ef þeir sem hæst hrópa kynna sér málin mun sú staðreynd blasa við svart á hvítu að íslenskir bankar, íslensk fyrirtæki og íslenskt efnahagslíf eru mestan partinn ágætlega rekin og standa traustum fótum í bráð og lengd. Flestum ber saman um að sú bylting sem hefur orðið á Íslensku samfélagi og atvinnulífi á síðasta áratug sé þrekvirki sem þjóðin á að vera stolt af. Íslenska útrásin er undur sem ekki aðeins á fyllilega rétt á sér heldur er rökrétt framhald af hinni róm- uðu vinnusemi Íslendinga, þekk- ingu þeirra og réttum ákvörðun. Ef vel er haldið á spilunum er hún komin til að vera. Við stöndum hins vegar á krossgötum. Viðfangsefnið er margslungið og kallar á hug- rekki, vandvirkni og djúpa íhug- un og að sjálfsögðu mun taka tíma að koma umheiminum í skilning um okkur. Þetta erfiða og á köflum auðmýkjandi verk útheimtir gagngera þekkingu á alþjóðlegum samskiptum svo og viðhorfum og menningu okkar helstu viðskiptaþjóða. Hvernig getum við komið umheiminum í skilning um hver við erum og hvað við raunverulega stöndum fyrir. Hvað er til ráða? Nýlega lét Viðskiptaráð gera yfirgripsmikla könnun sem afhjúpaði þá óþægilegu staðreynd að flestir útlendingar vissu sáralítið um Íslend- inga, menningu þeirra og listir. Við verðum að setja í það mannafl og fjármuni til að bæta úr þessu þar sem heimurinn veit að ekkert kynnir land og þjóð, sál hennar og innviði eins vel og listir og menning. Eins mæli ég með því að við lítum í eigin barm og veltum því fyrir okkur hvernig erlendir aðil- ar sem eiga viðskipti við Ísland upplifa okkur í raun og veru. Því miður höfum við öll heyrt þess dæmi að á ýmsu hefur gengið í þessum efnum og margir aðilar sem hér vilja starfa og vinna vel hafa orðið fyrir barðinu á mikl- um fordómum, ranghugmyndum og já, jafnvel árásum. Ég nefni dæmi: Álverið í Straumsvík hefur um áratuga skeið starfað á heimsmarkaði og rekið hér vel afskaplega gjöfult og fyrirtæki. Meðan við héldum við gætum ekki án þeirra verið áttum við ekki orð til að lýsa aðdáun okkar og þakklæti á þessum erlendu vinum okkar. Þegar velmegunin stóð sem hæst og við töldum okkur ekki lengur „þurfa á þeim að halda“ datt fyrirtækið úr tísku og mátti muna sinn fífil fegri. Hvernig skyldi umsögn þess- ara aðila vera um Ísland og þeirra upplifun í þröngum hópum stærstu aðila í kauphöllum heims? Eða annara þeirra fyrir- tækja í kauphöllum erlendis með samstarf við helstu fjárfestinga- sjóði í heimi með starfsemi hér- lendis og hafa slíka upplifun af samskiptum við okkur. Hvernig skyldu þeir bera okkur söguna? Bananalýðveldi eða sanngjarnt land í viðskiptum við aðra? Verkefnið er komið til að vera Ég vona sannarlega að við sýnum þeim þrönga en vonandi vaxandi hópi aðila sem áhuga hafa á rekstri hérlendis hver við erum. Í þessum efnum er verkefnið ÍSLAND BEST Í HEIMI sannar- lega þess virði að við öll stöndum saman um þá ímyndarherferð, framtíð okkar og komandi kyn- slóðum til heilla um aldur og ævi. Markmiðið hlýtur alltaf að vera að við komum fram við aðra eins og við viljum að þeir komi fram við okkur: Af skilningi, sanngirni og heiðarleika. Krefj- umst við velvildar annara er best að við lærum að beita henni í hví- vetna sjálf. Vandi fylgir vegsemd hverri. Það blása vindar víðar en á Íslandi. En þessir skjálftar eru ekki merki um hrun heldur traustabresti í hinu kornunga alþjóðlega fjármálakerfi, sem þarf að þjóna hagsmunum æ fleiri þjóða og þjóðarbrota. Allra stærstu tækifærin eru ekki að baki, heldur framundan. Ef þjóðin gerir það sem til þarf mun draumurinn rætast um land þar sem velmegun nær ekki aðeins til fárra útvaldra, heldur til þjóðar innar í heild sinni. Höfundur er athafnakona. Lengri útgáfu greinarinnar má lesa á Vísi. MARGRÉT HRAFNSDÓTTIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.