Fréttablaðið - 11.04.2008, Síða 76
44 11. apríl 2008 FÖSTUDAGURNÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
12
7
16
16
SUPERHERO MOVIE kl. 6 - 8 - 10
VANTAGE POINT kl. 8
THE ORPHANAGE kl. 6
THE EYE kl. 10
7
16
16
16
21 kl. 5.20 - 8 - 10.35
21LÚXUS kl. 5.20 - 8 - 10.35
SUPERHERO MOVIE kl. 4 - 6 - 8 - 10
DEFINATELY MAYBE kl. 5.30 - 8
VANTAGE POINT kl. 8 - 10.10
SHUTTER kl. 10.30
HORTON kl. 3.30 ENSKT TAL
HORTON kl. 4 - 6 ÍSLENSKT TAL
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
S.V. - MBL.
12
7
16
10
12
7
21 kl. 6 - 9
SUPERHERO MOVIE kl. 6 - 8 - 10
DOOMSDAY kl. 8 - 10.20
THE OTHER BOYLEN GIRL kl. 5.30
THE KITE RUNNER kl. 10
BRÚÐGUMINN kl. 6 - 8 5%
FRÁBÆR VÍSINDATRYLLIR Í ANDA
28 DAYS LATER FRÁ LEIKSTJÓRA
THE DESCENT!
SÍMI 551 9000
16
7
16
16
14
THE AIR I BREATHE kl.6
WAR/DANCE (MYNDVARPI) kl. 6 ÓTEXTUÐ, ENSKT TAL
TROPA DE ELITE kl. 8 - 10.20 ENSKUR TEXTI
SURFWISE (MYNDVARPI) kl. 6 ÓTEXTUÐ, ENSKT TAL
THE KING OF KONG kl. 8 ÍSLENSKUR TEXTI
SAND AND SORROW (MYNDVARPI) kl. 8 ÓTEXTUÐ, ENSKT TAL
THE BAND´S VISIT kl. 10 ENSKUR TEXTI
BELLA kl. 10 ENSKUR TEXTI
THE AGE OF IGNORANCE kl. 6 ENSKUR TEXTI
BEAUFORT kl. 8 ENSKUR TEXTI
CARAMEL kl. 10.20 ENSKUR TEXTI
!óíbí.rk055
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 530 1919
GRÆNA LJÓSS
INSBÍÓDAGAR REGNBOGINN11. - 30. APRÍL 3 VIKUR12 KVIKMYNDIR
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SELFOSS
VANTAGE POINT kl. 8 - 10:10 16
STÓRA PLANIÐ kl. 8 10
THE EYE kl. 10:10 10
HORTON M/- ÍSL TAL kl. 6 L
UNDRAHUNDURINN ÍSL TAL kl. 6 L
SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:30 (POWER-sýning) 12
STÓRA PLANIÐ kl. 6 10
SPIDERWICK CHRONICLES kl. 6 7
LARS AND THE REAL GIRL kl. 8 L
SHUTTER kl. 10:10 16
21 kl. 8 - 10
FOOL´S GOLD kl. 6 - 8
STÓRA PLANIÐ kl. 6 - 10 10
SHINE A LIGHT kl. 5:30D - 8D - 10:30D(POWER-sýning) L
SHINE A LIGHT kl. 5:30 - 8 - 10:30 VIP
RUINS kl. 6 - 8 - 10:10 16
FOOL´S GOLD kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:30 7
DOOMSDAY kl. 8 - 10:30 16
HANNA MONTANA kl. 3:40 (3D) L
10.000 BC kl. 5:40 - 8 - 10:30 12
THE BUCKET LIST kl. 6 7
UNDRAHUNDURINN M/- ÍSL TAL kl. 4 L
STEP UP 2 kl. 3:40 7
BÝFLUGUMYNDIN M/- ÍSL TAL kl. 4 L
3D-DIGITAL
DIGITAL
STÓRA PLANIÐ kl. 4D - 6D - 8D - 10D 10
SHINE A LIGHT kl. (5:30D uppselt) - 8D - 10:30D L
FOOL´S GOLD kl. 8 - 10:20 7
UNDRAHUNDURINN M/- ÍSL TAL kl. 4 L
JUNO kl. 6 7
DIGITAL
DIGITAL
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
THE RUINS kl. 8 og 10 16
DEFINITELY, MAYBE kl. 5.45, 8 og 10.15 L
THE EYE kl. 8 og 10 16
SPIDERWICK CHRONICLES kl. 4 og 6 7
HORTON - ÍSLENSKT TAL kl. 4 og 6 L
„Þetta kostar margar milljónir,“
segir Brynjar Már Valdimarsson,
tónlistarstjóri FM957. Hinn 3. maí
verða Hlustendaverðlaun FM957
veitt við hátíðlega athöfn í Háskóla-
bíói. „Þetta verða flottustu hlust-
endaverðlaun hingað til. Ef allt
heppnast verður þetta „mind-
blowing“,“ segir Brynjar en starfs-
menn FM957 vinna baki brotnu að
því að gera þennan viðburð að veru-
leika, í samvinnu við Sagafilm.
Afhending Hlustendaverðlaun-
anna verður sýnd í beinni útsend-
ingu á Stöð 2 og er það í fyrsta sinn
sem það er gert. „Þetta byrjar á
rauða dreglinum, þremur korterum
fyrir útsendingu á Stöð 2 extra. Þá
verður stiklað á stóru með tónlistar-
mönnum landsins. Hátíðin sjálf
hefst svo formlega klukkan 21.30 í
beinni á Stöð 2.“
Brynjar segir að öll stærstu nöfn-
in í íslenskri tónlist komi fram á
hátíðinni. „Svo munu flestar skær-
ustu sjónvarpsstjörnur landsins sjá
um að kynna og veita verðlaun,“
segir Brynjar.
Stóri salurinn í Háskólabíói rúmar
970 manns. Miðasala hófst á mið-
vikudag og fer vel af stað. „Síðan
munum við gefa hlustendum miða í
bestu sætin.“
Að hátíðinni lokinni verður svo
partí fyrir tónlistarmennina og
aðstandendur hátíðarinnar. Það
verður ekki í beinni útsendingu þó.
„Nei, sem betur fer,“ segir Brynjar
og hlær. - shs
Hlustendaverðlaunin aldrei flottari
STUÐ Hlustendaverðlaun FM957 eiga að
toppa öll fyrri ár.
Bíódagar Græna ljóssins
hefjast í dag. Framkvæmda-
stjórinn lofar glæsilegri
veislu þar sem gæðin eru
tekin fram yfir magnið.
Að sögn Ísleifs B. Þórhallssonar,
framkvæmdastjóra Græna ljóss-
ins, er ekkert eitt þema í gangi.
„Við settum okkur það viðmið að
velja þær myndir sem okkur
finnst góðar og tökum fram allt
það besta sem við eigum í fórum
okkar,“ segir Ísleifur. Hann bendir
hins vegar á að heimildarmyndir
séu fyrirferðarmiklar en engin
þeirra fjalli þó um stríðin í Írak
né Afganistan sem hafa verið
áberandi á kvikmyndahátíðum
undanfarin ár.
Opnunarmyndin er brasilíska
kvikmyndin Tropa De Elite.
Myndin lýsir störfum sérsveitar
lögreglunnar á strætum Rio de
Janeiro sem hefur það eitt að
markmiði að útrýma eiturlyfja-
barónum, þjófum og spilltum
löggum af götum borgarinnar.
Hún er byggð á sögu tveggja með-
lima þessarar sveitar og segir
Ísleifur að Tropa De Elite gefi
hinni stórkostlegu Cide de Deus
ekkert eftir. „Þetta er í raun hin
hliðin. Þessir náungar eru lítið
fyrir að handtaka hina grunuðu,
setja þá í járn og kynna þeim rétt-
indi sín heldur eru sakamennirnir
bara skotnir á staðnum án dóms
og laga,“ útskýrir Ísleifur en
Tropa De Elite fékk Gullbjörninn
í Berlín.
Af öðrum myndum nefnir
Ísleifur heimildarmyndina Surf-
wise sem hann telur að eigi eftir
að koma mörgum á óvart. Myndin
fylgir eftir ferðalagi læknisins
„Doc“ Paskowitz um Bandaríkin á
sjöunda áratug síðustu aldar.
Paskowitz ákvað að segja skilið
við læknavísindin, kaupa sér hús-
bíl og fara með fjölskylduna sína í
ferðalag um heimalandið. Hann
sá til þess sjálfur að börnin fengju
menntun og hafði ákaflega sér-
stakar skoðanir á heilbrigði og
kynlífi en Paskowitz eignaðist alls
níu börn sem öll bjuggu í
húsbílnum. Brimbretti áttu þó
hug hans allan og milli þess að
keyra um götur Bandaríkjanna og
kenna börnunum sínum um lands-
ins gagn og nauðsynjar var tíman-
um eytt í að leita að réttu öldunni.
Af öðrum myndum nefnir Ísleifur
ísraelsku kvikmyndina The
Band‘s Visit og heimildarmyndina
King of Kong. - fgg
Bíósukk Græna ljóssins
BÝÐUR Í VEISLU Ísleifur B. Þórhallsson og félagar hjá Græna ljósinu standa fyrir
Bíódögum í Regnboganum.
Þær eru fáar myndirnar í ár sem
ég hef beðið með jafn mikilli eft-
irvæntingu og mynd meistara
Martin Scorsese um hljómsveit-
ina góðkunnu Rolling Stones. Þær
eru ekki margar heimildarmynd-
irnar um hljómsveitina og stendur
hin frábæra Gimme Shelter einna
helst upp úr, en í henni var fjallað
um tónleikaferð hljómsveitarinn-
ar í Bandaríkjunum árið 1969 og
þá atburði sem áttu sér stað í
ferðinni. Gegnum árin hafa verið
gefnir út tónleikar með Stones á
DVD sem hafa tekist misvel; The
Bridges to Babylon sem var tekin
á ferðalagi þeirra ‘97-’98 var arfa-
slök vegna lélegrar myndatöku
og núna síðast The Biggest Bang
sem heppnaðist afar vel þar sem
þeir spiluðu fyrir eina og hálfa
milljón áhorfenda í Ríó.
Í sjálfu sér er Shine a Light
ekki mikil heimildarmynd því
Scorsese fjallar lítið sem ekkert
um hljómsveitina að undanskild-
um 20 mínútum þar sem gömul
viðtöl eru sýnd. Gaman hefði
verið að sjá Scorsese fjalla meira
um sögu hljómsveitarinnar, en
það bíður betri tíma. Myndin er
nefnilega meira tónleikamynd en
nokkurn tímann heimildarmynd.
Í byrjun myndarinnar má fylgj-
ast með þeirri ringulreið sem
fylgir tónleikahaldinu og þeim
lúxus sem fylgir því að vera sinn
eigin herra og geta slegið slöku
við fyrir stóra tónleika.
Þrátt fyrir það þá standa Stones
fyrir sínu; opnunarlag tónleik-
anna er Jumpin’ Jack Flash sem
setur þvílíka eðal stemningu sem
heldur áfram með Shattered.
Áfram heldur fjörið með gestum
á borð við Jack White úr The
White Stripes, Buddy Guy og
Christina Aguilera. Stemningin
nær hápunkti með Sympathy for
the Devil, Start Me Up og Brown
Sugar. Alla tónleikana er ekki
slegið slöku við og þeytist Mick
Jagger út um allt sviðið eins og
honum er einum lagið.
Myndataka myndarinnar er
undantekningarlaust sú besta
sem sést hefur í tónleikamynd.
Scorsese hefur með sér í liði
Robert Richardson, tvöfaldan
Óskarsverðlaunahafa sem sér um
yfirstjórn myndatökunnar og
leiðir teymi sem hefur hlotið
þrenn Óskarsverðlaun og sex til-
nefningar.
Áralangri eftirvæntingu um
það hvort Rolling Stones muni
einhvern tímann koma hingað til
Íslands, meðan hljómsveitin rokk-
ar sig inn í ellina, er að vissu leyti
svarað. Það er dálítið langsótt að
bera saman tónleika og tónleika-
mynd en þessi glimrandi stemn-
ing sem skapast á tjaldinu er betri
en ég hef upplifað á tónleikum
hérlendis. Ég mæli með að sem
flestir grípi tækifærið til að sjá
Rolling Stones (og það á viðráðan-
legu verði) á tónleikum í Shine a
Light. Áhorfendur sem og hörð-
ustu aðdáendur verða ekki svikn-
ir af þessari frábæru mynd.
Vignir Jón Vignisson - Topp5.is
Gamlir menn í góðum gír
KVIKMYNDIR
Shine a Light
Leikstjóri: Martin Scorsese
★★★★
Frábær tónleikamynd um frábæra
hljómsveit.