Fréttablaðið - 11.04.2008, Side 77

Fréttablaðið - 11.04.2008, Side 77
FÖSTUDAGUR 11. apríl 2008 Hljómsveitin Soundspell frá Sandgerði gerði sér lítið fyrir og vann alþjóðlegu sönglagakeppn- ina International songwriting contest, en keppnin er ein sú stærsta sinnar tegundar í heimi. Það var lagið Pound sem skilaði drengjunum þessum verðlaunum og kepptu þeir við helstu undra- börn tónlistarheimsins en flest þeirra starfa eingöngu við tónlist. Meðlimir Soundspell eru hins vegar allir í námi og sinna tónlistinni samhliða því. Dóm- nefndin í keppninni var heldur ekki af verri endanum því hana skipuðu menn á borð við Jerry Lee Lewis, Tom Waits, Frank Black úr Pixies og Robert Smith úr The Cure. Verðlaunin eru heldur en ekki af verri endanum, meðal annars fimm vikna skólavist í sumar í Berklee-tónlistarskólanum í Boston. - shs Soundspell vann keppni SOUNDSPELL Bar sigur úr býtum í alþjóðlegri lagakeppni. Hljómsveitirnar Dr. Spock, Sign og Benny Crespo‘s Gang koma fram á Nasa við Austurvöll í kvöld. Eru þetta síðustu tónleik- arnir í hringferð þeirra um landið á vegum Rásar 2. Sérstakir gestir tónleikanna í kvöld verða strákarnir í Jan Mayen. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30 og eru í beinni útsend- ingu á Rás 2. Hringnum lokað í kvöld DR. SPOCK Rokkar á Nasa í kvöld. *Vextir á SPRON Vaxtabót samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 11. apríl 2008. Vaxtaaukinn leggst inn á reikninginn um næstu áramót. A R G U S / 08 -0 15 8 Allt að 16,90% vextir +16% vaxtaauki!* Þeir sem stofna SPRON Vaxtabót á Netinu fyrir 15. apríl nk. fá 16% vaxtaauka á áunna vexti til 1. júli nk.* Nýttu þér þetta TILBOÐ og stofnaðu reikning á spron.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.