Fréttablaðið - 11.04.2008, Síða 78
46 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
ÍR-ingurinn Sveinbjörn Claessen hefur spilað einstaklega vel í
úrslitakeppninni. Sveinbjörn hefur skorað ellefu stig eða meira í
öllum fimm leikjum ÍR-inga, er með 14,2 stig að meðaltali í leik
og hefur hitt úr tveimur þriðju skota sinna, þar af 7 af 9 skotum
fyrir utan þriggja stiga línuna. Sveinbjörn skoraði 19 stig í 17 stiga
sigri ÍR á Keflavík í öðrum leiknum sem er persónulegt met hjá
honum í úrslitakeppni.
„Þetta er ofboðslega gaman og við erum að spila
flottan körfubolta eins og staðan er í dag. Ef við
horfum á stigatöfluna sést að allt liðið er að leggja sitt
af mörkum og við erum með gott lið. Við höfum
verið að byggja liðið markvisst upp í allan vetur
og nú erum við vonandi að uppskera,” segir
Sveinbjörn en ÍR vann aðeins 10 af 22 leikjum
sínum í deildinni og endaði í 7. sætinu.
ÍR-ingar hafa hins vegar unnið 4 af fyrstu 5
leikjum sínum í úrslitakeppninni og eru
nú einum sigri frá lokaúrslitunum.
„Við erum með tvo hrikalega hákarla
í liðinu í þeim Hreggviði og Nate og svo erum við hinir
tilbúnir þegar við fáum okkar færi. Þeir tveir eru leiðtogarn-
ir,” segir Sveinbjörn en þeir Nate og Hreggviður hafa spilað
frábærlega í úrslitakeppninni, Hreggviður hefur skorað
17,4 stig að meðaltali í leik og Nate er með 15,8 stig og
10,2 stoðsendingar að meðaltali í fimm fyrstu leikjum
úrslitakeppninnar.
„Þetta lítur vel út hjá okkur en þetta er hvergi
nærri búið því að við þurfum að vinna þrjá leiki.
Næsti leikur er í Keflavík og við vitum að þeir eiga
eftir að mæta dýrvitlausir í þann leik. Við ætlum
að gera það líka og ég sé heldur ekki ástæðu
til annars því við viljum klára þetta í þremur
leikjum,” sagði Sveinbjörn en þriðji leikurinn er
einmitt í Keflavík klukkan 19.15 í kvöld. Deildar-
meistarar Keflavíkur verða að vinna því annars
eru þeir komnir í sumarfrí.
ÍR-INGURINN SVEINBJÖRN CLAEESEN: HEFUR HITT ÚR 67 PRÓSENTUM SKOTA SINNA Í ÚRSLITAKEPPNINNI
Við erum með tvo hrikalega hákarla í liðinu
FÓTBOLTI Bjarni Þorsteinsson,
fyrrverandi landsliðsmaður,
hefur rifið skóna fram úr hillunni
á nýjan leik og ætlar að leika með
Þrótturum í Landsbankadeildinni
í sumar. Frá þessu var greint á
heimasíðu Þróttar í gær.
Bjarni, sem er 31 árs gamall, er
uppalinn hjá KR og lék þar lengst
af sínum ferli. Hann fór utan til
Þýskalands árið 1999 og gekk svo
í raðir norska liðsins Molde 2001.
Bjarni lék síðast alvöru fótbolta
sumarið 2006 en gat þá lítið spilað
vegna meiðsla. Hann tók sér í
kjölfarið frí frá knattspyrnu.
Bjarni Þorsteinsson:
Leikur með
Þrótti í sumar
BJARNI ÞORSTEINSSON Mun eflaust
styrkja lið Þróttar mikið.
HANDBOLTI Gylfi Gylfason á
frekar von á því að vera áfram í
Þýskalandi á næstu leiktíð en
útilokar þó ekki að koma heim í
sumar.
Félag Gylfa, Wilhelmshaven, er
í harðri botnbaráttu í þýsku
úrvalsdeildinni og situr í neðsta
sæti sem stendur. Reyndar eru
aðeins tvö stig í lið sem er ekki í
fallsæti. Samningur Gylfa við
félagið rennur út í sumar og
framhaldið verður ekkert skoðað
fyrr en í lok tímabils.
„Við sjáum hvað setur. Þess
utan hef ég heyrt í nokkrum
úrvalsdeildarliðum en veit samt
ekki hversu mikinn áhuga þau
hafa á mér. Það skýrist síðar. Ég
mun fara vel yfir málin í lok
leiktíðar og ef ekkert gott kemur
upp þá gæti vel farið svo að ég
komi bara heim,“ sagði Gylfi,
sem hefur spilað í Þýskalandi
síðustu átta ár en hann er
þrítugur að aldri. - hbg
Gylfi Gylfason:
Líklega áfram í
Þýskalandi
> Landa Haukarnir titlinum í kvöld?
Lið Hauka getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í N1-
deild karla í handbolta með sigri gegn Fram að Ásvöllum í
kvöld en leikurinn hefst kl. 19.15. Haukar eru sem stendur
með 38 stig þegar fimm leikir eru eftir í N1-deildinni og
með sigri geta þeir náð tíu stiga forskoti á HK og Fram.
Fram gæti þá ekki náð þeim að stigum og HK gæti í besta
falli fengið jafn mörg stig en þar sem Haukarnir hafa
nú þegar unnið þrjá af fjórum leikjum sínum
gegn HK í vetur myndu þeir vera með betri
innbyrðisstöðu og þar af leiðandi vinna
deildina.
HANDBOLTI Fannar Þorbjörnsson
hefur ákveðið að spila með
Stjörnunni næsta vetur. Hann
hefur undanfarin ár leikið með
Fredericia á Jótlandi.
Magnús Kári Jónsson var svo
ráðinn þjálfari kvennaliðs Gróttu
í gær til næstu þriggja ára. - hbg
Félagaskipti í handboltanum:
Fannar fór í
Stjörnuna
KÖRFUBOLTI Snæfellingar unnu sinn
fjórða leik í röð í úrslitakeppni
Iceland Express-deildar karla með
79-71 sigri á Grindavík í Stykkis-
hólmi í gærkvöldi. Snæfell er þar
með 2-0 yfir í undanúrslitaeinvígi
liðanna og þarf aðeins einn sigur
til viðbótar til að tryggja sér sæti í
lokaúrslitum í þriðja sinn.
Grindvíkingar byrjuðu leikinn
vel, skoruðu 14 stig úr hraðaupp-
hlaupum í fyrsta leikhlutanum og
leiddu 25-14 eftir hann. Smám
saman tókst Snæfellingum hins
vegar að hægja á leiknum og hægt
og rólega tóku þeir völdin. Snæfell
skoraði síðan 16 af fyrstu 23 stig-
um seinni hálfleiks og náðu frum-
kvæðinu, sem þeir héldu út leik-
inn og unnu sannfærandi sigur.
Hver að bauka í svona horni
Friðrik Ragnarsson, þjálfari
Grindavíkur, var niðurlútur eftir
leik enda var furðulegt að sjá
Grindavíkurliðið koðna niður eftir
frábæra byrjun. „Við spiluðum
ágætlega fyrstu tíu mínúturnar og
vorum þá í ökumannssætinu en
svo verður þetta bara andlaust hjá
okkur, hver fer að bauka í sínu
horni og þá erum við bara ekki
góðir. Menn þurfa að vera
stemmdir, menn þurfa að vinna
saman og það þarf að ljóma af
mönnum. Það var fínt í fyrri hálf-
leik en síðan var það ekki til í
seinni hálfleik. Ég veit ekki hvort
okkur hungrar ekki nóg í titil en
það virðist vera meira hungur í
þeim en okkur,“ sagði Friðrik
Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur.
„Við erum komnir með bakið
upp við vegg og tímabilið er bara
búið ef við töpum á heimavelli á
laugardaginn. Ég trúi því ekki
fyrr en ég tek á því að menn vilji
láta skjóta sér út 3-0. Nú þurfum
við bara að hugsa um að vinna
þennan eina leik og þetta er bara
eini leikurinn í heiminum. Við
þurfum að klára hann með stæl
en við þurfum að breyta miklu til
þess að það gerist,“ sagði Frið-
rik.
Þeir drepa okkur ef þeir hitta
Hlynur Bæringsson átti frábæran
leik í liði Snæfells og fór að þessu
sinni létt með Bandaríkjamanninn
Jamaal Willimas. „Þetta leit ekki
vel út í byrjun því þeir voru að
setja mjög erfið þriggja stiga skot
beint í grillið á okkur og voru líka
að skora úr hraðaupphlaupum.
Það er leiðin til þess að skora hjá
okkur og við viljum að það sé leið-
in til þess að skora hjá okkur. Ef
þú gerir það þá kemstu tíu stigum
yfir. Mér fannst við ekki vera svo
slakir þó að við höfum lent undir,“
sagði Hlynur, sem segir Snæfells-
liðið leggja áherslu á að loka á
þriggja stiga skyttur Grindavík-
ur.
„Ég held að ég hafi ekki séð eitt
einasta galopið þriggja stiga skot
hjá þeim í kvöld og það er eins
gott því að við vitum það að ef
þessir menn hitna eru þeir búnir
að drepa okkur eins og sást í byrj-
un,“ sagði Hlynur.
Hlynur lenti í vandræðum með
Jamaal Williams í fyrsta leiknum
en í gær hélt hann honum í 10 stig-
um og 33 prósenta skotnýtingu.
„Ég reyndi að skoða hann vel og
þjálfarinn hjálpaði mér með það
hvernig væri best að dekka hann.
Ég fékk líka góða hjálp,“ sagði
Hlynur, sem náði tröllatvennu í
gær, skoraði 20 stig, tók 21 frákast
og varði 7 skot.
„Það er sjaldgæft að ná að verja
sjö skot og ég man að einu sinni
blokkaði ég sjö skot yfir allt árið.
Þetta var bara ágætt hjá mér í dag
og skiptir mestu að ég var að
standa mig eitthvað betur en í
vörninni í síðasta leik. Jamaal var
þá alltaf að komast of nálægt
körfunni og ég varð bara að bæta
það. Þetta lítur mjög vel út en við
erum bara hálfnaðir að okkar tak-
marki í ár,“ sagði Hlynur.
Slokknaði á Grindavík
Hlynur átti stórleik hjá Snæfelli,
Sigurður Þorvaldsson og Anders
Katholm léku mjög vel eins og í
fyrsta leiknum og liðið fann ekk-
ert fyrir því þótt að Justin Shouse
ætti leik undir meðallagi og tapaði
meðal annars 7 boltum.
Adama Darboe og Páll Axel Vil-
bergsson fóru mikinn í upphafi
leiks og voru með 17 stig og 78
prósent skotnýtingu í fyrsta leik-
hluta en voru síðan aðeins með 12
stig og náðu aðeins 11 skotum á
körfuna það sem eftir var leiks.
Þorleifur Ólafsson fann heldur
ekki körfuna eins og í fyrsta leikn-
um og munar um minna.
ooj@frettabladid.is
Hlynur fór hamförum í Fjárhúsinu
Hlynur Bæringsson náði tröllatvennu í Hólminum í gærkvöldi og Snæfellingar komu til baka eftir slæma
byrjun. Snæfell vann 79-71 og er nú aðeins einum sigri frá því að komast í úrslitarimmuna.
FLJÓTUR Hinn magnaði bakvörður Snæfells, Justin Shouse, keyrir hér framhjá Grinda-
víkurvörninni í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STEMNING Hann var þétt setinn bekkurinn í Hólminum í gær og leikmenn Snæfells
þökkuðu áhorfendum fyrir stuðninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
STÓRLEIKUR Hlynur Bæringsson fór hamförum í gær. Skoraði 20 stig, tók 21 fráköst
og varði 7 skot. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SNÆFELL-GRINDAV. 79-71
Stig Snæfells: Hlynur Bæringsson 20
(21 frák.), Justin Shouse 16, Sigurður
Þorvaldsson 14, Anders Katholm 13,
Slobodan Subasic 5, Magni Hafsteins-
son 5, Jón Ólafur Jónsson 3, Árni
Ásgeirsson 3.
Stig Grindavíkur: Adama Darboe
16, Páll Kristinsson 13, Páll Axel
Vilbergsson 13, Jamaal Williams 10
(12 frák.), Þorleifur Ólafsson 8, Igor
Beljanski 6, Helgi Jónas Guðfinsson 5.