Fréttablaðið - 11.04.2008, Blaðsíða 86
54 11. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ VAR ÉG AÐ SPÁ?
LÁRÉTT 2. álits 6. tvíhljóði 8. gums 9.
skilaboð 11. bókstafur 12. vegna 14.
aurasál 16. í röð 17. ról 18. eyrir 20.
íþróttafélag 21. velta.
LÓÐRÉTT 1. sitjandi 3. verkfæri 4.
skerðing 5. fyrirboði 7. umhirða 10.
skjön 13. dvelja 15. skrifa 16. raus 19.
ullarflóki.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. mats, 6. au, 8. lap, 9. sms,
11. ká, 12. sökum, 14. nánös, 16. mn,
17. ark, 18. aur, 20. kr, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. rass, 3. al, 4. takmörk,
5. spá, 7. umönnun, 10. ská, 13. una,
15. skrá, 16. mas, 19. rú.
Forsetafrúin Dorrit Moussaieff
verður með skófluna á lofti í
tveggja daga heimsókn forseta-
hjónanna til Skagafjarðar í næstu
viku. Skagfirðingar eru í óða önn
að leggja lokahönd á undirbúning
fyrir heimsókn forsetahjónanna
og verður öllu tjaldað til hjá
norðan mönnum. Dagskrá forseta-
hjónanna er ansi viðamikil og
Dorrit mun vart hafa undan að
moka fyrir norðan. Á mánudaginn
tekur hún fyrstu skóflustunguna
að nýjum leikskóla neðan Tún-
hverfis með aðstoð leikskólabarna
á Sauðárkróki en síðar um kvöldið
verður blásið til mikillar veislu í
íþróttahúsinu á Sauðárkróki með
íbúum sveitarinnar.
Á þriðjudaginn koma forseta-
hjónin síðan í heimsókn á lista-
setrið að Bæ við Hofsós sem
athafnakonan Steinunn Jónsdóttir
hefur byggt upp og vakið hefur
mikla athygli. Seinna um daginn
er síðan komið að stóru stundinni
fyrir íbúa Hofsóss og aðra nær-
sveitarmenn en þá verður fyrsta
skóflustungan tekin að glæsilegri
sundlaug sem Steinunn og Lilja
Pálmadóttir gefa íbúum sveitar-
félagsins. Fréttablaðið náði tali af
Lilju, sem var að vonum ánægð
með þátttöku forsetahjónanna, en
hún sagði enga ákvörðun hafa
verið tekna um hvort forsetafrúin
yrði ein með skófluna eða hvort
einhverjir fleiri kæmu þar að. En í
ljósi athafnagleði forsetafrúarinn-
ar í heimsókninni væri
ljóst að hún yrði að
koma með stígvél
með sér. „Við erum
að bræða þetta með
okkur og vinnum náið að skipu-
lagningunni með embættinu,“
segir Lilja og útilokaði ekki að
Ólafur Ragnar Grímsson yrði
jafnvel fenginn til að moka aðeins
með líka. „Við gætum því verið
fjögur með skóflur við þetta til-
efni,“ bætir Lilja við en að athöfn-
inni lokinni verður boðið til kaffi-
samsætis í Höfðaborg.
Lilja og Steinunn skrifuðu undir
viljayfirlýsingu 19. júní á síðasta
ári um byggingu sundlaugar á
Hofsósi. Sundlaugin verður 25
metra löng, með heitum potti og
þjónustumiðstöð. Arkitektinn
Sigríður Steinþórsdóttir teiknar
sundlaugina sem rís vestan við
Staðarbjarg og geta gestir meðal
annars horft yfir til Drangeyjar á
meðan þeir flatmaga í hinni marg-
rómuðu náttúrufegurð Skaga-
fjarðar. freyrgigja@frettabladid.is
LILJA PÁLMADÓTTIR: DORRIT TEKUR FYRSTU SKÓFLUSTUNGU AÐ SUNDLAUG
Dorrit með skófluna á lofti
í Skagafirði í næstu viku
„Já, ég kemst sennilega aldrei
nær atvinnumennsku í þessu
sporti en einmitt svona,“ segir
Logi Bergmann Eiðsson en hann
verður áberandi í golfumfjöllun
Stöðvar 2 sport í sumar. Þegar
Fréttablaðið náði tali af honum í
gær var Logi að dusta rykið af
kylfunum og hugðist fara upp í
Bása til að slá nokkra bolta.
Logi hyggst varpa ljósi á golfí-
þróttina frá ýmsum hliðum og
skemmtanagildið verður í fyrir-
rúmi. Stóra verkefnið verður
hins vegar fjáröflunarferð fyrir
MND-félagið en sjónvarpsmað-
urinn hyggst afreka það að spila
átján holur, á átján völlum,
hringinn í kringum landið. Með
honum í för verða tveir afreks-
kylfingar og svo einn
áhugamaður. „Við ætlum
að reyna að finna
fallegustu holurnar á
landinu og spila þær,“
segir Logi, sem er þegar
farinn að undirbúa þetta
viðamikla verkefni af
miklum krafti. „Það eru
nokkrir lausir endar en ég
er bjartsýnn á að
þetta takist hjá
okkur,“ segir
Logi.
Logi er liðtæk-
ur kylfingur
sjálfur, með 11,7
í forgjöf og með-
limur í hinum
virta golffélags-
skap Stullunum en
meðal félagsmanna
eru Stefán Hilm-
arsson og
alþingis-
mennirnir Sigurður Kári Kristj-
ánsson og Bjarni Benediktsson.
Logi ætlar að sjálfsögðu að vera
með í þeim félagsskap í sumar
auk þess að leika listir sínar á
Dalvík þar sem hann og eigin-
konan Svanhildur Hólm eiga
glæsilegt hús. Spurður hvernig
gangi að draga konuna með út á
völlinn segir Logi að hún nenni
þessu ekki, golfið taki of langan
tíma fyrir hennar smekk. „En ég
er ekki búinn að gefast upp enda
hefur Svanhildur sýnt þegar hún
tekur í kylfurnar að hún er mjög
efnileg.“
- fgg
Logi ætlar hringinn á sólarhring
„Já, fyrsta sýningin var á sunnu-
daginn og gekk mjög vel. Merki-
legt þótti mér að það er kona sem
leikur Gleðiglaum, sem er vondi
kallinn í sögunni, en ekki karl.
Gleðikona í staðinn fyrir gleði-
karl,“ segir Andri Snær Magnason
rithöfundur.
Leikrit Andra Snæs, Blái hnött-
urinn, heldur áfram för sinni um
heiminn. Sjálft Maxim Gorky-leik-
húsið í Berlín hefur nú tekið verk-
ið til sýninga. Andri Snær kom því
ekki við að vera viðstaddur en
hefur haft spurnir af uppfærsl-
unni. Bláa hnöttinn skrifað Andri
árið 1999 og var það sýnt við mikl-
ar vinsældir í Þjóðleikhúsinu árin
2001 til 2003. „Já, það nokkuð vel,“
segir Andri Snær hógvær. Síðan
hefur verkið ferðast vítt og breitt
um heiminn að því er virðist til-
viljunarkennt. Andri Snær er með
umboðsskrifstofu bæði í Dan-
mörku og Þýskalandi en uppfærsl-
ur verksins hafa einhverra hluta
vegna ekki verið að undirlagi
þeirra heldur hefur sendiráðs-
prestur í London komið verkinu á
framfæri í að minnsta kosti tveim-
ur tilvika. „Já, hann er umboðs-
maður Guðs og svo minn,“ segir
Andri Snær.
Blái hnötturinn var settur upp í
Toronto í Kanada árið 2005 og
fylgdist Andri Snær vel með þeirri
uppfærslu. Var sýningin tilnefnd
sem sýning ársins þar en í Toronto
er leiklist í hávegum höfð. Verkið
var sett upp í Finnlandi, í stóru
leikhúsi sem er skammt utan Hels-
inki en Andri Snær var viðstaddur
þá sýningu. Hann segir að verkið
hafi einnig verið sett upp í Pakist-
an, leiklesið í London og nýverið
var hún sett upp í Detroit, eða
Canton sem er smáborg á stærð
við Ísland. Nú er verið að skoða
möguleika á því að setja verkið
upp í London. - jbg
Blái hnötturinn í Berlín
ANDRI SNÆR Á góðan að sem er sendi-
ráðsprestur í London sem er umboðs-
maður Andra og Guðs.
MOKAR FYRIR NORÐAN Dorrit Moussaieff ætlar að moka aðeins fyrir norðan en hún
tekur fyrstu skóflustungurnar að nýjum leikskóla og nýrri sundlaug.
ATHAFNAKONUR Þær Lilja Pálmadóttir
og Steinunn Jónsdóttir ætla að gefa
íbúum Hofsóss og Skagafjarðar glæsilega
sundlaug með öllu.
MEÐ KYLFUNA Á LOFTI Logi Berg-
mann Eiðsson ætlar að reyna
að fara hringinn í sumar
á einum sólarhring
og spila átján
holur á átján
völlum.
„Maður þarf helst að vera inn-
an um kóteletturnar að árita.
Þangað kemur miklu breiðari
hópur en í plötubúðirnar.“
Jón Ólafsson í DV, desember 1988.
„Mig minnir að ég hafi sagt þetta eftir að
okkur var troðið að árita með rassinn í
kjötborðið í Hagkaupum Skeifunni, held
ég. Þetta eru öfugmæli og átti líklegast
að vera fyndið, ég var bara ekki með
betri húmor en þetta á þessum tíma,“
segir Jón nú.
Tökur hófust á Svörtum englum
í gær, sex sjónvarpsþáttaröð sem
byggir á krimma Ævars
Arnar Jósepssonar.
Leikstjóri er Óskar
Jónasson.
Þeim sem
hafa lesið
bækur
Ævars er ekki síst minnis-
stæð fígúran Guðni úr
lögreglumannateyminu.
Guðni er erkidrullusokk-
ur; kvenremba, rasisti
og kvikindi. Það
var höfundurinn
sjálfur sem óskaði
sérstaklega eftir því
við leikstjórann að sá
sem fenginn yrði til að
túlka Guðna væri
Steinn Ármann
Magnússon. Ævar
og Steinn voru saman í Flensborg
á sínum tíma en ekki mun þó vera
um hefndarráðstöfun glæpasagna-
höfundarins að ræða heldur miklu
fremur að hann treysti Steini sem
leikara því Guðni er vandmeðfarin
persóna, fremur tragísk en kómísk.
Jón Ársæll ferðast um
allt litróf hins mannlega í
þáttum sínum Sjálfstætt
fólk. Þannig var síðasti
þáttur hjartnæmur
og til minningar um
Ólöfu Pétursdóttur.
En næstur á dagskrá
er gleðigjafinn Geir
Ólafsson söngvari.
Jón Ársæll gersamlega
féll fyrir viðmælanda sínum og
skilur ekki hvers vegna hann er
ekki elskaður og dáður af hverju
mannsbarni. Og telja má víst að
Geir verði ánægðari með viðtal
sitt við Jón en við Erp
Eyvindarson sem tók
frægt viðtal við Geir
nýverið sem Ebbi sjón-
varpsstjóri. Það viðtal
fór þversum í Geir
og vildi hann banna
birtingu þess.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
smáralind & kringlustærðir 14-30
vorútsala
40-60%
afsláttur af völdum vörum
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Kristófer Helgason.
2 Eiríkur Önundarson.
3 Meira frelsi.