Fréttablaðið - 16.04.2008, Page 33
MIÐVIKUDAGUR 16. apríl 2008 25
Ben er einn helsti stærðfræðisnill-
ingur MIT-háskólans í Bandaríkj-
unum en vantar peninga til að
halda áfram námi. Til sögunnar er
kynntur prófessorinn Micky, sem
kynnir Ben fyrir litlum hópi ann-
arra snillinga sem stunda það að
telja spil í fjárhættuspilinu 21. Þau
fljúga reglulega til Las Vegas og
raka þar inn peningum en Ben seg-
ist vilja hætta um leið og hann
hefur fengið nægilega mikið til að
borga námið sitt.
21 er lauslega byggð á sannri
sögu sem kom fram í bókinni Bring-
ing Down the House og er nú kvik-
mynduð af leikstjóra Legally
Blonde og Monster In Law. Sagan
fær allsherjar Hollywood-meðferð,
og formúlan er allsráðandi. Til
dæmis er siðferðissagan einkar
dæmigerð; aðalpersónan byrjar
saklaus, lætur græðgina ná tökum á
sér en hlýtur endurlausn að lokum.
Illa tekst til við að gæða persónur
myndarinnar lífi og nær allar auka-
persónurnar eru einhliða persónu-
gerðir. Megináherslan virðist lögð á
að hafa myndina flotta og stílfærða,
sem heppnast illa vegna óstyrkrar
leikstjórnar. Mannlega dýptin geld-
ur fyrir það og spennan í myndinni
fer í kjölfarið út í buskann. Aðal-
skúrkurinn í myndinni, öryggis-
vörður spilavítis, leikinn af Laur-
ence Fishburne, kemur einnig seint
til leiks og jafnvel þá reynist hætt-
an ekki mikil.
Leikarinn Jim Sturgess, sem sást
einnig í Bítlamyndinni Across the
Universe, stendur upp úr og nær
hann að skapa einlæga og trúverð-
uga persónu. Þekktasti leikari
myndarinnar, Kevin Spacey, fer vel
með sitt hlutverk sem prófessorinn,
og Fishburne sömuleiðis, þótt þeir
þurfi eitthvað að huga betur að
kvikmyndavali sínu. Kate Bos-
worth, sem lék á móti Spacey í
Superman Returns, er einnig fín.
Sagan sem 21 byggir á gat aug-
ljóslega getið af sér mun siðferðis-
lega flóknari mynd. Hún átti betra
skilið en þetta, en þessi atlaga er líf-
laus, innantóm, og að lokum fljót-
gleymd. Loftur Ingi Bjarnason - Topp5.is
Væringar í Vegas
KVIKMYNDIR
21
Leikstjóri: Robert Luketic. Aðal-
hlutverk: Kevin Spacey, Laurence
Fishburne, Kate Bosworth, Liza
Lapira, Josh Gad, Jim Sturgess.
★★
Misheppnuð tilraun til að gæða flotta
sögu lífi á hvíta tjaldinu.
Ásakór 13-15, 203 Kópavogur
Bóas
Sölufulltrúi
699 6165
boas@remax.is
Þórarinn
Jónsson Hdl.
Löggiltur
fasteignasali Hringdu núna 699 6165
100% þjónusta fyrir þig
Nánari upplýsingar á staðnum !
Sýningaríbúð
Húsgögn frá Tekk
STÓRGLÆSILEGAR ÍBÚÐIR
TILBÚNAR TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING !
Verð frá 27.500.000 kr
Opið hús í dag
kl. 17.00 – 18.30
Verk
taki
lána
r all
t að
95%
Hin árlega stuttmyndasýning
BANFF stendur nú yfir í Háskóla-
bíói í boði Íslenska alpaklúbbsins
og Cintamani. Um er að ræða
myndir af afrekum og ævintýrum
einstaklinga sem stunda fjalla-
mennsku af ýmsum toga, svo sem
klifur, snjóbretti og fjallahjóla-
mennsku.
Íslenski alpaklúbburinn hefur
staðið fyrir komu þessarar stutt-
myndasýningar hingað til lands
um árabil og er óhætt að segja að
hún sé orðin ómissandi viðburður
hjá öllum sem hafa áhuga á fjalla-
mennsku.
Síðari dagur sýningarinnar
hefst í Háskólabíói í kvöld klukk-
an 20 þar sem sex áhugaverðar
myndir verða sýndar. Miðaverð
fyrir félaga í Ísalp er 1.000 krónur
en 1.200 krónur fyrir aðra.
Úti í náttúrunni
Á SNJÓBRETTI Stuttmyndasýningin
BANFF stendur yfir í Háskólabíói.
Ráðstefna um umöllun ölmiðla um innytjendur og arot verður haldin í Salnum, Kópavogi,
föstudaginn . apríl kl. .-
.. Alþjóðahús, félags- og tryggingamálaráðuney
ð,
Fjölmenningarsetur, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Blaðamannafélag Íslands og Kópa-
vogsbær standa að ráðstefnunni. Fundarstjóri: Birgir Guðmundsson, lektor í ölmiðlafræði
við Háskólann á Akureyri.
. Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss
. Jóhanna Sigurðardór, félags- og tryggingamálaráðherra
. Eru arot útlendinga öðruvísi en Íslendinga? Rannveig Þórisdór, deildarstjóri
upplýsinga- og áætlanadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
. Arot, staðalmyndir og innytjendur Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði
við Háskóla Íslands
. Sjónarhorn blaðamannsins Rúnar Pálmason, blaðamaður á Morgunblaðinu
. The media: a tool or an obstacle for integra
on?|Fjölmiðlar: Hjálp eða hindrun í
aðlögun innytjenda? Arash Mokhtari, verkefnisstjóri hjá Quick response í Svíþjóð
. Innytjendur og erlent vinnua í ölmiðlum
Magnús Heimisson,
forstöðumaður Fjölmiðlagreininga, Credinfo Ísland
.
. : !"# $! /% #
Bloggið: Ábyrgðarlaust hjal? Ingvar Hjálmarsson, netstjóri mbl.is
Útlendingar í ölmiðlum Joanna Dominiczak, kennari og stjórnarmaður Samtaka
kvenna af erlendum uppruna
: Guðbjörg Hildur Kolbeins, doktor í ölmiðlafræði
. : !& '$
Hvað má lögreglan segja? Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
Skip
r þjóðerni fólks máli í fré(um af arotum? Áslaug Skúladór, formaður
Félags fréamanna og fréamaður á Útvarpinu
: Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands
.
. !
. %#!"#!
Dane Magnússon, formaður Félags an-rasista
Þorbjörn Broddason, prófessor við Háskóla Íslands
Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Jón Kaldal, ritstjóri Fréablaðsins
. # !
# ) !, * , $!+ . )
FÉLAGS- OG
TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTI FJÖLMENNINGARSETUR
BLAÐAMANNAFÉLAG
ÍSLANDS
LÖGREGLUSTJÓRINN Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINUALÞJÓÐAHÚS KÓPAVOGSBÆR
. .
@ .
|
e
s
tu
a
ri
o
@
in
te
rn
e
t.
is
ÝTIR FRÉTTAFLUTNINGUR UM GLÆPI ÚTLENDINGA UNDIR FORDÓMA?
RATA GLÆPIR FREMUR Í FJÖLMIÐLA EF UM ÚTLENDING ER AÐ RÆÐA?
FREMJA INNFLYTJENDUR FLEIRI GLÆPI EN ÍSLENDINGAR?
MÁ SEGJA ALLT Á BLOGGINU?
HINN GRUNAÐI ER
ÚTLENDINGUR!