Fréttablaðið - 16.04.2008, Side 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Mamma, ég er að hugsa um það þegar ég verð stór,“ sagði
fimm ára dóttir mín áhyggjufull
um daginn. „Sko, ef ég verð Þyrni-
rós þarf ég að sofa svo rosalega
lengi, ef ég verð Mjallhvít verð ég
að vera í bláum kjól og mér finnst
hárið á Öskubusku ekki mjög
flott.“
VALKVÍÐINN var skiljanlegur
hjá blessuðu barninu. Þarna voru
samanlagt þrjár framtíðarstöður í
boði dregnar upp af Disney og
engin þeirra alveg nógu kræsileg
til að hún vildi gagnrýnislaust
helga sig hlutverkinu til lífstíðar.
Útlitið var ekki nógu gott, senni-
lega yrði hún að sætta sig við ein-
hverjar málamiðlanir. Ef til vill
var skásti kosturinn að vera þessi
þarna í bláa kjólnum. Að minnsta
kosti var það betra en hrjóta
aðgerðarlaus áratugum saman eða
sitja uppi með lummulega hár-
greiðslu alla ævi, ha? Sennilega
grunaði barnungann ekki að skelf-
ingarsvipurinn á móður hennar
stafaði síst af hluttekningu með
þessum þröngu valmöguleikum.
Ekki einu sinni í þykjustunni tókst
mér að sýna samúð með hugmynd-
um dóttur minnar um framtíðina,
heldur hríslaðist dálítill straumur
af ískaldri skelfingu niður hrygg-
lengjuna: Hvar tókst okkur að
klúðra skilaboðunum svona ræki-
lega?
HÉR höfum við í gríð og erg vand-
að okkur meira í uppalendahlut-
verkinu en öllum öðrum verkefn-
um í lífinu. Verið vakin og sofin
dag og nótt yfir velferð barnanna,
raðað í þau hollustunni, andlegri
og líkamlegri, spáð og spekúlerað,
haldið prinsippin að mestu, lært af
reynslunni og verið sveigjanleg og
staðföst í hárnákvæmum hlutföll-
um. Boðað kærleika, stappað stáli,
brýnt sjálfstæði og úthýst Barbie.
Reynt að halda löstunum úr aug-
sýn og vera undursamlegar fyrir-
myndir eftir því sem vitið hefur
leyft. Mamman tengdi baðvaskinn
á meðan pabbinn lagði fallega á
borð. Og öfugt.
OG svo kemur þetta. Litla hexið
sem við spaugum stundum með að
sé Egill Skallagrímsson endurbor-
inn þegar hún sýnir klærnar, veltir
fyrir sér eigin framtíð í hlutverki
síþreyttrar Þyrnirósar, hinnar
seinfæru Mjallhvítar eða gólf-
tuskunnar Öskubusku. Þetta eru
kostirnir og fleira ekki í boði.
ÍSMEYGILEGUR markaðs-
áróðurinn lætur ekki að sér hæða.
Ekki skil ég aðferðirnar en rann-
sókn stendur yfir. Svo og rækileg
endurmenntun.
Öskubuska
Skallagrímsson
5.51 13.27 21.05
5.29 13.12 20.58
Í dag er miðvikudagurinn 16.
apríl, 107. dagur ársins.
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
T
O
Y
4
19
16
0
4/
08
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Land Cruiser - Tákn um frelsi
Land Cruiser sameinar hörku og mýkt, orku og lipurð, áræðni,
munað og fullkominn tæknibúnað. Fyrsta flokks innrétting tryggir
þægilegan og ánægjulegan akstur. Fáguð og viðbragðsfljót vélin ber
þig hvert sem leið liggur og það er stórkostlegt að sitja undir stýri.
Land Cruiser er hlaðinn hátæknibúnaði sem eykur öryggi og þægindi í akstri.
Reynsluaktu Land Cruiser og upplifðu frelsið
Verð frá 5.950.000 kr.
Verð bíls á mynd með 35" breytingu er 7.230.000 kr.
Njóttu þess að vera frjáls