Fréttablaðið - 06.05.2008, Qupperneq 2
2 6. maí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Er miki› álag
í skólanum?
LGG+ er fyrirbyggjandi vörn!
Streita og kví›i, skyndibitafæ›i, sætindi,
stopular máltí›ir – allt þetta dregur úr
innri styrk og einbeitingu, veldur
þróttleysi og getur raska› bæ›i
ónæmiskerfinu og meltingunni.
LGG+ er sérstaklega þróa› til a›
vinna gegn þessum neikvæ›u
áhrifum og dagleg neysla
þess tryggir fulla virkni.
H
V
Í T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Jón, hvernig er að vera loksins
orðinn heiðurs-hnakki?
„Næst er það fálkaorðan.“
Jón Ólafsson og félagar hans í hljóm-
sveitinni Nýdönsk fengu afhent sérstök
heiðursverðlaun á Hlustendaverðlaunum
FM957 um helgina.
UMFERÐARÖRYGGISMÁL Gengið gegn
slysum er yfirskrift fjöldagöngu
gegn umferðarslysum sem fram
fer á fimmtudaginn, 8. maí
næstkomandi.
Með göngunni vilja göngumenn
votta fórnarlömbum slysa og
aðstandendum þeirra samúð og
stuðning og vekja almenning til
umhugsunar um hve slys geta haft
alvarlegar og víðtækar afleiðingar.
Þúsundir manna tóku þátt í
göngunni í fyrra. Hópur hjúkrun-
arfræðinga stendur fyrir göng-
unni. - ovd
Fjöldaganga á fimmtudaginn:
Gengið gegn
slysum 8. maí
AUSTURRÍKI, AP Lögregla sem
rannsakar mál Josefs Fritzl
greindi frá því í gær að hún teldi
að hann hefði hafið undirbúning að
því að loka dóttur sína, Elísabetu,
inni í kjallaraprísund þegar árið
1978, þegar Elísabet var tólf ára.
Hann lét síðan verða af því þegar
hún var orðin átján ára, árið 1984.
Vísbendingin sem leiddi
lögregluna til þessara ályktana er
að Fritzl sótti árið 1978 um leyfi
hjá bæjaryfirvöldum til að gera
víðtækar breytingar á fjölbýlis-
húsi sínu í Amstetten. Verjandi
Fritzl sagði í gær sennilegt að við
málsvörn hans fyrir rétti verði
borið við geðveiki. - aa
Sifjaspellsmálið í Austurríki:
Hóf undirbún-
ing árið 1978
LÖGREGLUMÁL Sex ára stúlka
fannst heil á húfi eftir að hafa
verið saknað í tvær og hálfa
klukkustund í nágrenni Vífils-
staðavatns í Garðabæ í gær. Um
eitt hundrað björgunarsveitar-
menn með níu hunda, auk þyrlu
Landhelgisgæslunnar, leituðu
stúlkunnar.
Stúlkan var í Barnaskóla
Hjallastefnunar í Garðabæ, og
skilaði sér ekki aftur eftir
hádegishlé. Björgunarsveitarmað-
ur og kennari í skólanum fundu
stúlkuna á Vífilstaðavegi, rúmum
kílómetra frá skólanum, segir Ólöf
Snæhólm Baldursdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Slysavarnafélagsins
Landsbjargar. - bj
Stórútkall björgunarsveita:
Sex ára stúlka
hvarf úr skóla
RANNSÓKN Breiðavíkurnefndin svokallaða sem vann
að rannsókn á starfsemi Breiðavíkurheimilisins
undir stjórn Róberts R. Spanó, prófessors við
Háskóla Íslands, mun rannsaka starfsemi fleiri
vistheimila ríkisins. Nefndin var skipuð af Geir
Haarde forsætisráðherra í fyrra.
Nefndarmenn hafa sjálfir ákveðið að afla
upplýsinga um það sem átti sér stað á átta öðrum
vistheimilum. Þau heimili eru: Vistheimilið
Kumbaravogur, Vistheimilið Knarrarvogur,
Heyrnleysingjaskólinn, Stúlknaheimilið Bjarg,
Heimavistarskólinn Reykjahlíð, Heimavistarskól-
inn Jaðar, Upptökuheimili ríkisins / Unglingaheim-
ili ríkisins og Uppeldisheimilið Silungapollur.
Í fyrstu verður aflað gagna frá stjórnvöldum um
starfsemi þessara stofnana en síðar mun nefndin
taka ákvörðun um frekari aðgerðir, svo sem viðtöl
við þá sem dvöldu á heimilunum eða störfuðu þar.
Nefndin skal skila áfangaskýrslum um könnunina
til forsætisráðherra fyrir 1. júlí 2009 og 1. júlí
2010. Lokaskýrslu verður svo skilað fyrir 15. apríl
2011. Ekki hefur verið ákveðið hvort fjallað verður
um stofnanirnar sameiginlega eða hverja um sig.
- kdk
Breiðavíkurnefndin svokallaða mun kanna starfsemi fleiri vistheimila:
Átta önnur vistheimili verða könnuð
BREIÐAVÍK Ákveðið hefur verið að starfsemi fleiri vistheimila
verði könnuð.
BORGARMÁL Ólafur F. Magnússon
borgarstjóri sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær vegna ummæla sinna
um verðlaunatillögu um þróun
Vatnsmýrinnar og umfjöllunar
fjölmiðla þeim tengt. Hann vill
árétta að það sé ekki rétt túlkun á
orðum hans að hann hafi skipt um
skoðun í grundvallaratriðum.
Þar segir jafnframt að fyrir liggi
að hann telji að framtíðarþróun
Vatnsmýrarinnar eigi ekki að fela
í sér flutning flugvallar, eins og
verðlaunatillagan gerir ráð fyrir.
„Ég er hins vegar sömu skoðun-
ar og ég var í febrúar síðastliðnum
um að hafa megi verðlaunatillög-
una til hliðsjónar við uppbyggingu
á jaðarsvæðum flugvallarins, óháð
staðsetningu hans. Ég tel hins
vegar brýnt að tillagan lagi sig að
ýmsum samgöngulausnum og
skipulagslegum staðreyndum en
ekki öfugt“ segir í yfirlýsingu
borgarstjóra.
Ólafur gagnrýndi verðlaunatil-
löguna afar hart á laugardag og
sagði hana fela í sér skipulagsklúð-
ur sem gæti haft alvarlegar afleið-
ingar á þróun og uppbyggingu í
Vatnsmýri, hvort sem menn væru
fylgjandi flugvelli eða ekki.
Minnihlutinn hefur gagnrýnt
þessi orð hans og sagt skipulags-
mál svæðisins í uppnámi vegna
yfirlýsingarinnar. - shá
Borgarstjóri segir túlkun á orðum hans um vinningstillögu ranga:
Hafa má tillögu til hliðsjónar
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON Borgarstjóri
segist ekki hafa breytt um skoðun þó
orð hans hafi verið túlkuð öðruvísi
eftir harða gagnrýni á vinningstillögu
um Vatnsmýrina FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÖRYGGISMÁL „Það segir sig sjálft að þungaflutningar
og börn fara ekki saman,“ segir Jóhann Ólafsson,
aðstoðarskólastjóri Snælands skóla í Kópavogi, sem
er ósáttur við umferð vörubíla og vinnuvéla fram
hjá skólalóðinni.
Kópavogsbær er að hefjast handa við byggingu
íþróttahúss fyrir HK í Fossvogsdal. Til að komast
þar að þarf að aka niður meðfram skólalóð Snæ-
landsskóla. Börn frá sex ára aldri eru þar hlaupandi
um í öllum frímínútum. Jóhann kveðst hafa rætt
málið á þriðjudag við Gunnar Má Karlsson, umsjón-
armann fasteignaframkvæmda hjá bænum.
„Ég kvartaði fyrir hönd skólans og fór fram á að
þetta yrði ekki hér, enda eiga þungir vörubílar
ekkert erindi við skóla, og ég fékk loforð um að
þetta yrði ekki hér á meðan skólastarf væri í gangi,“
segir Jóhann sem kveðst hafa rætt við Gunnar Má á
þriðjudag fyrir viku síðan.
Þrátt fyrir að Jóhann hafi mætt skilningi hjá
bænum halda þungaflutningarnir áfram. Þannig
sagði starfsmaður skólans sem Fréttablaðið ræddi
við að það hafi vakið óhug meðal starfsmanna þar að
sjá stórri gröfu ekið á fleygiferð niður götuna við
upphaf skóladags á föstudag. Menn óttist alvarlegt
slys.
„Fólk getur ímyndað sér að sex og sjö ára krakkar
eru hlaupandi hér um á skólalóðinni og það er við
jaðar hennar sem þeir eru að keyra þessa bíla. Það
er alveg kristaltært að þetta tvennt fer ekki saman.
Og það þetta skuli halda áfram er alveg á skjön við
það sem mér var sagt að yrði,“ bætir Jóhann við og
vísar á Gunnar Má varðandi frekari upplýsingar um
framkvæmdirnar við íþrótta húsið. Gunnar Már var
hins vegar í fríi frá vinnu í gær og ekki náðist í Þór
Jónsson upplýsingafulltrúa.
Formaður foreldrafélagsins seg ist sjálfur starfa
hjá verktakafyrirtæki og því hafa skilning á því að
menn þurfi að koma sér fyrir á byggingarlóðum.
„En ég treysti því að eftirlitsmenn frá bænum
fylgist með því að allt fari rétt fram. Stjórn for-
eldrafélagsins verður með fund á þriðjudaginn. Þá
er þetta mál á dagskrá og við förum eflaust og
skoðum aðstæður,“ segir Sigurður Arnar Sigurðs-
son. gar@frettabladid.is
Þungaflutningar við
skólalóð gagnrýndir
Aðstoðarskólastjóri Snælandsskóla segir ekki staðið við fyrirheit frá bæjar yfir -
völdum um að láta af þungaflutningum fram hjá skólalóðinni þegar börn eru í
skólanum. Framkvæmdir eru hafnar við nýtt íþróttahús fyrir HK í Fossvogsdal.
FYLGST MEÐ Í Snælandsskóla þykir ekki nóg að starfsmaður frá
verktakanum fylgist með akstri vörubíla.
SMALAÐ AF VEGINUM Starfsmaður Snælandsskóla bægir
börnunum frá vörubíl.
HÆTTA Á FERÐUM Krakkarnir í Snælandsskóla hlaupa fram
og til baka yfir leið vörubíla sem bakkað er að byggingarlóð
íþróttahúss HK þar við skólann.
Maðurinn sem
lést í umferðar-
slysi á Suður-
landsvegi við
Kamba á
sunnudaginn
hét Lárus
Kristjánsson, til
heimilis að
Dynskógum 2 í
Hveragerði.
Lárus var
fæddur 9. júní 1942. Hann
lætur eftir sig sambýliskonu
og uppkomin son auk fimm
barnabarna.
Lést í bílslysi í
Kömbunum
LÁRUS
KRISTJÁNSSON
MATARVERÐ Verð á vörukörfu
Alþýðusambands Íslands hækkaði
um 5 til 7 prósent í lágvöruversl-
unum milli 2. og 4. viku í apríl.
Þetta kemur fram á heimasíðu
ASÍ. Þar segir að verð körfunnar
hafi hækkað mest í Bónus eða um
7,1 prósent. Þá nam hækkunin í
Nettó 6,6 prósentum, í Kaskó
hækkaði verðið um 5,7 prósent og
en um 5,4 prósent í Krónunni.
Mun minni breytingar hafa orðið
á verði vörukörfunnar í öðrum
verslunarkeðjum þar sem
hækkunin nam 0,5 til 1 prósenti á
sama tímabili. Á síðu ASÍ segir að
þetta séu niðurstöður tíðra
verðmælinga verðlagseftirlits ASÍ.
- ovd
Verð á vörukörfu ASÍ hækkar:
Lágvöruverslan-
ir hækka mest
Líktist handsprengju
Flughöfnin í Tromsö í Norður-Noregi
var rýmd í gærmorgun eftir að öryggis-
verðir uppgötvuðu á einum farþeg-
anum beltissylgju sem lítur út eins
og handsprengja. Starfsemin lá niðri í
hálftíma meðan öryggisgæslan skoð-
aði sylgjuna, að sögn Aftenposten.
NOREGUR
Framlengt á Keilufellsmenn
Einn fimm manna sem grunaðir eru
um heiftarlega árás með bareflum á
fólk í húsi við Keilufell í mars hefur
verið úrskurðaður í áframhaldandi
gæsluvarðhald til 2. júní. Fjórir eru í
farbanni til sama tíma.
DÓMSMÁL
SPURNING DAGSINS