Fréttablaðið - 06.05.2008, Síða 22
6. MAÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● verktakar
Ísmar er eina fyrirtækið á ís-
lenskum markaði sem sérhæfir
sig í tækjabúnaði til landmæl-
inga, vélstýringa og lasertækni
fyrir verktaka, verkfræðistofur
og ríkisfyrirtæki.
„Við hjá Ísmar seljum og leigj-
um út fjölbreyttan tækjabúnað til
verktaka, verkfræðistofa og ríkis-
fyrirtækja; þar á meðal hugbún-
aðarlausnir, mælingatæki fyrir
mannvirkjagerð, lasertæki, gps-
staðsetningartæki, hallamáls tæki
og vélstýringar sem byggja á
staðsetningartækni,“ segir Jón
Tryggvi Helgason, framkvæmda-
stjóri Ísmar. Það var stofnað
árið 1982 en fyrirtækið byggir á
reynslu ellefu starfsmanna, sem
flestir hafa áratuga reynslu á
þeim sviðum sem fyrirtækið vinn-
ur á.
„Vélstýringar eru mikið notaðar
af íslenskum verktökum. Þær hafa
sannað sig með aukinni framleiðni
og hagkvæmni véla og fyrir tækja.
Með vélstýringu er átt við leið-
beinandi kerfi fyrir gröfur, jarð-
ýtur, veghefla og fleiri vinnuvélar.
Þá stýrir vélamaður vél sinni eftir
skjá þar sem verk hefur verið sett
inn sem módel í búnaðinn. Einn-
ig getur vélstýring tengst glussa-
kerfi jarðýtu eða veghefils sem
þá stýrir tönninni algjörlega sjálf-
virkt,“ útskýrir Jón Tryggvi.
„Það nýjasta hérlendis er gæða-
stýringarkerfi fyrir vinnuvél-
ar sem gerir verkstjórum kleift
að fylgjast með hvar tækin eru
í vinnu, hvað þau eru að gera og
hvort þau skili þeim afköstum
sem ætlast er til af þeim. Búnað-
urinn er fyrirferðarlítill, send-
ir þráðlaus samskipti í gegnum
GSM-síma yfir í móðurstöð, þaðan
sem hugbúnaður reiknar út þær
upplýsingar sem leitað er eftir og
setur fram á þægilegan hátt fyrir
verkstjórnandann svo hann sjái
hvernig vélarnar eru raunveru-
lega að vinna,“ segir Jón Tryggvi
og bætir við að gæðastýringar-
kerfi séu hentug fyrir fyrirtæki
sem hafa mikinn fjölda vinnuvéla
á sínum snærum.
„Oftast vita menn hvar vél-
arnar eru, en minna um fram-
leiðni vélanna; hvort hún sé eðli-
leg eða léleg. Afköst geta stafað
af ókunnri bilun en búnaðurinn
finnur út úr því og hefur virkilega
skilað sér í aukinni hagkvæmni
og betri rekstri hjá fyrirtækjum,“
segir Jón Tryggvi. Hann bendir
jafnframt á að Ísmar hafi á dög-
unum opnað fágæta þjónustu fyrir
mælingamenn og verktaka á suð-
vesturhorni landsins.
„Fyrir réttum mánuði opnaði
samgönguráðherra stórtæka GPS-
gagnaveitu sem byggir á fjórum
stöðvum sem eru í Reykjavík, á
Keflavíkurflugvelli, í Borgarnesi
og á Selfossi, auk sjálfstæðrar
stöðvar á Akureyri, en með gagna-
veitunni á suðvesturhorninu veit-
um við verktaka innan svæðisins
þjónustu á þann hátt að nú geta
þeir sem mæla fyrir mannvirkj-
um farið með sitt GPS-staðsetn-
ingartæki á mælistað, náð sam-
bandi við okkar móðurtölvu og
mælt með sentimetranákvæmni
hvar sem er á öllu þessu afmark-
aða og stóra svæði. Þessu hafa
menn tekið fagnandi, en þetta er
í fyrsta sinn sem sams konar GPS-
gagnaveita er sett upp á Íslandi og
fleiri stöðvar eru í farvatninu.“
Þess má geta að hin síðari ár
hefur Ísmar haslað sér völl á sviði
umferðaröryggis og býður marg-
víslegan búnað til vegamerkinga,
merkinga á vinnusvæðum, auk
fjölbreytts búnaðar til löggæslu
og býður lausnir á því sviði frá
þekktum framleiðendum. - þlg
Aukin hagkvæmni og framleiðni
Jón Tryggvi Helgason er framkvæmdastjóri Ísmar ehf. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Hér má sjá uppsettan útsetningarbúnað fyrir byggingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Margar vinnuvélar hjá Ístak eru búnar Trimble-þrívíddarkerfum frá Ísmar. MYND/ÍSMAR
Allt til rafsuðu
Þú færð allt til
rafsuðu hjá okkur
tæki, vír og fylgihluti
Ýmis tilboð í gangi
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf