Fréttablaðið - 06.05.2008, Blaðsíða 36
20 6. maí 2008 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
AUSTURÍSKI SÁLKÖNNUÐURINN
SIGMUND FREUD FÆDDIST ÞENN-
AN DAG ÁRIÐ 1856
„Að vera algerlega heiðar-
legur við sjálfan sig er góð
æfing.“
Freud, sem hefur verið nefnd-
ur faðir sálgreiningarinnar,
er meðal annars þekktur fyrir
kenningar sínar um undirmeð-
vitundina.
MERKISATBURÐIR
1882 Á Vestfjörðum rofar til
eftir stórhríð sem stað-
ið hafði óslitið í 27 daga.
Hálfum mánuði síðar
skellur hríðin á aftur og
stendur fram í miðjan
júní.
1889 Eiffel-turninn í París er
formlega tekinn í notkun.
1912 Jarðskjálfti, sem talið er
að hafi verið um sjö stig
á Richter, á upptök sín
í grennd við Heklu. All-
margir bæir hrynja.
1981 Framhaldsþátturinn Dall-
as hefur göngu sína í
Sjónvarpinu.
1997 Breski Seðlabankinn fær
sjálfstæði frá þarlendum
stjórnvöldum.
2005 Blaðið kemur fyrst út á Ís-
landi.
Þennan dag árið 1937
fórst loftskipið Hind-
enburg og með því 36
manns.
LZ 129 Hindenburg,
sem var smíðað árið
1931 af þýska fyrirtæk-
inu Luftschiffbau Zeppel-
in, var, ásamt systurskipi
sínu, LZ 130 Graf Zeppel-
in II, stærsta flugfar sem
smíðað hafði verið. Það
var 245 metrar á lengd og
41 metri á breidd, lengra
en þrjár Boeing 747 þotur
og aðeins 24 metrum styttra en gufuskipið Titanic.
Luftschiffbau Zeppelin varð gjaldþrota árið 1931
sem varð til þess að forsvarsmenn fyrirtækisins
gerðu samning við Nasistaflokkinn.
Aðfaranótt 3. maí 1937
lagði loftfarið, sem gekk
fyrir helíum, af stað frá
Frankfurt til Lakehurst.
Farþegar voru 36 og
áhöfnin taldi 61.
Erfiðlega gekk að lenda
flugfarinu við komuna til
Lakehurst og kviknaði að
lokum í því.
Ýmsar kenningar
hafa verið uppi um slys-
ið. Ein er sú að loftfar-
ið hafi verið sprengt í loft
upp og á þýski sendiherr-
ann í Bandaríkjunum að hafa fengið bréf um að
sprengja væri falin í því. Önnur kenning er sú loft-
farið hafi orðið fyrir eldingu með fyrrgreindum af-
leiðingum.
ÞETTA GERÐIST: 6. MAÍ ÁRIÐ 1937
Loftskipið Hindenburg ferst
Fyrstu doktorsvarnir í 100 ára sögu
Kennaraháskóla Íslands fara fram dag-
ana sjöunda, áttunda og níunda maí.
Þegar þau Sigurður Pálsson, Guðrún
Geirsdóttir og Rúnar Sigþórsson verja
ritgerðir sínar.
Ólafur Proppé, rektor Kennarahá-
skóla Íslands, segir sérstaklega ánægju-
legt að þessum áfanga skuli vera náð
á aldarafmæli skólans. „Ég er einnig
mjög ánægður með að þessar varnir
fari fram nú tveimur mánuðum áður en
Kennaraháskólinn sameinast Háskóla
Íslands, en framvegis munu doktors-
nemendur í menntunarfræðum verða
brautskráðir frá menntavísindasviði
HÍ.“
Ólafur segir doktorsvarnirnar bæði
af hinu góða fyrir Kennaraháskólann
og menntavísindin. „Við höfum í gegn-
um tíðina útskrifað fjölmarga nemend-
ur með baccalaureus og masters-próf
en það eru ekki svo ýkja margir sem
hafa lokið doktorsnámi á þessu sviði.
Fram að þessu hafa þeir útskrifast frá
erlendum háskólum.“
Hingað til hefur einungis Háskóli Ís-
lands brautskráð doktora og er þetta í
fyrsta skipti sem nemendur ljúka dokt-
orsnámi frá öðrum íslenskum háskóla
og því því stórir dagar framundan að
sögn Ólafs.
Þann sjöunda maí ver Sigurður Páls-
son, cand.theol, ritgerð sína í sögu trú-
arbragðamenntunar. Hún ber heitið:
Kirkja og skóli á 20. öld. Staða og þróun
kennslu í kristnum fræðum og trúar-
bragðafræðum á Íslandi með saman-
burði við Danmörku, Noreg og Svíþjóð.
Í ritgerðinni er rakin hlutdeild kirkj-
unnar að skólastarfi á öldinni sem leið
og þróun kristindóms- og trúarbragða-
fræðslu í skyldunámsskólum. Þann átt-
unda maí ver Guðrún Geirsdóttir, lekt-
or við Háskóla Íslands, ritgerð í mennt-
unarfræði. Hún heitir: ‘We are caught
up in our own world’: Conceptions of
curriculum within three different dis-
ciplines at the University of Iceland.
Ritgerðin byggir á rannsókn sem fór
fram við Háskóla Íslands á árunum
2002–2007 og var megintilgangur henn-
ar að skoða hugmyndir háskólakennara
um námskrárgerð svo og frelsi og svig-
rúm kennara til að taka ákvarðanir um
nám og kennslu.
Þann níunda maí ver Rúnar Sigþórs-
son, dósent við Háskólann á Akureyri,
ritgerð í menntunarfræði. Hún heit-
ir: Mat í þágu náms eða nám í þágu
mats: Samræmd próf, kennsluhug-
myndir kennara, kennsla og nám í nátt-
úrufræði og íslensku í fjórum íslensk-
um grunnskólum. Ritgerð Rúnars fjall-
ar um tilviksrannsókn sem beindist að
því að kanna hvaða mark samræmd
próf í náttúrufræði og íslensku setja á
kennslu og nám á mið- og unglingastigi
í fjórum heildstæðum grunnskólum.
vera@frettabladid.is
KENNARAHÁSKÓLI ÍSLANDS: FYRSTU DOKTORSVARNIRNAR
Ánægjulegt á 100 ára afmæli
MERKUR ÁFANGI Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, er ánægður með fyrstu dokt-
orsvarnir skólans nú tveimur mánuðum áður en Kennaraháskólinn sameinast Háskóla Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Geir Sigurgeirsson
Dvalarheimilinu Ási, Hveragerði,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands,
Selfossi, sunnudaginn 27. apríl, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 7. maí kl.
13.00.
Salvör Sumarliðadóttir
og fjölskylda.
Steinsmiðja
• Viðarhöfða 1
• 110 Reykjavík
• 566 7878
• Netfang: rein@rein.is
• Vönduð vinna
REIN
Legsteinar
í miklu úrvali
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Bogi Th. Melsteð
yfirlæknir, Svíþjóð,
lést laugardaginn 26. apríl.
Útför hans fer fram í Västervik í Svíþjóð,
þriðjudaginn 13. maí kl. 14.00.
Ingibjörg Þorláksdóttir
Páll Melsteð
Anna Guðríður Melsteð
Jón Þorlákur Melsteð
tengdabörn og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Andrés Guðnason
Langholtsvegi 23, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju
þriðjudaginn 6. maí kl. 13.00.
Örn Úlfar Andrésson Jóhanna Stefánsdóttir
Kristín Rós Andrésdóttir Björn Ástvaldsson
Gunnar Már Andrésson Bjargey Stefánsdóttir
Sigrún Andrésdóttir Þorleifur Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur vinsemd, virðingu og hlýhug í
tengslum við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Guðrúnar Sveinsdóttur
frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum,
síðast til heimilis á Hrafnistu Reykjavík,
áður Hæðargarði 35, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu Reykjavík.
Leifur Þorsteinsson Sigríður S. Friðgeirsdóttir
Sturla Þorsteinsson Ingibjörg Haraldsdóttir
Áshildur Þorsteinsdóttir Lúðvík Friðriksson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Jónsdóttir
Kjarnholtum, Biskupstungum,
lést á sjúkrahúsinu á Selfossi laugardaginn 3. maí.
Útförin fer fram frá Skálholtskirkju
laugardaginn 10. maí kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkar
samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður, tengdaföður og afa,
Gottskálks G. Guðjónssonar
Álfholti 34 b, Hafnarfirði.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg S. Valgeirsdóttir
Guðjón Gottskálksson Merlinda Eyac
Guðbjörn Joshua Guðjónsson
Okkar ástkæri
Jósef Halldórsson
byggingarmeistari, til heimilis að
Dvalarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi,
sem andaðist mánudaginn 28. apríl sl.,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
þriðjudaginn 6. maí kl. 15.00.
Börn, stjúpbörn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
AFMÆLI
GEORGE
CLOONEY
LEIKARI 47
ÁRA.
TONY BLAIR,
FYRRV.
FORSÆTIS-
RÁÐHERRA
ENGLANDS,
55 ÁRA.