Fréttablaðið - 06.05.2008, Page 39

Fréttablaðið - 06.05.2008, Page 39
ÞRIÐJUDAGUR 6. maí 2008 > SNOOP OG LINDSAY Rapparinn Snoop Dogg mun syngja með Lindsay Lohan á væntanlegri plötu hennar. Hann bætist þar með í hóp tónlistar- manna eins og Timbalands og Pharrells Williams sem einnig munu leggja leikkonunni lið við gerð plötunnar. Hún hefur ekki sent frá sér plötu frá árinu 2005 þegar A Little More Personal kom út við dræmar undirtektir. Bryndís Schram, Björgvin Hall- dórsson og Sigríður Beinteinsdótt- ir voru leynigestir á hundruðustu sýningu leikritsins Laddi 6-Tugur sem var haldin í Borgarleikhúsinu fyrir skömmu. Bryndís kom hlaupandi úr áhorfendasalnum til að spjalla við Þórð húsvörð og þegar Laddi flutti lög hljómsveitarinnar HLH birt- ust Björgvin og Sigga Beinteins óvænt á sviðinu án vitneskju Ladda. Fjórar sýningar í maí eru bók- aðar sem verða líklega þær síð- ustu fyrir sumarfrí. Óvíst er hvort sýningum verði haldið áfram í haust en upphaflega áttu þær að vera aðeins fjórar talsins. Eitt hundrað sýningar HALLI OG LADDI Sýningin Laddi 6-tugur hefur verið leikin fyrir fullu húsi í Borgar- leikhúsinu eitt hundrað sinnum. folk@frettabladid.isis Þrívíddar-sónarmynd af fóstri prýðir umslag annarrar plötu þunga- rokkssveitarinnar Dimmu, Stigmata, sem kemur út í byrjun næsta mánaðar. Barnið er nú komið í heiminn og hefur verið skírt Kristín Sæunn Sigurjónsdóttir. Fær hún kærar þakkir hljómsveitarmeðlima á umslaginu fyrir fyrirsætutakta sína. „Þetta er „konsept“-plata með tíu lögum. Hún hefst á fæðingu og endar á dauða og því fannst okkur þetta við hæfi,“ segir Ingó Geir- dal, gítarleikari Dimmu, sem veit ekki til þess að sónarmynd hafi áður verið notuð á plötuumslagi. Fékk hann leyfi fyrir myndinni hjá fyrrverandi samstarfskonu sinni. „Fæðing er eitt það falleg- asta sem er til en mörgum finnst þegar þeir sjá svona myndir að þetta sé hálf óhuggulegt. Það er magnað að eitthvað sem er eins fallegt og fæðing geti virkað svona mismunandi á fólk. Okkar músík er líka þannig. Annað hvort elskar fólk okkur eða hatar og þannig viljum við hafa þetta, ekkert miðjumoð.“ Ingó á sjálfur von á erfingja í heiminn næstkomandi föstudag og ætlaði upphaflega að nota són- armynd af honum á umslaginu en gat ekki fengið hana í þrívídd. „Maður verður að gera allt fyrir listina,“ segir hann og hlær. Flestir rokkaðdáendur muna eftir ljósmynd af nýfæddu barni á tíma- mótaplötu Nirvana, Nevermind, sem kom út 1991. Það barn hefur af og til verið í fréttunum síðan þá en Ingó segir ómögulegt að vita hvort Dimmu-barnið verði álíka frægt. „En við erum að vonast til að þessi plata verði fæðing á ein- hverju rokkskrímsli.“ Sónarmynd á plötuumslagi DIMMA Ingó Geirdal segir að fæðing sé eitt það fallegasta sem til er. FÓSTUR Í ÞRÍVÍDD Þrívíddarmynd af fóstri prýðir væntanlega plötu þunga- rokkssveitarinnar Dimmu, Stigmata. Kvikmynd eftir Brian De Palma leikstjóra Untouchables og Scarface „Myndin framkallar óhemju sterk viðbrögð; þar á meðal hneykslun og réttláta reiði!” - Robert Ebert, Chicago Sun-Times „ÆSIFENGIN KVIKMYND. Færni De Palma í kvikmyndagerð hefur sjaldan verið jafn flugbeitt!” - Ray Bennett, Hollywood Reporter „Hreint ótrúlega þróttmikið verk og sterkasta yfirlýsing De Palma á hvíta tjaldinu síðan „Casualties of War“ leit dagsins ljós!“ - Richard Corliss, Time. „Reiði og kraftur De Palma fer eins og 1000 volta rafstraumur í gegnum „Redacted!” - Stephanie Zacharek, Salon Bill O´Reilly, Fox News Channel „Ekki sýna þessa kvikmynd, því annars verð ég þín versta martröð!“ - Bill O´Reilly RITSTÝRÐ FRUMSÝND 7. MAÍ Í REGNBOGANUM KLIPPIÐ HÉR! - Ekkert hlé á góðum myndum Engin truflun3Minna af auglýsingum2Ekkert hlé1 2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu. www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.