Fréttablaðið - 24.05.2008, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 24. maí 2008 3
Nú eru margir farnir að íhuga
þrif á bílum sínum enda er
sólin farin að skína æ oftar.
„Bónval er fyrirtæki sem flytur
inn hágæðabón og bílhreinsi vörur
bæði fyrir einstaklinga og fyrir-
tæki. Við erum með umboð fyrir
vörur frá tveimur framleiðend-
um; Mothers og Einszett,“ segir
Bæring Jón Skarphéðinsson hjá
Bónvali.
Vörurnar eru allt frá fínum
mössum og upp í bón og alhliða
hreinsivörur fyrir bíla. Bónval
hefur hingað til verið með lager-
starfsemi en nú er fyrirtækið að
herja á smásölumarkaðinn. „Þetta
hefur farið mjög vel af stað og
framhaldið lítur bara vel út. Marg-
ir sem hafa keypt af okkur eru
yfir sig hrifnir af vörunum og
koma alltaf aftur en einnig koma
nýir kúnnar,“ útskýrir Bæring.
Í Mothers-bónlínunni sem Bón-
val er með umboð fyrir er mikið
úrval og allir ættu að finna eitt-
hvað sem hæfir þeirra bíl, að sögn
Bærings. Mothers-bónin eru frá
Bandaríkjunum og hafa gert garð-
inn frægan þar í landi.
Bónval er einnig með eina elstu
bónlínu Evrópu, sem nefnist
Einszett og býður upp á mikið
úrval. „Einszett eru vörur sem
fólk hefur lengi verið að leita að.
Við höfum verið með kynningar á
tveimur bílasýningum nýverið.
Þar sýndum við bíla sem við not-
uðum vörurnar á og voru viðtökur
áhorfenda mjög góðar,“ lýsir Bær-
ing.
Í Bónvali er markmiðið að mæta
þörfum allra viðskiptavina hvort
sem þeir eru einstaklingar eða
fyrirtæki og er því hægt að fá vör-
urnar í 250 millilítra brúsum og
upp í 200 lítra tunnur. Verslun
Bónvals er í Súðarvogi 32.
mikael@frettabladid.is
Bónað fyrir sumarið
Mikið er úrvalið hjá Bónvali og ættu allir að finna það sem hæfir bílum þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÞÓR HF | REYKJAVÍK: Ármúla 11 | Sími 568-1500 | AKUREYRI: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
Nú er rétti tíminn til að kaupa garðsláttuvélar
4 ha Briggs & Stratton mótor
51,5 cm sláttubreidd,
5 hæðarstillingar,
5 ha Briggs & Stratton mótor
51,5 cm sláttubreidd,
5 hæðarstillingar,
Grassasfnari.
6 ha Briggs & Stratton mótor
51,5 cm sláttubreidd,
5 hæðarstillingar,
Grassasfnari, drif.
BÓNVAL
Japan/U.S.A.
STÝRISENDAR,
SPINDILKÚLUR
OG FÓÐRINGAR
í jeppa í miklu úrvali
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Blaðberinn bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...