Fréttablaðið - 25.05.2008, Side 30
ATVINNA
25. maí 2008 SUNNUDAGUR146
Leikskólastjóri óskast til starfa
hjá Húnavatnshreppi.
Húnavatnshreppur auglýsir eftir leikskólastjóra við nýjan
leikskóla á Húnavöllum. Starfsemi leikskólans hefst í haust.
Æskilegt er að leikskólastjóri geti hafi ð störf þann 1. ágúst
2008.
Húnavatnshreppur er nýtt sveitarfélag sem varð til við sa-
meiningu fi mm sveitahreppa í Austur-Húnavatnssýlsu. Íbúar
í Húnavatnshreppi eru um 450. Grunnskóli er starfræktur á
Húnavöllum.
Leitað er eftir starfskrafti með leikskólakennaramenntun,
góða skipulagshæfi leika, hæfni í mannlegum samskiptum
og metnað til að taka þátt í mótun á nýju starfi hjá Húna-
vatnshreppi.
Leikskólinn er ein deild, en einnig er áætlað að í leikskóla-
num sé aðstaða fyrir vistun barna í fjórum yngstu bekkjum
grunnskóla í allt að sjö tíma á viku.
Þegar starfstími leikskóla hefst er gert ráð fyrir að leik-
skólastjóri vinni megnið af starfstíma sínum á deild.
Greiddur er fl utningsstyrkur. Íbúðarhúsnæði er til staðar.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Húnavatnshrepps
í síma 452-4660, 452-4661, netfang hunavatnshreppur@
emax.is, skrifl egum umsóknum skal skilað á skrifstofu Húna-
vatnshrepps á Húnavöllum.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2008.
Húnavatnshreppur Húnavöllum, 541 Blönduós
Grunnskólinn í Grindavík
lausar kennarastöður
Við leitum að áhugasömu starfsfólki í eftirfarandi störf
næsta skólaár.
• umsjónarkennar á yngsta stig
• textílkennara
• sérkennara og stjórnanda í sérdeild
• þroskaþjálfa
Grindavík er blómlegt sveitarfélag með um 2700 íbúa
í aðeins 45 km. fjarðlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Nemendur eru um 500 í 1. - 10. bekk. Í skólanum er
unnið framsækið starf af áhugasömu starfsfólki. Unnið
er að innleiðingu uppbyggingarstefnunnar - Uppeldi til
ábyrgðar. Frekari upplýsingar um skólann er að fi nna á
heimasíðu hans http://skolinn.grindavik.is
Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri í
símum 660-7320 og 660-7319
(netfang gulli@grindavik.is.). Upplýsingar um skólann er
að fi nna á heimasíðu hans http://skolinn.grindavik.is.
Umsóknarfrestur til 6.júní.
Skólastjóri
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
O
R
K
4
24
81
0
5.
20
08
Pípari/Vélvirki
Umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is)
og Hildur Sif Arnardótttir (hildur.arnardottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga:
www.capacent.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
Við leitum að duglegum og samviskusömum
einstaklingum með færni í mannlegum samskiptum.
Ef þú ert einstaklingur með áðurnefnda hæfileika getur
orðið um framtíðarráðningu að ræða. Æskilegt er, en þó
ekki skilyrði, að viðkomandi hafi eitthvað af eftirfarandi
réttindum/reynslu:
• Sveinspróf í pípulögnum/vélvirkjun.
• Reynslu af vinnu við lagnir.
• Sambærilega menntun eða reynslu.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní nk.
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að vera í fremstu röð hvað snertir
öryggi og vinnuumhverfi og möguleika starfsfólks til að samræma vinnu og fjölskylduábyrgð eins og kostur er. Það er stefna
Orkuveitu Reykjavíkur að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan fyrirtækisins.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Meginverkefni Framkvæmdadeildar eru viðbrögð
við bilunum, ýmis endurnýjunarverk auk smærri
nýlagnaverkefna í kerfum Orkuveitunnar.
Um er að ræða 1 – 2 störf við vatnsdreifikerfi OR.
Ef þú ert nákvæmur/nákvæm í vinnubrögðum,
þá átt þú erindi við okkur. Orkuveitan mun sjá um
nauðsynlega þjálfun þína á sviðinu.
Framkvæmdadeild Orkuveitu Reykjavíkur óskar að ráða öflugt fólk til starfa.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI