Fréttablaðið - 30.05.2008, Page 28
[ ]Tómatar eru ekki bara hollir, heldur eru þeir bragðgóðir og fallegir á diskinn. Rauði liturinn er áberandi í salötum og skreytir matardiskinn fallega.
Nesti getur verið góður kostur fyrir þá sem
þurfa að vera allan daginn að heiman, í skóla
eða vinnu, og vilja vera vissir um að þeir séu að
borða hollan og góðan mat.
Með því að taka með okkur nesti í vinnuna getum við
bæði sparað okkur pening og stjórnað því betur hvað
við borðum. Hollt og gott nesti þarf ekki að vera svo
flókið og ekki sakar ef við getum útbúið nokkurn
veginn eins nesti fyrir alla í fjölskyldunni.
Þórir Bergsson, yfirkokkur á Grænum kosti, er
áhugamaður um heilsusamlegt líferni og þá sérstak-
lega hvað varðar börnin. Hann lærði í Danmörku en
hefur starfað á Grænum kosti síðastliðin þrjú ár þar
sem áherslan er á hollan mat og grænmetisfæði. Hér
að neðan eru uppskriftir að hollu og einföldu nesti
fyrir bæði börn og fullorðna.
Hollt og gott
að heiman
Girnilegt nesti fyrir fullorðna fólkið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kartöflusalat
fyrir tvo fullorðna
500 g kartöflur skornar í bita
nokkrar grænar baunir
ólífur
steinselja
tómatar
salt og pipar
Hægt er að setja fleiri hluti í salatið eftir vild.
Gott er að baka kartöflurnar kvöldinu áður með ólífu-
olíu og salti. Öllu blandað saman næsta morgun og
sett í nestisbox. Auðvelt er að gera þetta salat barn-
vænt með því að sleppa því sem börnunum finnst ekki
gott.
Brauð
1 bolli hvítt spelt
1 bolli gróft spelt
2 msk. vínsteins-
lyftiduft
smá salt
½ bolli sesamfræ
½ bolli kókós
250 ml ab-mjólk
250 ml heitt vatn
Öllum þurrefnum bland-
að saman. Ab-mjólk og vatni
blandað út í þurrefnin með höndunum. Smá olíu bætt
út í eftir smekk. Þetta er sett í brauðform með bökunar-
pappír og bakað í 30 mínútur við 190 gráðu hita.
Hummus
1 dós af kjúklingabaunum frá Himneskri hollustu eða
150 g forsoðnar baunir
30 g tahini
1 tsk. salt
sítrónusafi úr ½ sítrónu
smá pipar
heilt hvítlauksrif
½ dl ólífuolía
Allt sett í matvinnsluvél. Söxuð steinselja blönduð í síð-
ast. Gott á brauðið. Ávextir skornir í bita og sett í salat.
Hér þarf aðeins að nota hugmyndaflugið.
Vantar eitthvað á veisluborðið?
Við útbúum girnilega og gómsæta ostabakka á veisluborðið.
Mesta úrval landsins af íslenskum og erlendum ostum.
Ostabúðin | Bitruhálsi 2 | 110 Reykjavík
Pöntunarsími 515 8665 | ostar@ostar.is
– upplagt á svalirnar
Sölustaðir: Járn og gler · Garðheimar · Húsasmiðjan · Egg · Búsáhöld Kringlunni · www.weber.is
– mikið úrval af aukahlutum
X
E
IN
N
J
G
W
E
B
Q
30
0
5x
10
W
eb
er
Q
30
0