Fréttablaðið - 31.05.2008, Síða 4
4 31. maí 2008 LAUGARDAGUR
ostur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Grill og
ostur
– ljúffengur
kostur!
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhofen
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
4
10
10
9
10
12
10
13
14
14
10
4
6
7
5
4
5
21°
26°
26°
22°
24°
19°
22°
18°
22°
31°
23°
23°
23°
23°
21°
23°
21°
24°
Á MORGUN
5-15 m/s, hvassast suð-
vestan til.
4
5
MÁNUDAGUR
5-15 m/s , hvassast
allra syðst.
6
5
5
1010
12 19
20
13
13 15
14
10
LEIFAR AF
ÚRKOMU
Það er úrkomuloft
á leiðinni austur
af landinu og því
má búast við vætu
norðaustan og
austan til í fyrstu.
Annars staðar
verður yfi rleitt þurrt
en þó má búast
við lítils háttar súld
vestan til á landinu.
Á morgun má
búast við bongó-
blíðu á Akureyri og
Egilsstöðum.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Tímabundinni þjónustumiðstöð
fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna
jarðskjálftanna síðastliðinn
fimmutdag verður komið upp á
allra næstu dögum.
Ríkisstjórnin samþykkti þetta á
fundi sínum í gær en miðstöðin
verður staðsett á Suðurlandi og
unnið er að því að finna henni
stað. Geta íbúar á jarðskjálfta-
svæðinu leitað til miðstöðvarinnar
eftir hvers kyns aðstoð í tengslum
við afleiðingar skjálftans og
verður þeim meðal annars veitt
liðsinni vegna tryggingamála,
hvort sem um er að ræða tjón sem
Viðlagatrygging bætir eða almenn
tryggingafélög. - ovd
Tímabundin þjónustumiðstöð:
Verður staðsett
á Suðurlandi
UNNIÐ AÐ SKRÁNINGU Starfsmenn
Rauða krossins unnu ötullega að
skráningu í fjöldahjálparmiðstöðinni á
Selfossi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Íbúar á skjálftasvæðinu á Suður-
landi sneru margir hverjir aftur
til síns í heima í gær til að virða
fyrir sér tjónið og hefja tiltekt. Í
Hveragerði og á Selfossi var
rólegt um að lítast, þótt flestir
hafi haft feikinóg við að vera og
um að hugsa. Flestir voru ber-
sýnilega enn að jafna sig á
áfallinu frá því á fimmtudag.
Þótt margir hafi tekið sér frí af
skiljanlegum ástæðum voru sum
hjól bæjarlífsins þegar tekin að
snúast á ný. Starfsmenn Bónuss í
Hveragerði mættu eldsnemma til
að hreinsa upp af gólfum og raða
í hillur og í hádeginu var verslun-
in full af fólki, enda margir bæj-
arbúar sem misst höfðu mestallt
matarkyns þegar ísskápurinn
steyptist um koll daginn áður.
Tugir Hvergerðinga sóttu eftir
hádegi fræðslufund þar sem Guð-
mundur Baldursson bæjartækni-
fræðingur greindi frá ástandinu í
bænum og fulltrúar Rauða kross-
ins fóru yfir áætlanir um áfalla-
hjálp og undirbjuggu fólk fyrir
væntanleg andleg eftirköst af
áfallinu. Það setti óhug að gest-
um á fundinum miðjum þegar til-
tölulega snarpur eftirskjálfti reið
yfir og heyra mátti andköf og klið
í salnum á eftir.
Tjón var enn að uppgötvast
víða í gær, einkum sprungur í
steinsteyptum húsum. Heima
hjá Hauki Michelsen og Þor-
björgu Theódórsdóttur, við Heið-
arbrún í Hveragerði, mátti litlu
muna að húsið liðaðist í sundur.
Sprunga sem var vel greinileg
utan við húsið teygði sig að hús-
inu, undir það og út hinum megin.
Þakið var nær sprungið frá
veggnum innandyra og burðar-
veggur virtist sprunginn í sund-
ur, þótt enn héldist hann uppi.
„Vínflöskurnar eru hins vegar
allar óbrotnar þótt vínrekkinn
hafi hrunið fram fyrir sig á gólf-
ið,“ sagði Haukur. „Þetta er
alveg með ólíkindum.“
stigur@frettabladid.is
Enn skjálfti í fólki
Það var rólegt yfir Selfyssingum og Hvergerðingum í gær þótt eftirköst skjálft-
ans hvíldu þungt á flestum. Bæjarbúar hófu tiltekt, keyptu í matinn og hug-
hreystu hver annan, en tíðir eftirskjálftar vöktu víðast hvar talsverðan óhug.
HÚSIÐ SPRUNGIÐ Haukur Michelsen sér fram á mikinn kostnað við viðgerðir á húsi
sínu. Þakið og veggurinn gengu nánast í sundur. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
ÞYRSTIR SELFYSSINGAR Íbúar á Selfossi voru varaðir við því að drekka kranavatn, sem hafði gruggast í jarðhræringunum. Mikil
eftirspurn var því eftir vatni sem flutt var í bæinn. Alls voru um sex þúsund lítrar af flöskuvatni fluttir til bæjarins, og enn meira í
tönkum. Enn er óvíst hvenær öruggt verður að drekka kranavatnið á ný. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
„Við komum inn skjálfandi og
með hjartslátt,“ segir Ágústa
Óskarsdóttir, sumarbústaðareig-
andi í Öndverðarnesi, sem hafði
heyrt hryllingssögur af því
hversu illa hús og stöku bústaðir á
svæðinu hefðu farið í skjálftan-
um. „En þetta er bara flott. Þetta
fór miklu betur en við óttuðumst.“
Ágústa fór gagngert austur
fyrir fjall til að kanna ástandið á
bústaðnum ásamt manni sínum,
Bergþóri Bergþórssyni. Þau voru
nýkomin inn úr dyrunum þegar
blaðamann bar að garði. Eitt glas
og ein skál hafði brotnað, annað
ekki. „Fyrst þetta fór ekki verr
verðum við kannski bara hér í
nótt,“ sagði Bergþór. - sh
Bústaðurinn ekki illa farinn:
Fór mun betur
en þau óttuðust
BROTIN SKÁL Ágústa tíndi upp brotin,
sem voru þó ekki ýkja mörg.
FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
„Tjónið er gríðarlega mikið. Þegar
maður fann skjálftann þá vissi
maður að það
yrði mikið tjón,
hann var svo
harður,“ sagði
Ragnheiður
Hergeirsdóttir,
bæjarstjóri
Árborgar. „Það
er að koma í
ljós að það er
þó nokkuð
mikið um
sprungur á
húsum og það á
eftir að koma
betur í ljós hvort hús hafa skekkst
eða eitthvað slíkt.“
Ragnheiður segir unnið að því
að hreinsa vatnslagnir í því skyni
að íbúar Selfoss fái hreint vatn
inn í hús. Ekki sé ljóst hvenær því
lýkur. - sh
Bæjarstjóri segir tjónið mikið:
Sprungur að
koma í ljós
RAGNHEIÐUR
HERGEIRSDÓTTIR
Pétur Guðmundsson, bóndi á
Hvammi í Ölfusi, sér fram á að
þurfa að veita vatni á beitarhaga
sína eftir að lækur sem rann úr gili
í Ingólfsfjalli og niður í hagana
þornaði skyndilega upp eftir
skjálftann. „Það dró bara úr
rennslinu úr gilinu mjög hratt eftir
skjálftann þangað til það hætti
alveg.“
Pétur heldur kýr og hesta á
Hvammi, og skepnurnar voru
heldur órólegar í skjálftanum.
„Það bara trylltist allt,“ segir hann.
Hann segir þó þyrluumferðina
sem fylgdi í kjölfarið hafa verið
enn erfiðari fyrir blessuð dýrin en
skjálftann sjálfan. - sh
Náttúruleg áveita tapast:
Gilslækurinn
þornaði upp
GILIÐ Áður fossaði myndarlega úr gilinu
en nú er það þurrausið. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI
SUÐURLANDSSKJÁLFTI