Fréttablaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 31. maí 2008 11
GRÆNLAND, AP Ráðherrar frá ríkj-
unum fimm sem eiga strendur að
Norður-Íshafi undirrituðu á fundi
sínum í Ilulissat á Grænlandi sam-
eiginlega yfirlýsingu, sem að sögn
Pers Stigs Møller, utanríkisráð-
herra Danmerkur, „skapar góðan
pólitískan ramma um friðsamlega
þróun í N-Íshafi í framtíðinni“.
Møller var ásamt Hans Enoksen,
formanni grænlensku landstjórn-
arinnar, gestgjafi fundarins sem
ráðherrar úr ríkisstjórnum Banda-
ríkjanna, Kanada, Rússlands og
Noregs, auk gestgjafanna, sóttu.
Engum var boðið frá þremur aðild-
arríkjum Norðurskautsráðsins −
Íslandi, Svíþjóð og Finnlandi.
Með hinni sameiginlegu yfirlýs-
ingu staðfestu Norður-Íshafs-
strandríkin skuldbindingu sína til
að leysa allan ágreining um lög-
sögumörk og yfirráð yfir auðlind-
um sem finnast kunna á svæðinu
samkvæmt leikreglum alþjóðasátt-
mála.
„Ríkin fimm hafa nú lýst yfir að
þau munu fylgja reglunum,“ sagði
Møller. „Við höfum vonandi kæft
allar sögusagnir um meint kapp-
hlaup um Norðurpólinn í eitt skipti
fyrir öll.“ - aa
SAMLYNDI Ráðherrarnir í útsýnissiglingu
á hafísfylltum firðinum við Ilulissat.
NORDICPHOTOS/AFP
Strandríki Norður-Íshafs undirrita sameiginlega yfirlýsingu á fundi á Grænlandi:
Segja ekkert kapphlaup í gangi
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Rafm.sláttuvélar
Vandaðar vélar
og öflugir
mótorar
MENNTUN Tækniskólinn, skóli
atvinnulífsins, hefur áhuga á að
festa kaup á litlum plastbát fyrir
skipstjórnarnámið sem fram fer í
skólanum sem tekur til starfa í
sumar, kannski sómabát fyrir 10-
20 milljónir króna.
Baldur Gíslason, skólastjóri
Iðnskólans í Reykjavík, segir að
sómabátur dugi vel enda verði
um tækjakennslu að ræða og
aðeins farið út með sex til átta
nemendur í einu. „Við þurfum bát
sem hefur nauðsynleg siglinga-
tæki um borð þannig að menn fái
æfingu um borð á siglingu,“ segir
Baldur. - ghs
Tækniskólinn skoðar sómabát:
Vill kaupa skip
ÞURFA SEX Skólastjóri segir þörf á bát
fyrir sex til átta nemendur í einu.
VIÐSKIPTI Verð á ýmsum hrávörum
hefur lækkað í þessari viku eftir
mikla hækkun undanfarna
mánuði.
Ástæða lækkunarinnar er fyrst
og fremst rakin til styrkingar
Bandaríkjadals og lækkunar
olíuverðs, að því er fram kemur í
Morgunkorni Greiningar Glitnis.
Olíuverð hefur lækkað úr tæpum
132 dollurum á tunnu í upphafi
vikunnar í tæpa 126 dollara um
miðjan dag í gær. Verð á gulli
lækkaði um rúm fimm prósent,
sem er fyrsta vikulækkun í rúmar
fjórar vikur. Einnig hefur verð á
silfri, áli, tini og kopar lækkað
undanfarna viku. - bþa
Sterkari dalur og lægri olía:
Hrávöruverð
lækkar á ný