Fréttablaðið - 31.05.2008, Page 28
28 31. maí 2008 LAUGARDAGUR
F
lestar myndirnar eru
komnar upp á vegg og
Viggo labbar með mig
um sýningarsalinn á
sokkaleistunum og
útskýrir lítillátur
hvaðan myndirnar eru en þær eru
teknar á síðustu þremur árum á
mismunandi stöðum í heiminum.
Spurður hvort hann ferðist til að
taka myndir eða taki myndir
þegar hann ferðast, svarar hann
að hann taki myndir þegar hann
ferðast. Hann tekur myndir hvar
sem hann er og hefur alltaf gert.
Ljósmyndirnar á sýningunni
eru flestar af trjám eða teknar úti
í skógi. Ljós og skuggar spila stórt
hlutverk en sumar myndanna eru
einnig svarthvítar. Draumkennd-
ar og ljóðrænar myndir sýna
skynjun listamannsins á heiminn.
Svo virðist sem engin listgrein sé
honum óviðkomandi, auk ljós-
myndanna málar hann, semur ljóð
og tónlist og gefur út bækur eftir
sig og aðra listamenn, og geisla-
diska með eigin ljóðaupplestri.
Hann blandar oft ljóðlist við ljós-
myndir og á sýningunni verða líka
ljóð í bland við myndirnar, bæði
hans eigin og ljóð sem hann hefur
valið, þar á meðal íslensk ljóð.
Allt tengist. Myndir, orð, sögur.
Eftir að hafa labbað um salinn
sest hann upp við vegg út á svöl-
um og reykir sígarettur sem hann
vefur sjálfur meðan hann spjall-
ar.
Skógarbúinn
Sýningin í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur hefur verið fyrir-
huguð í rúmt ár, „ég ákvað að taka
myndir af trjám fyrir þessa sýn-
ingu af því að það eru ekki tré á
Íslandi. Ég ákvað að koma með
tré til Íslands,“ segir Viggo og
brosir.
Samhliða sýningunni kemur
einnig út, hjá bókaútgáfu hans
Perceval Press, bókin Skovbo, eða
sá sem býr í skóginum, skógarbú-
inn. „Mér líður vel í kringum tré.
Þar sem ég bjó í Danmörku var
skógur og það er eitthvað í skóg-
inum sem lætur mig líða vel. Þau
minna mig kannski líka á Argent-
ínu þar sem ég bjó sem barn. Þetta
er eins með sjóinn, mér líður mjög
vel við sjó. Ég get lifað án þess að
vera alltaf við sjó eða tré en mér
líður best þar sem ég hef hvort
tveggja. Ég get samt ferðast um
sandeyðimörk eða um íslenska
náttúru. Mér líður mjög vel á
Íslandi,“ útskýrir Viggo og það er
greinilegt að hann er mikið nátt-
úrubarn sem sækir í að vera einn
úti í náttúrunni.
Viggo hefur komið nokkrum
sinnum áður til Íslands og líkar
það vel. „Ég hef verið hér á öllum
árstíðum. Ég er mjög hrifinn af
því hvernig veðrið og birtan
breytist snögglega hérna. Það er
alveg magnað. Ég kom hingað
fyrst með syni mínum. Það voru
líklega Íslendingasögurnar sem
drógu okkur hingað. Mér fannst
alveg frábært að koma á staði þar
sem staðarnöfnin voru enn þau
sömu og í Íslendingasögunum.“
Frægð og frami
Viggo hefur náð langt sem leikari,
hann varð mjög vinsæll eftir hlut-
verk sitt í Lord of the Rings og
var tilnefndur til Óskarsverð-
launa á árinu fyrir Eastern Prom-
ises eftir David Cronenberg.
Flestir stórleikarar eiga fullt í
fangi með að halda utan um þess
konar feril. En skyldi hann stefna
á svipaðan frama sem ljósmynd-
ari?
„Ég gerðist ekki leikari til að
verða frægur en það hefur samt
gefið mér ákveðin tækifæri sem
ég hefði annars ekki fengið eins og
að vinna með David Cronenberg
eða leika í spænsku myndinni Alat-
riste. Allir geta orðið heppnir en
það er það sem maður gerir við
það sem skiptir máli. Ég reyni að
gera eins vel og ég get í stöðunni.
Ég hafði verið leikari í mjög lang-
an tíma en það var ekki fyrr en í
Lord of the Rings sem fólk virki-
lega vissi hver ég var. En ég hafði
líka verið að taka myndir löngu
áður en ég byrjaði að leika. Þetta
eru mjög svipaðir hlutir. Mitt
markmið er aðallega að taka eftir.
Þetta snýst um að vera vakandi,
vera lifandi og taka eftir því sem
er að gerast í umhverfinu. Við
tökum öll eftir mismunandi hlut-
um og upplifum mismunandi hluti.
Hvað við svo gerum til að tjá það
sem við upplifum kemur í ofaná-
lag. Ljósmynd, málverk, ljóð eða
tónlist sem við notum til að koma
því til skila sem við höfum upplif-
að er ekki aðalatriðið, heldur það
sem ég tjái. Það hvernig maður
skynjar heiminn er list í sjálfu sér.
Að staldra við eitt þögult augna-
blik og sjá hvað gerist. Ég hef lengi
fengist við ljósmyndun og ég tek
alltaf betur og betur eftir ákveðn-
um hlutum í ljósmyndun sem ég
hef áhuga á og þannig verður
maður betri í því sem maður gerir
og lærir. Ég vil ná til fólks með
þessum myndum og ég vil að fólk
komi og sjái sýninguna, en þetta
snýst um að tjá mig hreinskilnis-
lega, ef ég fer að taka myndir eða
setja upp sýningar sem ég held að
fólk vilji sjá þá á mér eftir að mis-
takast, á sama hátt og leikstjórum,
sem hugsa þannig, mistekst.“
Leikari eða ljósmyndari
Það er ríkt í okkar samfélagi að
flokka og skipta fólki niður í hólf,
annaðhvort er fólk leikari eða ljós-
myndari. Hvað finnst þér um það?
„Ég held að allt tengist. Ég tek
myndir til að tengjast heiminum
og komast að því hvernig ég teng-
ist honum. Allt sem maður gerir
tengist á einhvern hátt. Þetta
snýst um að gera hluti sem maður
er vanur að gera í daglega lífinu
og úr því verður einhver listsköp-
un. Eitthvað vekur mann til
umhugsunar. Maður fer á sýningu
og það er kannski ekki góð sýning
en maður staldrar við eina mynd,
ein mynd er nóg til að fá mann til
að stoppa og hugsa um ákveðna
þætti í sínu lífi. Það þarf ekki að
vera mynd, getur verið smásaga
eða ljóð. Fólk staldrar við á mis-
munandi stöðum.“
Er leiklistin annars eðlis en aðrar
listgreinar sem þú fæst við?
„Nei, að setja saman þessa sýn-
ingu er nokkurn veginn eins og að
leika. Við erum að hreyfa hluti til
um svæðið. Finna út hvað passar
hvar og velja. Segja fólki hvað það
á að gera, svo fer ég kannski í
göngutúr og kem til baka og starfs-
fólkið er búið að gera eitthvað.
Allir leggja sitt af mörkum á sama
hátt og leikstjóri, handritshöfund-
ur, framleiðandi og leikarar leggja
sitt af mörkum við að búa til bíó-
mynd. Niðurstaðan er afleiðing
samvinnu og starfsfólkið hér á
safninu hefur verið ótrúlega gott
verð ég að segja.“
Einn í náttúrunni
Viggo viðurkennir að umstangið
sem fylgir stórum bíómyndum
heilli hann ekki, en fylgi óneitan-
lega með. Hann hefur lítinn áhuga
á að taka þátt í kynningu á mynd-
unum sem tekur jafnlangan tíma
og að leika í myndinni, en það að
vinna með áhugaverðu fólki og
leikstjórum er það sem er raun-
verulega gefandi og hann mun
halda því áfram.
„Það hefur verið of mikið að
gera hjá mér síðustu ár og núna
er fram undan mikil törn, ég hef
því miklu minni tíma en ég vildi
til að sinna listinni. Þess vegna
reyni ég að nota tímann vel. Þetta
er bara ég með myndavélina. Ég
sest niður og horfi á himininn,
stoppa, og syng kannski eða
skrifa niður. Þegar ég hef tíma
til að gera það og staldra við þá
er ég ánægðastur. Líf mitt hefur
verið mjög brjálað undanfarið og
ég hef ekki mikinn tíma til að
gera þessa hluti en ég er ánægð-
astur þegar ég hef tækifæri til
þess. Mér líður best með sjálfum
mér og þegar þessi opnun er búin
á ég frí í tvo daga og ég ætla að
keyra beint út í náttúruna og
eyða tíma með sjálfum mér. Mér
líður best í náttúrunni, fjarri
mannabyggðum. Sumt fólk þarf
alltaf að vera með einhverjum
öðrum, ég er ekki þannig. Mér
finnst frábært að vera einn og
sérstaklega í fallegu landslagi og
þegar það er mjög hljótt í kring-
um mig. Þá gleymi ég öllu öðru.
Þess vegna líður mér vel á
Íslandi. Ég kom hingað einu sinni
í júlí og keyrði út á landi með
myndavélina. Ég svaf eiginlega
ekki neitt af því að sólin var enn
þá á lofti á miðnætti og ég hélt
bara áfram, eftir tvo daga var ég
í góðu jafnvægi og algjörlega
úthvíldur þó ég hefði varla
sofið.“
Margt til lista lagt
NÁTTÚRUVERND Náttúran er Viggo mikið hjartans mál og þar sem þema ljósmyndasýningarinnar er tré og skógur mun ágóðinn
renna til Náttúruverndarsamtaka Íslands. „Ég er heppinn að fá það vel borgað fyrir leiklistina að ég þarf ekki að reyna að lifa á
listinni eða fá borgað fyrir myndirnar mínar, þess vegna finnst mér gott að sjóðurinn njóti góðs af. FRÉTTABLAÐIÐ/ ARNÞÓR
➜ VIGGO Í HNOTSKURN
■ Pabbi Viggo er danskur en mamma hans er bandarísk.
Þegar hann var krakki fluttu þau til Argentínu þar sem
faðir hans sá um sveitabýli.
■ Þegar foreldrar hans skildu flutti Viggo með mömmu
sinni til New York.
■ Seinna flutti Viggo til Danmerkur og starfaði meðal
annars sem vöruflutningabílstjóri.
■ Talar ensku, dönsku og spænsku.
■ Hann á langan feril í kvikmyndum og hafði leikið í
myndum á borð við Portrait of a Lady eftir Jane Camp-
ion, G.I. Jane eftir Ridley Scott, Crimson Tide eftir Tony
Scott, A Perfect Murder eftir Andrew Scott og Leather-
face: Texas Chainsaw Massacre III.
■ Eignaðist soninn Henry Mortensen með eiginkonunni
Exene Cervenka en þau skildu.
■ Hann tók að sér hlutverk Aragons í Lord of the Rings,
aðallega vegna þess að sonur hans var mikill aðdáandi
Tolkien-sagnanna.
■ Síðan hefur hann leikið í tveimur myndum Davids
Cronenberg, A History of Violence og Eastern Promises
þar sem hann lék rússneskan mafíósa og var tilnefndur
til Óskarsverðlaunanna fyrir.
■ Við undirbúning á Eastern Promises fór hann til Rúss-
lands og kynntist mönnum úr mafíunni.
■ Lék í spænsku myndinni Alatriste eftir Agustín Díaz
Yanes og hefur nýlokið við leik í The Road eftir John
Hillcoat með Charlize Theron.
■ Ljósmyndun hefur hann stundað frá blautu barnsbeini
og hafði áhuga á ljósmyndun löngu áður en hann fór að
leika.
■ Stofnaði Perceval Press og gefur út bækur eftir sjálfan
sig og aðra listamenn, meðal annars bók Georg Guðna,
Strange Familiar.
■ Gaf út geisladiskinn Time Waits for Everyone þar sem
hann spilar á píanó.
■ Það leiðinlegasta sem hann gerir er kynningarstarfið í
kringum bíómyndirnar sem hann leikur í og að tala við
blaðamenn.
Flestir vita hver leikarinn Viggo Mortensen er,
sem skaust endanlega á stjörnuhimininn í Lord of
the Rings. Færri vita að hann er ljósmyndari, mál-
ari, skáld, og tónlistarmaður svo eitthvað sé nefnt.
Hanna Björk Valsdóttir hitti Viggo í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur þar sem starfsmenn safnsins
voru á fullu við að undirbúa ljósmyndasýningu
hans sem opnar í dag.