Fréttablaðið - 31.05.2008, Page 53

Fréttablaðið - 31.05.2008, Page 53
7 n Úganda ABC hefur starfað í Úganda frá árinu 1993. Til að byrja með var aðal starfi ð í Gulu héraði en vegna ófriðarástands fl uttist aðal uppbygging starfsins til Kitetika í Suður-Úganda. Þar hefur verið heilmikil uppbygging og sömuleiðis í Rackoko í Pader héraði þar sem eru fl óttamannabúðir fyrir 17.000 manns. Uganda Australia Foundation hefur verið samstarfsaðili ABC barnahjálpar í Úganda, en sú stofnun er nú orðin ABC barnahjálp í Úganda. Á fi mmta þúsund börn stunda nú nám í skólum ABC í Úganda, en þar af eru um 3000 börn styrkt til náms héðan frá Íslandi, í Gulu héraði, Kitetika og Rackoko. ABC í Úganda rekur forskóla, barnaskóla, unglingaskóla og verkmenntaskóla. Á annað þúsund barna dvelja á heimavistum skól- anna. Auk skólastarfs rekur ABC heilsugæslu, samfélags- útvarp og fullorðinsfræðslu í Rackoko. Nýja ABC barnaskólabyggingin í Kitetika í bakgrunni Unglingaskólinn í Kitetika Ein nýju heimavistanna í Rackoko Nýjasta verkefni ABC í Úganda er mjög brýnt, en það er neyðarástand ófrískra stúlkna sem eru reknar úr grunnskólum vegna ástands síns. ABC hefur lagt áherslu á að byggja heimavistir fyrir stúlkur í Pader héraði þar sem kynferðislegt ofbeldi er mjög algengt og þungun unglingsstúlkna er alvarlegt vandamál. Verkefnið “Mother child alive” eða Móðir barn á lífi er átak til að hjálpa stúlkum sem hafa orðið fórnarlömb slíkt ofbeldis. Hundruð stúlkna hafa leitað til ABC vegna ástands síns, sumar ófrískar, en aðrar með ung börn sín. Verkefnið felst í að veita þeim athvarf þar sem þær geta haldið áfram námi og jafnframt lært að hugsa um börnin sín. Byggð verður aðstaða fyrir stúlkurnar þar sem þær geta dvalið með börnum sínum, dagheimili fyrir börnin þar sem séð er um þau á meðan stúlkurnar stunda námið og matsalur sem verður einnig nýttur sem aðstaða til að kenna þeim að sjá um börnin sín. Fyrrverandi náttstaður sumra barna hjá ABC, fáæktin er gífurleg. n Kenýa ABC barnahjálp var stofnuð í Kenýa haustið 2006. Starfi ð hefur verið tvíþætt: Hjálp fyrir götubörn í Nairóbí. Opnað var heimili fyrir götubörn í desember 2006 og dvelja þar nú um 200 börn í fj órum húsum og stunda nám. Hjálp fyrir börn úr fátækustu fj ölskyldum fátækra- hverfa Nairóbí, en Mathare fátækrahverfi ð hefur verið aðal vettvangur þess hjálp- arstarfs. Um 300 börn þiggja nú hjálp við að komast í skóla, skólagjöld eru greidd og börnunum útvegaðir skólabúningar, bækur og læknishjálp auk þess sem reynt er að aðstoða fj öl- skyldur barnanna við að koma undir sig fótunum þar sem þess er kostur. Nýjasta verkefni ABC í Kenýa er að koma á fót skólamiðstöðvum inni í fátækrahverfum Naíróbí. Auk þess að bláfátækum börnum sé hjálpað til að komast í skóla geta þau komið í skólamiðstöðina eftir skóla, fengið síðdegis hress- ingu og aðstoð kennara við heimanámið auk almennrar aðhlynningar og aðstoðar. Þetta verkefni er svar við gífurlegri neyð heimilislauss fólks í fátækrahverfunum eftir að átök brutust út í kjölfar forsetakosninganna í desember. Fólk er enn heimilislaust eftir að heilu hverfi n voru brennd og stoðum kippt undan lífi fátæklinganna. ABC barnahjálp er nú að ganga frá kaupum á stóru landi fyrir utan höfuðborgina þar sem byggð verða heimili og skólar fyrir umkomulaus börn. Líbería ABC barnahjálp var stofnuð í Líberíu um áramótin 2006- 2007 til að mæta gríðarlegri neyð eftir langvarandi borg- arastyrjöld. Keypt var stórt land undir starfsemina með hjálp frá utanríkis- ráðuneyti Íslands og er nú uppbygging í fullum gangi. Byggingu heimavistar fyrir stúlkur er nánast lokið, skólabygging er vel á veg komin og sömuleiðis heilsugæsla. Bygging heimavistar fyrir drengi er ráðgerð á þessu ári, sömuleiðis matsalur, eldhús, starfsmannahús og gestahús. Gert er ráð fyrir að hægt sé að byggja aðra hæð ofan á byggingarnar og þegar það er búið verður aðstaða til að hýsa og menn- ta yfi r 1000 börn á landinu. Gert er ráð fyrir að byggingar verði tilbúnar og starfsemi hefj ist þegar nýtt skólaár hefst í byrjun september. Heimavist fyrir stúlkur er langt komin í Líberíu – lengst til hægri er heilsu- gæslan með bláu þaki. Myndin er tekin af þaki skólabyggingarinnar. n Burkina Faso Verið er að ganga frá skráningu á ABC barnahjálp í Burkina Faso. Gríðarleg þörf er á að byggja skóla og hjálpa börnum til mennta en yfi r helmingur barna í Burkina Faso er án skólagöngu. Búið er að fá land undir skólabyggingar og gert er ráð fyrir að starfi ð verði komið í fullan gang áður en nýtt skólaár hefst í haust. n Senegal Verið er að ganga frá skráningu á ABC barnahjálp í Senegal. Aðal áherslan er á að aðstoða götubörn fá Guinea Bissau sem eru í þrælavinnu á götum Dakar í Senegal og hjálpa þeim til að komast heim til sín aftur. Einnig er fátækum senegöls- kum börnum hjálpað til að komast í skóla, en lítill ABC forskóli tekur til starfa í haust. n Guinea Bissau Til stendur að hefj a starf í Guinea Bissau sem fyrst og er undirbúningur hafi nn vegna skráningar ABC í landinu. Til stendur að byggja skóla til að hjálpa þeim börnum sem hafa verið tekin sem þrælar yfi r til Senegal og tekist hefur að senda til baka. ABC hefur þegar verið gefi ð land undir skóla í Guinea Bissau og munu fram- kvæmdir hefj ast um leið og fj ármagn leyfi r, en hópur barna bíður eftir skólanum. n Rúanda ABC hefur verið gefi ð land í Kigali höfuðborg Rúanda þar sem stendur til að hefj a starf í haust. Yfi r 200 milljónir króna voru sendar frá Íslandi á síðasta ári í gegnum ABC barnahjálp til menntunar og framfærslu þurfandi barna og uppbyggingar aðstöðu fyrir þau. Kærar þakkir Við hjá ABC barnahjálp viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem stutt hafa ABC á einhvern hátt á þeim 20 árum sem liðin eru frá stofn- un starfsins. Þetta stóra og ört vaxandi starf er sam- eiginlegt átak okkar Íslend- inga sem við bjóðum nú öðrum þjóðum að taka þátt í með okkur. Við sem höfum farið fyrir þessu starfi fi nnum glöggt að þetta starf er fætt í hjarta Guðs og hann á allan heiður af því. Guð er faðir föðurlausra og hann hefur blásið sinni hugsjón inn í starfi ð. Við höfum haldið áfram í trú, tekið skref inn í ný lönd án þess að hafa nokkurt fj ármagn, tekið inn fl eiri börn en við höfum séð fram á að geta fætt, lofað skólabyggingum með tóma sjóði en alltaf hefur Guð mætt þeirri þörf sem við höfum staðið frammi fyrir. Þakka ykkur kæru lands- menn sem hafi ð staðið með okkur og verið bænasvar inn í aðstæður umkomu- lausra barna. Án Guðs og ykkar hefði þetta aldrei verið hægt. Guð blessi ykkur fyrir hjálpina. Síðumúla 29 - 108 Reykjavík - S: 4140990 - www.abc.is - abc@abc.is ENN BÍÐA MÖRG BÖRN EFTIR HJÁLP 414 0990 Hringdu til okkar eða farðu inn á vefsíðu okkar og taktu að þér barn. Mikinn fj ölda barna vantar stuðningsaðila. Einnig er hægt að leggja inn framlög á reikning ABC. nr. 1155-15-41411 kt. 690688-1589 abc.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.