Fréttablaðið - 31.05.2008, Page 58

Fréttablaðið - 31.05.2008, Page 58
12 AKUSIA n Herbert Guðmundsson fyrrverndi Búddisti hefur snúið sér að kristilegri tónlist og er að vinna að útgáfu á nýjum Gospeldisk. Herbert hefur alltaf reynt að fylgja sinni sannfæringu og verið ófeiminn að segja fólki frá því sem hann er að upplifa hverju sinni. Herbert komst í kynni við Guðdóminn á sam- komu hjá Kærleikanum síðastliðinn vetur og var svo snertur af krafti tilbeiðsl- unnar að hann fór að kynna sér fj ölbreytileika Gospeltónlistar og út úr því varð að hann snéri sér að því að semja lög sem snúa að kristindóminum. Það er óhætt að segja að Herbert sé að gera gjörólíka hluti en hann hefur gert áður. Tónlistin er orðin alvarlegri og áhrifameiri og fólk hrífst með trúnni og söngnum. Á styrktartónleikum sem voru haldnir fyrir nokkrum vikum sló hann hreinlega í gegn. Það eina sem vantaði að hans sögn þegar hann kynnti nýju lögin sín var Gospelkór við hlið hans til að auka áhrif söngsins. Herbert mun troða upp á Stóru Gospelhátíðinni og sýna landanum nýja hlið á sér, hlið sem mun ekki láta nokkurn mann ósnortinn. Aðgangur er ókeypis eins og á alla styrktartónleika sem haldnir verða á Víðistaðatúni þessa daga. HERBERT GUÐMUNDSSON SÝNIR Á SÉR NÝJA HLIÐ MARTIN I GRUND n Martin i Grund er Færeyingur búsettur í Englandi. Hann er á leið til íslands ásamt 5 manna hljómsveit til að taka þátt í Stóru Gospelhátíðinni. Martin er fyndinn náungi sem semur ótrúlega skondin lög um ýmislegt yrkisefni úr orði Guðs. Martin mætti líkja við Iggy Pop og Bob Dylan á yngri árum en hann fer ótroðnar slóðir í söng sínum og fær hlustendur sína til að skemmta sér og njóta tónlistarinnar. Martin verður með tónleika sína seinni helgina á hátíðinni eða þann 27. 28. og 29. júní. G n Tónlistin sem Glit spilar er “létt-sveifl u-gospel” og kemur bandið fram á Gospel hátíðinni þann 24. júní. Tilgangur hljóms- veitarinnar er að gleðjast, vera öðrum til gleði og nafni Jesú til sóma. Hljómsveitina skipa miklir músikantar eða þau: Sigurbjörg Níelsdóttir, Bjarnsteinn Þórsson, Björgvin Óskarsson, Hálfdán Gunnarsson, Magnús Nielsson og Stefán Birkisson. n Gospel Invasion Group eða „GIG“ er tónlistarhópur sem starfað hefur síðan 2002. Hann spilar kröftuga og dínamíska tónlist. Hópurinn hefur á að skipa nokkra af bestu söngvurum innan Gospelgeirans og hafa margir þekktir tónlistarmenn á íslandi kallað hópinn „best geymda leyndarmál Íslands“. Hópurinn hefur gefi ð út tvo geisladiska og er sá þriðji væntanlegur í sumar ásamt DVD disk. GIG hefur spilað víða hér heima og erlendis og sér um tónlistina í Krossinum. Framundan hjá GIG er ferð seinnipart sumars til USA þar sem þau mun halda tónleika víða um Bandaríkin. Hópurinn mun einnig ferðast um landið og kynna nýja diskinn í haust. Hægt er að fræðast meira um Gospel Ivasion Group á slóðinni: www.myspace.com/gospelinvasiongroup GIG SOLOMON JABBY n Emma og Martin Ahlbäck hafa sett saman skemmti- lega Reggae grúppu. Emma starfaði um skeið í Ghana og eftir þá reynslu setti hún saman bandið Akusia sem þjónar í söng og oft fylgja skemmtilegar sögur á milli laga. Akusia verður með tónleika sína á Víðistaðatúni mánudagskvöldið 23. júní eftir Jónsmessuskemmtunina í Hellisgerði. ON n Solomon Jabby er skemmtilegur Reggae listamaður sem spilar á hátíðinni DUB Reggae tónlist. Margar tegundir eru til í Reggae tónlistinni svo sem Gospel Reggae eins og Christafari spilar, Reggae Roots, Reggae Dancehall music, Soca, Jungle, Raggae muffi n, Reggae hip hop, Reggae Jamoo og svo Reg- gae Dub tónlist. Solomon spilar Dub tónlist og er hann einn af þeim sem verða með námskeið á hátíðinni um þessa tegund af tónlist. Nánari uppl. á www.biggospelfestival.com n John-Kyle Dickerson er 21 árs trúbator sem fer víða um og spilar og syngur um trú sína. John ferðast með hljómsveitinni Constella frá Florida og ætlar hann að spila á nokkrum kaffi húsum í bænum ásamt því að troða upp á Thorsplani og í nokkrum verslunarmiðstöðvum. REGGAE FRÁ SVÍÞJÓÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.