Fréttablaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 75
LAUGARDAGUR 31. maí 2008 35
Samningar BSRB og ríkisins
Reykjavík 2. júní kl. 16 BSRB - húsinu, Grettisgötu 89
Blönduós 2. júní kl. 16 Sjálfstæðishúsinu
Selfoss 2. júní kl. 16 Hótel Selfossi
Reykjavík 3. júní kl. 12 BSRB - húsinu, Grettisgötu 89
Akranes 3. júní kl. 16 Sjúkrahúsi Akraness
Ísafjörður 3. júní kl. 16 Sjúkrahúsi Ísafjarðar
Sauðárkrókur 3. júní kl. 16 Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks
Siglufjörður 3. júní kl. 16 Gistiheimilinu Hvanneyri
Vestmannaeyjar 3. júní kl. 16 Akoges-húsinu
Akureyri 4. júní kl. 16 Hótel KEA
Egilsstaðir 4. júní kl. 16 Hótel Héraði
Reykjanesbær 4. júní kl. 16 Bíósal Duushúsa
Kynningarfundir
BSRB verður með fundi um allt land til að kynna nýgerðan
samning bandalagsins við ríkið. Samningurinn gildir fyrir
starfsmenn ríkisins í eftirtöldum félögum:
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag starfsmanna
stjórnarráðsins, Kjölur-stéttarfélag starfsmanna í
almannaþjónustu, Samflot bæjarstarfsmannafélaga,
SFR-stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands,
Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag
Kópavogs, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og
Starfsmannafélag Suðurnesja.
Hefur lagt stund á dans frá unga aldri, komið fram á fjölda sýninga og kennt
dans, en eins og flestum er orðið kunnugt var hún kjörin Ungfrú Ísland árið
2005 og var síðar valin Ungfrú alheimur í Kína á sama ári. Í dag nemur hún
lögfræði við háskólann í Reykjavík.
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir
Hefur kennt dans í fjölda ára og dansað á sýningum og viðburðum, bæði
í leikhúsum og í sjónvarpi. Hún var meðal annars danshöfundur George
Michael-sýningarinnar sem var nýverið sýnd á Broadway og opnaði dans-
stúdíó undir eigin nafni haustið 2007.
Sigrún Birna Blomsterberg
Lauk dansaraprófi frá Konunglega sænska balletskólanum í Stokkhólmi árið
2003. Hún lenti í öðru sæti í „Tv-tävlingen“, sjónvarpskeppni ungra listdans-
ara í Svíþjóð, og hefur dansað með Íslenska dansflokknum frá haustinu
2003.
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Fékk fyrstu reynsluna af söngupptökum þegar hún söng dúett með Guð-
rúnu Gunnarsdóttur inn á plötu með lögum Heimis Sindrasonar, ellefu ára
gömul. Klara lenti í þriðja sæti í söngkeppni Samfés árið 2001, en hefur
verið hluti af stúlknabandinu Nylon síðan árið 2004.
Klara Ósk Elíasdóttir
Halla er útskrifuð frá leiklistar-
skólanum Guildford á Englandi
og hefur leikið og sungið frá unga
aldri. Halla hefur leikið í fjölda
auglýsinga, svo sem fyrir Mix,
Volkswagen og Sprite Zero, en
hún talaði einnig inn á teikni-
myndirnar Litlu hafmeyjuna
og Lion King 2 svo eitthvað sé
nefnt. Halla hefur einnig starfað í
sjónvarpi og var kynnir í X-factor
söngkeppninni á Stöð 2.
Halla Vilhjálmsdóttir
Starfaði meðal annars sem blaða-
maður hjá Morgunblaðinu og var
framkvæmdastjóri From Nowhere
Records, sem hann stofnaði,
þangað til hann útskrifaðist með
háskólapróf 2005. Hann hóf störf
hjá Baugi Group í október 2007
sem sérfræðingur á „Retail“-sviði
og er nú búsettur í New York.
Sigurður Pálmi
Sigurbjörnsson
Útskrifaðist af klassískri braut
Listdansskóla Íslands árið 2003
og var ráðin til starfa hjá Íslenska
dansflokknum 2004. Hjördís fór í
prufur fyrir Bandaríska dansþáttinn
„So You Think You Can Dance“ og
það verður spennandi að fylgjast
með framvindu mála þegar sýn-
ingar á þættinum hefjast.
Hjördís Lilja Örnólfs-
dóttir