Fréttablaðið - 31.05.2008, Síða 93
LAUGARDAGUR 31. maí 2008 53
Steven Tyler, söngvari
Aerosmith, segist hafa
skráð sig á meðferðar-
heimili til að geta jafnað
sig á aðgerð á fæti í
„öruggu umhverfi“.
Þurfti hann að gangast
undir aðgerðina eftir að
hafa meiðst á tónleik-
um.
Talið var að hinn sex-
tugi Tyler, sem hefur
verið laus við vímuefni í
tuttugu ár, hafi farið í
vímuefnameðferð en
Tyler hefur nú leið-
rétt þann misskilning.
„Læknarnir sögðu
mér að sársaukinn í
fætinum myndi
hverfa ef ég færi í
nokkrar aðgerðir,“
sagði hann í yfirlýs-
ingu sinni. Tyler átti
við mikinn vímuefna-
vanda að stríða á átt-
unda og níunda ára-
tugnum en hefur
haldið sér allsgáðum
síðan 1986.
„Það er búið að vera draumur hjá
mér lengi að geta spilað fyrir aðra
og skemmt öðrum. Þetta er mikið
tilhlökkunarefni,“ segir plötu-
snúðurinn Dj Raven, eða Helgi
Hrafn Pálsson, sem hefur fest
kaup á glænýjum Pioneer-græj-
um. Þær skarta Djm 800-mixer,
fjölda „effekta“, tveimur hljóð-
nemum og heyrnartólum. Þurfti
hann að slá lán fyrir herlegheitun-
um enda kostuðu þau hátt í hálfa
milljón króna.
Helgi Hrafn hefur getið sér gott
orð sem plötusnúður í Hinu húsinu
og í félagsmiðstöðinni Árseli, auk
þess sem hann hefur undanfarin
ár sungið víða með Blikandi stjörn-
um, sem er sönghópur fyrir fatl-
aða. Söng hann síðast á Egilsstöðum
við góðar undirtektir.
Helgi Hrafn, sem kallar sig líka
Dj Hrafninn, hefur hingað til not-
ast við hefðbundna geislaspilara á
diskótekum en langaði til að
stækka við sig og þróa stíl sinn
enn frekar. „Ég byrjaði að fitla við
þetta fyrr á þessu ári og hef feng-
ið ágætis viðtökur. Þegar ég byrj-
aði var ég mikið í Pottþétt-diskun-
um en síðan færði ég mig yfir í
Ibiza-tónlist, Ministry of Sound,
teknó, U2, rokk og bara allan pakk-
ann,“ segir Helgi, sem er jafn-
framt liðtækur trommuleikari.
Miðað við metnaðinn í Helga
Hrafni á hann eftir að ná langt
sem plötusnúður og vafalítið eiga
nýju græjurnar eftir að eiga
stóran þátt í því. - fb
SÁTTUR VIÐ GRÆJURNAR Helgi Hrafn
Pálsson, eða Dj Raven, einbeittur fyrir
framan nýju græjurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Fékk sér nýjar græjur
STEVEN TYLER Söngvari
Aerosmith fór í meðferð
vegna aðgerðar á fæti en
ekki út af vímuefnaneyslu.
Ekki dottinn í það
Smáralind