Fréttablaðið - 01.06.2008, Side 66
42 FERÐALÖG
Þ
egar Litháen öðlaðist
sjálfstæði frá Sovét-
ríkjunum voru teknar
niður styttur af Lenín
og Marx og öðrum táknmynd-
um kommúnismans. En hvað átti
að koma í staðinn? Listamaður-
inn Saulius Paukstys var með
svarið: Frank Zappa að sjálf-
sögðu. Hann stofnaði aðdáenda-
klúbb fyrir Zappa og lét reisa
styttu af hinu furðulega banda-
ríska rokkgoði í miðri borginni.
„Okkur langaði að reisa tákn fyrir
endalok kommún ismans og eitt-
hvað sem myndi hressa okkur
við,“ útskýrði Paukstys, sem við-
urkennir að Zappa hafi samt ekk-
ert með Litháen að gera nema ef
til vill sú staðreynd að hann hafi
litið dálítið út eins og gyðingur.
En í kringum styttuna af Zappa
myndaðist heilt hverfi af bylt-
ingarsinnuðum hippum í Uzupis
sem í kjölfarið mynduðu Lýðveldi
englanna. Undanfarin átta ár
hefur þetta litla lýðveldi átt eigin
sendiráð í Moskvu, eigin stjórnar-
skrá, tvær kirkjur og fjögur flögg
sem skiptast eftir árstíðum.
LÝÐVELDI ENGLANNA
Í gömlu hverfi í Vilníus, höfuðborg Litháens, er hópur íbúa sem reistu styttu til
heiðurs Frank Zappa og eru með eigin stjórnarskrá. Vilhelm Gunnarsson ljós-
myndari heimsótti Uzupis, paradís bóhemanna.
Listahátíð við hverfið.
Líf og fjör á tónlistarhátíð í Uzupis.
Uzupis er eitt elsta hverfi borgarinnar.
Gallerí og vinnustofa í Uzupis.Þegar fólk giftir sig festir það lás á brúna til merkis um ást sína.
Hinn sögufrægi Lada sést oft í hverfinu.
www.tækni.is
Umsóknarfrestur er til 11. júní
Hátækninám
Raftækniskólinn
Raftækniskólinn er hluti af Tækniskólanum, skóla atvinnulífsins.
Tækniskólinn er nýr framsækinn framhaldsskóli, sem byggir á
traustum grunni Fjöltækniskóla Íslands og Iðnskólans í Reykjavík.
Nám sem býður nemendum frábæra aðstöðu, góða kennslu
og spennandi verkefni.
• Grunnnám rafiðna
• Rafeindavirkjun
• Rafvirkjun
• Rafvélavirkjun
• Stúdentspróf