Fréttablaðið - 02.06.2008, Blaðsíða 50
18 2. júní 2008 MÁNUDAGUR
Þegar unglingsárin
skella á í allri sinni
dýrð stendur ungviðið
gjarnan í þeirri trú að
fátt sé skemmtilegra að
gera í lífinu en að fara á
rokktónleika í stórri tón-
leikahöll. Dýrðarsögur
eldri kynslóðanna af því
þegar þær sáu Led Zeppelin, Pulp
eða Rammstein troða upp á stórtón-
leikum magna upp löngun til þess
að fá að upplifa slíka skemmtun á
eigin skinni. Þegar kemur að frum-
rauninni sem tónleikagestur vill þó
gamanið gjarnan kárna heldur
fljótt þar sem unga fólkið uppgötv-
ar, sér til nokkurrar hrellingar, að
það er lítið gaman fyrir lágvaxna
að velkjast um í sveittu mannhafinu
þar sem ekkert annað er í sjónlínu
fyrir dvergana en bök og hnakkar
þeirra sem framar standa. Reyndar
er ekki öll von úti; fæstir hafa náð
endanlegri stærð sinni við ferming-
araldur og því þarf fyrsta stórtón-
leikareynslan ekki að vera for-
skriftin að síðari reynslu. Sumir
unglingarnir verða síðar að slánum
sem gnæfa yfir hvaða mannhaf
sem er og þurfa aldrei að hafa
áhyggjur af því hvort þeir muni sjá
á sviðið eða ekki. Flestir ungling-
arnir stækka eitthvað, en enda þó
innan skekkjumarka og eiga þannig
ágætis möguleika á að sjá stundum
eitthvað aðeins á rokktónleikum, í
það minnsta ef að þeim tekst að
staðsetja sig vel í salnum. En svo er
alltaf einhver hluti unglinganna
sem aldrei stækkar heldur stendur
í stað og nær aldrei að skríða upp
fyrir 160 sentimetra hæð. Hlut-
skipti þessara einstaklinga er sann-
arlega grátlegt; fyrir þeim liggur
að sjá aldrei nokkurn tímann, svo
lengi sem þeir lifa, glitta í tangur
né tetur af rokkhetjum sínum. Í
staðinn fá þessir vesalingar að
virða fyrir sér um alla eilífð hafsjó
af bökum íklæddum hljómsveitar-
bolum (lítið fólk er því oft meðvit-
aðra en aðrir um hvar hljómsveitir
leika á tónleikaferðalögum) eða
nöktum, sveittum og mis-loðnum
bökum. Eins áhugaverð og þessi
bakfræði getur nú verið vildi
eflaust flest smáfólkið skipta út
þekkingu sinni á greininni fyrir
sjónlínu á sviðið.
STUÐ MILLI STRÍÐA Hnakkar og bök
VIGDÍS ÞORMÓÐSDÓTTIR ER LÍTIL
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jeminn, Binni, ég veit að
þegar við hittumst sagð-
irðu að þú værir hrifinn
af löngum göngutúrum á
ströndinni... en ekki með
/%&#&# málmleitartæki!
Jæja! Við getum
spilað nokkur með-
algóð blúslög, en ég
sé engan söngvara
meðal okkar!
Nei! Þar
erum
við í
bobba!
Við getum
haldið
prufur?!
Þyrftum við
ekki að hafa
nafn líka?
Snilld!
Við
hengjum
upp
plaköt í
skólan-
um!
Góður punktur!
Það ætti að
vera nafn með
góðum hljómi!
Sem virkar bæði
utanlands og
innan!
Yes! Nafn
sem fær fólk
með hæfi-
leika til að
vilja syngja
með okkur!
Alright!
Fótsúpa
leitar söngv-
ara, prufur í
bílskúrnum
hans Magga,
föstudag
19.00
G E E E E E E I I I I I I I I I I I S P !
Glúgg
glúgg
Sker
sker
sker
Þú ofdekrar
hann.
Á ég að senda
drenginn í
skólann án
morgunmats?
Aftur í
skólann!
Mjási?
Ég var að hugsa að ég
get kannski lært að nota
dósaopnara.
Vá! Sjáðu
hvað ég
fann!
Hvað?
Þegar ég var á þínum aldri var
ég vön að fara í þetta og kalla
mig „Prinsessu Á-háum-hesti-
sem-stjórna-öllum-heiminum“
Er það?
Svo gekk ég um og skipaði
fyrir og lét þig kalla mig
„Yðar hátign“
Hahahah-
ahhaah-
haha!
Ég væri til í
að sjá það á
myndbandi!
Þú meinar,
„Ég væri til í
að sjá það á
myndbandi,
Yðar hátign!“
Eiðanemar
Nú er komið að því sem allir hafa talað um.
Ball á Borginni föstudaginn 13.júní!
Nemendur allra árganga og makar þeirra velkomnir.
Það verður bara gaman.
Nánari upplýsingar er að fi nna á
eidaball2008.blog.is