Fréttablaðið - 11.06.2008, Síða 18

Fréttablaðið - 11.06.2008, Síða 18
[ ]Útvarpið í bílinn er algerlega ómissandi. Gott er að hlusta á fréttirnar en enn betra er að spila uppáhaldslögin og syngja með af mikilli innlifun. BMW-mótorhjólaklúbburinn á Íslandi skellti sér nýlega til Þýskalands á námskeið í um- hverfisvænum mótorhjólaakstri. Fyrsta utanlandsferð BMW-mótorhjólaklúbbsins á Íslandi var farin til Hechlingen í Þýskalandi á dög- unum. Hechlingen er heiði sem er um 280 kílómetra frá Frankfurt. Ferðin var farin helgina 30. maí til 2. júní og var námskeið í umhverfisvænum akstri utan vegar haldið þá sömu helgi. Ellefu félagar klúbbsins heimsóttu Hechlingen en talið er að tveir Íslendingar hafi áður sótt þar námskeið. Í Hechling- en sér BMW um friðlýst svæði og notar það um leið til þess að kenna fólki að aka um þess háttar staði á mótorhjólum sínum. Fyrirtækið heldur þessi umhverfisvænu námskeið í átta mánuði á ári frá mars til október loka og er þetta í fysta sinn sem BMW-mótorhjólaklúbburinn á Íslandi sækir svona námskeið. Í þjóðgarðinum, þar sem námskeiðin fara fram, er mikið af fallegum leiðum sem eru að hluta gerðar af manna höndum. Hilmar Jónsson, meðlimur í BMW- mótorhjólaklúbbnum á Íslandi, fór í ferðina til Þýskalands. Hann segir að það sé ofboðslega fallegt í þjóðgarðinum og mikið af gróðri. „Þarna eru litlar geitur, einhverjar dverggeitur sem lifa villtar, og fleiri dýr,“ segir Hilmar og bætir við að mótorhjóla- aksturinn og umhverfið fari ekki illa saman. Á námskeiðinu voru þátttakendur kynntir fyrir umhverfisvænum akstri utan vegar. Hilmar segir að þeir hafi ekki lært þennan hefðbundna torfæru- eða drulluakstur sem þekkist hér á Íslandi heldur hafi áherslan verið á að æfa menn í að keyra á stíg- um, klettum og alls konar ófærum. Með BMW-nám- skeiðunum er reynt að gera umferðarmenninguna betri og þjálfa fólk í vönduðum akstri utan vegar og það fellur vel saman við stefnu BMW-mótorhjóla- klúbbsins á Íslandi. Hilmar segir að BMW-fyrirtækið geri mikið til að þjálfa fólk á mótorhjólin, sem eru mjög vönduð. „Þessi hjól eru einstaklega skemmtileg að vinna á. Þetta eru ekki þessi töffarahjól. Á þessum hjólum ertu öruggur bæði á malbiki og möl,“ segir Hilmar ánægður. martaf@frettabladid.is Hjólahelgi í Þýskalandi Félagar úr BMW-klúbbnum á Íslandi. Hilmar Jónsson er annar frá hægri. Í Þýskalandi er þjóðgarður sem BMW sér um og er notaður til að kenna fólki að aka um friðlýst svæði. Ótrúlegur gljái og bónhúð sem endist Perlz bílasápa og skolbón Bón og bílhreinsivörur. BÓNVAL Súðavogi 32. 104 Reykjavík S: 557 6460 Opnunartími Mán - Föst 10-18 smur- bón og dekkjaþjónusta sætúni 4 • sími 562 6066 sumardekk heilsársdekk olís smurstöð bón og þvottur hjólbarðaþjónusta rafgeymaþjónusta bremsuklossar allt á einum stað KERRUÖXLAR Í ÚRVALI og hlutir til kerru- smíða Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 Smiðjuvegur 38 rauð gata • Sími 564 0606 • Fax 564 0636 www.bilastod.is • bilastod@simnet.is GERUM VIÐ ALLAR TEGUNDIR BÍLA Fegurðin býr í felgunum... K ó p a v o g u r, S m i ð j u v e g i 6 8 - 7 0, s í m i 5 4 4 5 0 0 0 N j a r ð v í k , F it jabraut 12, sími 421 1399 S e l f o s s, Gagnhe ið i 2 , s ími 482 2722 Varah lu tavers lun B jö rns He l lu , Lyngás 5 , s ími 487 5995SÓLNING Verð frá 12.899* Sólning býður eitt landsins mesta úrval af ál og krómfelgum *pr. stk. 15 x 6,5 gatadeiling 4 x 100. SK A P A R IN N A U G LÝ SI N G A ST O FA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.