Fréttablaðið - 11.06.2008, Side 51
MIÐVIKUDAGUR 11. júní 2008 27
FÓTBOLTI Valsarinn Guðmundur
Benediktsson var hjá sjúkraþjálf-
ara þegar Fréttablaðið sló á
þráðinn til hans í gær til að taka
stöðuna á meiðslum hans. „Ég er
á kunnuglegum stað,“ sagði
Guðmundur léttur þrátt fyrir allt.
Hann er meiddur á liðbandi í
ökkla. „Þeir segja mér að það sé
erfitt að eiga við þetta“.
Guðmundur hefur aðeins tekið
þátt í tveimur leikjum Vals í
sumar og sér enn ekki fyrir
hvenær hann snýr aftur. „Ég get
ekki gefið upp neina dagsetningu
en þetta er allt að þokast í rétta
átt. Ég get í það minnsta aðeins
skokkað. Annars er ég rólegur, ég
bíð bara þar til líkaminn leyfir
mér að gera meira,“ sagði
Guðmundur sem hefur glímt við
þó nokkur meiðsli á ferli sínum.
„Ég þekki þetta orðið ágætlega,“
sagði framherjinn. - hþh
Guðmundur Benediktsson:
Líkaminn leyfir
bara skokk í bili
GUÐMUNDUR FRÁ Guðmundar er sárt
saknað af Val. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
FÓTBOLTI Þróttarar urðu fyrir
nokkru áfalli er í ljós kom að
framherjinn Adolf Sveinsson
hefði fengið gat á lungað í
leiknum gegn Fylki.
Adolf lenti illa á bakinu
snemma í leiknum og fór fljótlega
af velli. Í kjölfarið átti hann í
vandræðum með andardrátt, sem
leiddi til þess að hann var fluttur
á brott með sjúkrabíl og eyddi
hann nóttinni á sjúkrahúsi.
„Ég má nánast ekkert gera.
Næst á dagskrá er myndataka á
föstudaginn þar sem ég fæ að vita
næsta skref. Ég veit ekkert hvað
ég verð lengi frá,“ sagði Adolf við
Vísi í gær. - hbg
Slæmar fréttir fyrir Þróttara:
Adolf fékk gat
á lungað
ADOLF Meiddist verr en margur hélt í
leiknum gegn Fylki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EM 2008 Sá sem skorar fyrsta
mark Austurríkis á Evrópumót-
inu í ár fær ævibirgðir af bjór í
staðinn. „Kannski er þetta
hvatningin sem leikmenn þurfa
til að ná árangri í mótinu,“ sagði
Sigi Menz, yfirmaður Ottakringer
-brugghússins sem gefur bjórinn.
Austurríki tapaði 1-0 gegn
Króatíu og á enn eftir að mæta
Pólverjum og Þjóðverjum á
fyrsta Evrópumót sem heima-
þjóðin tekur þátt í. - hþh
Fyrsti markaskorari Austurríkis:
Fær ævibirgðir
af bjór í staðinn
VINSÆLL Ottakringer-bjórinn er vinsæll
eins og sést bersýnilega á þessari mynd.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
EM 2008 Það er stórleikur í A-riðli í
dag sem gæti skorið úr um það
hvort Tékkar eða Portúgalar vinna
riðilinn. Bæði lið unnu fyrsta leik,
missannfærandi. Portúgalar litu
vel út en Tékkar ollu mörgum
vonbrigðum. „Við þurfum að spila
betur en gegn Sviss ef við ætlum
að vinna,“ sagði Karel Brückner,
þjálfari Tékka. Hann bætti við að
Ronaldo væri maðurinn sem þyrfti
að stöðva. „Hann er einfaldlega
stórkostlegur.“
Sviss og Tyrkland mætast í
síðari leiknum í kvöld. - hþh
Tékkar mæta Portúgal í dag:
Við þurfum að
stoppa Ronaldo
EM 2008 „Hollendingar áttu
sigurinn skilinn, það var eins og
þeir væru heimsmeistarar en
ekki við,“ sagði meðal annars í
ítalska blaðinu Gazzetta dello
Sport í gær. Ítalir töpuðu 3-0 fyrir
Hollandi og umfjöllun fjölmiðla í
heimalandinu var eftir því. „Ái,
hvílíkt áfall!“ sagði stórum
stöfum og hafa fáir þar á bæ trú á
sínu liði eftir útreiðina. - hþh
Ítalskir fjölmiðlar fóru mikinn:
Tóku landsliðið
sitt af lífi í gær
ÓSÁTTUR Camaronesi bendir ósáttur á
eftir að Nistelrooy skoraði umtalað en
fullkomlega löglegt mark. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Landsbankinn býður 16 ára og yngri á völlinn.
Sækja þarf boðsmiðann í næsta útibú Landsbankans.
mið. 11. júní
9. umferð
Fjölnir Fylkir19:15
Landsbankadeild karla
Valurmið. 11. júní
mið. 11. júní
fim. 12. júní
fim. 12. júní
fim. 12. júní
6. umferð
KR
Stjarnan Breiðablik19:15
19:15
Þór/KA Fylkir19:15
HK/Víkingur Keflavík19:15
Fjölnir 19:15 Afturelding
Landsbankadeild kvenna
FÓTBOLTI Spánverjar unnu Rússa
og Svíar skelltu Evrópumeistur-
um Grikkja í fyrstu leikjum D-rið-
ils á EM í gær.
Rússarnir byrjuðu af krafti
gegn Spánverjum en var refsað
illilega strax á 20. mínútu þegar
framherjinn David Villa skoraði
fyrsta mark leiksins eftir vel
útfærða skyndisókn. Fernando
Torres lék á varnarmann Rússa og
átti stoðsendinguna á Villa, sem
skoraði af öryggi af stuttu færi.
Rússar reyndu að svara og áttu
skot í stöng stuttu síðar en það
voru Spánverjar sem skoruðu
mörkin.
Villa var aftur á ferðinni í lok
fyrri hálfleiks þegar hann fékk
fullkomna sendingu frá Andrés
Iniesta inn fyrir vörn Rússa og
kláraði færi sitt vel einn á móti
Igor Akinfeev í markinu.
Snemma í seinni hálfleik var
framherjanum Torres svo skipt út
af fyrir miðjumanninn Cesc
Fabregas vegna taktískrar breyt-
ingar á spænska liðinu en það
stoppaði ekki Villa því á 75. mín-
útu fullkomnaði hann þrennu sína.
Varamaðurinn Fabregas átti þá
sendingu á Villa, sem fór illa með
tvo varnarmenn Rússa og skoraði
í nærhornið. Frábærlega gert hjá
þessum knáa framherja, sem var
óstöðvandi í leiknum.
Þrátt fyrir markatöluna og oft á
tíðum vafasaman varnarleik
sýndu Rússarnir fína takta inni á
milli og náðu að minnka muninn á
86. mínútu þegar Roman Pavlu-
chenko skoraði með skalla eftir
hornspyrnu.
Spánverjar voru hins vegar ekki
hættir og í uppbótartíma hirti
Fabregas frákastið eftir skot Xavi
og skallaði boltann í autt markið.
Lokatölur 4-1 fyrir Spánverja,
sem líta feikilega vel út og menn
hljóta að spyrja sig hvort tími
þeirra til að ná árangri á stórmóti
sé nú loksins kominn.
Grískur harmleikur
Evrópumeistarar Grikkja hófu tit-
ilvörn sína gegn Svíum og spiluðu
sinn taktíska leik, þar sem þeir
liggja aftarlega á vellinum og
treysta mikið á föst leikatriði, sem
tryggði þeim Evrópumeistaratitil-
inn í Portúgal árið 2004.
Svíarnir voru einnig varkárir til
að byrja með. Þeir sóttu svo meira
eftir því sem líða tók á leikinn, en
Grikkir voru fastir fyrir. Það
þurfti því einhverja snilld, eitt-
hvert einstaklingsframtak, til þess
að brjóta leikinn upp og það kom
frá Zlatan Ibrahimovic á 67. mín-
útu. Markið var einkar glæsilegt
en Henrik Larsson lagði boltann
aftur á Ibrahimovic sem skaut
honum efst í markhornið fjær.
Markið sló Grikkina algjörlega út
af laginu og þeir þurftu að umturna
leikskipulagi sínu. Stuttu síðar
gerðu Svíarnir út um leikinn með
öðru marki. Varnarmaðurinn Pett-
er Hansson skoraði þá af harðfylgi
og þar við sat. Lokatölur 2-0. - óþ
Leikið var í D-riðli á EM í gær þar sem Spánverjar og Svíar lönduðu sigrum:
Spánverjar sýndu styrk sinn
ÞRENNA David Villa fór á kostum í fyrsta leik Spánverja á EM í gær og skoraði þrjú
glæsileg mörk gegn lánlausum Rússum, sem vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið.
NORDIC PHOTOS/GETTY