Fréttablaðið - 02.07.2008, Page 34
26 2. júlí 2008 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Garðar Örn Hinriksson
dómari hefur staðið í ströngu í
sumar. Síðast í leik KR og ÍA þar
sem hann þurfti þrisvar að grípa
til rauða spjaldsins.
„Ég hef þolinmæði fyrir smá
kvarti en þegar menn eru orðnir
dónalegir þá fá þeir spjald,“ sagði
Garðar Örn í útvarpsþættinum
Skjálfanda á X-inu 977 í gær.
Mörgum finnst sem Garðar sé á
köflum fullfljótur í að spjalda
menn í sumar og leiði ekki hjá sér
svekkelsi leikmanna. Garðar segir
vera skýringu á því.
„Ég veit að það verður allt vit-
laust í þjóðfélaginu þegar ég segi
þetta en ég tel mig vera mun betri
í ár en í fyrra. Ástæðan fyrir því
að ég spjalda meira og fyrr er sú
að menn eru orðnir dónalegri. Ég
hef fengið að heyra margt ljótt í
sumar,“ sagði Garðar Örn, sem
gaf aðeins eitt rautt spjald síðasta
sumar.
Garðar Örn segir landslagið í
boltanum vera að breytast mikið
hér á landi. Hann verði var við það
sem og kollegar hans.
„Það er alveg klárt að menn eru
að rífa meiri kjaft núna en áður og
eru með ljótari talsmáta. Það er
búið að vera mjög erfitt að dæma í
sumar. Mikið áreiti innan sem
utan vallar. Það er ekkert grín að
dæma þessa leiki í dag og þá er ég
ekki bara að tala um það sem ger-
ist innan vallar heldur líka utan
vallar. Maður veit ekki hverju
maður á von á.
Eftir leikinn á KR-vellinum leit
ég stöðugt aftur fyrir mig ef ein-
hver hefði hlaupið inn á völlinn.
Það eru tveir menn að verja mig.
Hvað ætla þeir að gera ef fimmtán
manns hlaupa inn á völlinn? Þá
hjálpar flautan mér ekkert.
Dómarar eru farnir að óttast um
öryggi sitt. Áhorfendur eru oft
fyrir ofan þar sem við löbbum til
búningsherbergja og við bíðum
alltaf eftir því að einhverju verði
kastað í okkur. Það er nánast orðið
hættulegt að vera dómari hérna.
Það hefur enn ekkert gerst en það
kemur að því. Ég get lofað því,“
sagði Garðar þungur á brún og
bætir við:
„Áhorfendur hér á landi eru
orðnir miklu verri en áður,“ sagði
Garðar en hann hefur tapað gleð-
inni í þeim látum sem hafa verið
síðustu vikur.
„Eins og ástandið er í dag þá hef
ég rosalega lítinn áhuga á því að
dæma. Þetta er leiðinlegt og
maður getur ekki einu sinni farið
niður í miðbæ um helgar að
skemmta sér. Ég verð bara að fá
mér hárkollu og yfirvaraskegg ef
ég ætla að labba óáreittur niður
Laugaveginn um helgar. Ég hef
ekki farið í miðbæinn í marga
mánuði. Ég treysti mér ekki til
þess,“ sagði Garðar en hvað á að
gera til að breyta þessu?
„Ég veit það ekki en menn geta
kannski byrjað á því að róa sig
niður og vanda orðavalið í viðtöl-
um. Þetta er ekkert venjulegt
orðaval heldur er valtað yfir
menn. Menn eru teknir af lífi,“
sagði Garðar, sem útilokar ekki að
leggja flautuna á hilluna í lok sum-
ars. „Ef þetta heldur svona áfram
þá hætti ég. Þetta er ekki þess
virði,“ sagði Garðar Örn Hinriks-
son. henry@frettabladid.is
Dómarar óttast um öryggi sitt
Garðar Örn Hinriksson segir knattspyrnuna á Íslandi vera á rangri leið. Hann segir hegðun leikmanna og
áhorfenda hafa versnað mikið og að dómarar óttist um öryggi sitt á leikjum. Garðar segir ekki spurningu
hvort heldur hvenær dómari slasist. Hann ætlar að leggja flautuna á hilluna lagist ástandið ekki.
FARÐU UPP Í STÚKU Garðar Örn Hinriksson hefur lent í ýmsu í sumar. Hann sést hér vísa Guðjóni Þórðarsyni upp í stúku í hálfleik
á leik KR og ÍA. Stefán Þórðarson hristir hausinn yfir öllu saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Garðar Örn Hinriksson
setti nýtt met í efstu deild þegar
hann lyfti sínu áttunda og níunda
rauða spjaldi í leik KR og ÍA á KR-
vellinum á mánudagskvöldið.
Enginn annar dómari í sögu
efstu deildar á Íslandi hefur rekið
jafnmarga leikmenn út af með
rautt spjald á einu tímabili. Þessu
náði Garðar Örn í sínum níunda
leik. Það eru enn þrettán umferðir
eftir af deildinni.
Í þessari tölfræði er aðeins átt
við leikmenn á vellinum en það er
ekki innifalið þegar dómari rekur
þjálfara, aðstoðarþjálfara eða for-
ráðamenn af bekknum. Garðar
hefur gefið þrjú slík rauð spjöld í
sumar og því tólf rauð spjöld í
heildina.
Þrír dómarar áttu gamla metið,
Gylfi Þór Orrason (1994), Ólafur
Ragnarsson (1995) og Kristinn
Jakobsson (1999), en þeir gáfu alls
sjö rauð spjöld þessi sumur.
Garðar Örn hafði mest gefið sex
rauð spjöld sumarið 2006.
Garðar Örn Hinriksson hefur
rekið fjóra leikmenn af velli í
þeim þremur leikjum sem hann
hefur dæmt hjá Skagamönnum í
sumar en hann rak Jón Vilhelm
Ákason út af í 1-1 jafntefli ÍA og
Breiðabliks, rak Andra Júlíusson
út af í 0-0 jafntefli ÍA og Vals og
svo rak hann bæði Vjekoslav
Svadumovic og Bjarna Guðjóns-
son út af í 0-2 tapi ÍA á móti KR.
Í þessum þremur leikjum hefur
Garðar alls lyft 20 spjöldum,
Skagamenn hafa fengið 18 en
mótherjar þeirra aðeins tvö. - óój
Garðar Örn Hinriksson skráði sig á spjöld sögunnar í leik KR og ÍA:
Nýtt Íslandsmet í rauðum spjöldum
Í KUNNUGLEGRI STELLINGU
Garðar Örn, sem oft er kallaður
Rauði baróninn, hefur lyft ófáum
spjöldunum í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
FLEST RAUÐ SPJÖLD Á
TÍMABILI Í EFSTU DEILD:
Garðar Örn Hinriksson 2008 9
Gylfi Þór Orrason 1994 7
Ólafur Ragnarsson 1995 7
Kristinn Jakobsson 1999 7
Egill Már Markússon 1993 6
Bragi Bergmann 1998 6
Kristinn Jakobsson 2004 6
Kristinn Jakobsson 2005 6
Garðar Örn Hinriksson 2006 6
Erlendur Eiríksson 2006 6
KR og ÍA mættust í viðburðaríkum leik í Landsbankadeild
karla í fyrrakvöld þar sem dómarinn Garðar Örn Hinriksson
gaf tveimur leikmönnum ÍA, sem og þjálfaranum Guðjóni
Þórðarsyni, rautt spjald. Garðar hótaði enn fremur að flauta
leikinn af, eftir að Guðjón var tregur til að færa sig í þá fjarlægð
frá varamannaskýli Skagamanna sem dómarinn fór fram á, og
hefði haft rétt til þess samkvæmt lögum KSÍ. Guðjón var veru-
lega ósáttur við dómgæsluna og lét fremur þung orð falla í
viðtölum við fjölmiðla eftir leikinn þar sem hann sakaði
meðal annars Garðar Örn um að beita ÍA ofbeldi og
kvað dómarann bakkaðan upp í því af ákveðnu
valdi og átti þar við KSÍ. Þórir Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, ætlar ekki að taka sérstaklega á
ummælum Guðjóns að svo stöddu máli.
„Guðjón fékk brottvísun í leiknum fyrir eitthvað
sem dómarinn mat sem svo að væri brottvísunar
virði og skýrsla dómarans fer bara fyrir aga- og
úrskurðarnefndina eins og lög og reglur gera ráð
fyrir. Ég ætla ekkert að tjá mig um hvort rauða
spjaldið sé næg refsing fyrir hátterni Guðjóns en mér finnst
ummæli hans aftur á móti ekki af þeim toga að það þurfi
að skjóta þeim sérstaklega fyrir aga- og úrskurðarnefndina
og því sleppti ég því fyrir fundinn í gær. Ég á því ekki von á
því að frekar verði aðhafst í málinu,“ sagði Þórir, sem telur
ummæli Guðjóns ekki jafn alvarleg og neikvæð ummæli sem
hann lét falla um dómarann Ólaf Ragnarsson og KSÍ eftir leik
Keflavíkur og ÍA fyrr í sumar. Guðjón fékk þá eins leiks
bann og ÍA var enn fremur dæmt til þess að
borga tuttugu þúsund króna sekt.
„Það er mitt mat að ásakanir þær sem Guð-
jón lét falla eftir leik Keflavíkur og ÍA, um að
KSÍ og menn innan sambandsins hefðu rangt
við, hafi verið mun alvarlegri,“ sagði Þórir að
lokum.
Guðjón Þórðarson var því dæmdur í eins
leiks bann af aga- og úrskurðarnefndinni í
gær, sem og Skagamennirnir Bjarni Guðjóns-
son og Vjekoslav Svadumovic.
ÞÓRIR HÁKONARSON, FRAMKVÆMDARSTJÓRI KSÍ: Á EKKI VON Á ÞVÍ AÐ FREKARI EFTIRMÁL VERÐI AF LEIK KR OG ÍA
Ummæli Guðjóns ekki tekin frekar fyrir
> Fimm bikarleikir í kvöld
Fimm leikir fara fram í átta liða úrslitum VISA-bikars
karla í kvöld og hefjast þeir allir klukkan 19.15. Einn allra
athyglisverðasti leikur kvöldsins er á milli Fjölnis og ÍBV
á Fjölnisvelli en það munaði bara einu stigi
á liðunum í 1. deildinni í fyrra þegar þau
börðust um sæti í Landsbankadeild-
inni. Fjölnir fór upp en ÍBV sat
eftir í 1. deildinni. Fjölnir
hefur síðan slegið í gegn
Landsbankadeildinnni en
ÍBV er komið með gott forskot í 1.
deildinni. Aðrir leikir kvöldsins eru
Víðir-Fylkir á Garðsvelli, Víkingur
R.-Hamar á Víkingsvelli, Haukar-HK
á Ásvöllum og Reynir S.-Grindavík í
Sandgerði.
FÓTBOLTI Í gærdag var dregið í
fyrstu umferð forkeppni Meist-
aradeildar Evrópu og þar mæta
Íslandsmeistarar Vals liði Bate
frá Hvíta-Rússlandi. Fyrri
viðureign liðanna verður í Hvíta-
Rússlandi þann 16. júlí næstkom-
andi en seinni leikurinn verður á
Vodafone-vellinum viku síðar en
sigurvegarinn úr einvíginu mætir
Anderlecht frá Belgíu í annarri
umnferðinni.
Bate sló FH út úr annarri
umferð keppninnar í fyrra með
því að vinna 1-3 í Kaplakrika og
gera svo 1-1 jafntefli í seinni
leiknum í Hvíta-Rússlandi.
Willum Þór Þórsson, þjálfari
Vals, gat ekki leynt vonbrigðum
sínum með dráttinn en hlakkar til
verkefnisins.
„Þetta var ekki draumadráttur,
svo mikið er víst. Ég ætla ekki að
fara í grafgötur með að Bate var
það lið í pottinum sem við vildum
alls ekki fá. Bæði er þetta
getulega gríðarlega öflugt lið og
auk þess bíður okkar langt og
strangt ferðalag til Hvíta-
Rússlands. En það þýðir ekkert að
kvarta undan þessu og markmið
okkar um að komast í aðra
umferð stendur enn,“ sagði
Willum Þór. - óþ
Willum Þór, þjálfari Vals:
Þetta var ekki
draumadráttur
EFTITT VERKEFNI Valur mætir FH-bönun-
um í Bate í fyrstu umferð forkeppni
Meistaradeildar Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL