Fréttablaðið - 26.07.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500026. júlí 2008 — 202. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
LAUGARDAGUR
HYLMT YFIR
ÍSLENSKUM NJÓSNUM
Chay Lemoine hefur
rannsakað leyniskjöl
um Halldór Laxness.
HELGARVIÐTAL 20
Hjónin Erla Dögg Ingjaldsdóttir
og Tryggvi Þorsteinsson hafa rekið
arkitektastofuna Minarc í Los Ang-eles við góðan orðstír síðustu tíu
ár. Þau eru nú að kynna nýja fram-sækna tækni í byggingaframleiðslu
og ætla að setja fyrstu húsin, sem
kallast M3house, á markað næsta
haust. Þau hafa nú þegar hlotið um-hverfisverðlaun viðskiptadeild-ar Santa Monicu fyrir M3house
og Residential Architect Design
Award, ein virtustu verðlaun íbúð-arhúsaarkitekta í Bandaríkjunum.„Okkar hugmynd gengur út á
að skapa hús úr endurunnu efni,
sem jafnframt er endurnýtanlegt
eða lífrænt svo það brotni niður aðloknum líftíma hú
með velmeguninni, svo nú er öllu
hent og rusl staflast up “Tr
Orkulega sjálfbær og endurvinnanleg Hjónin Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson, sem reka arkitektastofuna
Minarc í Los Angeles, eru að setja byltingarkennd hús á markað næsta haust.
Húsið þeirra Erlu og Tryggva. Þau eru með borðstofu með arineldi úti á verönd.
MYNDIR/ÚR SAFNI MINARC
Teikning af M3house. Húsin eru gerð úr vönduðum panel-einingum sem auðvelt er
að setja saman og taka sundur aftur.
nidepli
kafor-
en
ýrt er
epli
26. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR
FY
LG
IR
Í
D
A
G
NÆSTUM NYIR BILAR
www.heklanotadirbilar.is2,25%
VIÐSKIPTI „Það fara 44 nýir Land
Cruiser 200-jeppar úr landi í næstu
viku,“ segir Úlfar Steindórsson,
forstjóri Toyota á Íslandi. Þeir eru
seldir héðan til Toyota í Þýska-
landi.
Samkvæmt heimildum Markað-
arins hafa á milli fjögur og fimm
hundruð nýir bílar sem komnir
voru hingað til lands verið sendir
úr landi eða eru á leiðinni út.
Þetta er þó einungis um
tíundipartur af nýjum bílum
hjá umboðum hérlendis, en
talið er að þeir séu nálægt fjór-
um til fimm þúsundum.
Úlfar segir að samdráttur
hafi verið hraður og mun hrað-
ari en nokkurn tíma hafi verið búist
við. Hins vegar verði að taka tillit
til þess að árin 2005 til 2007 hafi
verið bestu söluár nýrra bíla hér-
lendis frá upphafi. „Þess verður að
gæta þegar verið er að bera saman
samdrátt á milli ára,“ segir hann.
Loftur Ágústsson, markaðsstjóri
Ingvars Helgasonar ehf., segir að
þeirra umboð hafi ýmist stöðvað
eða endursent um 200 bíla. „Fjórð-
ungur af þeim var kominn hingað
til lands. Hinir bílarnir voru stopp-
aðir í höfnum og þeim beint annað,“
segir Loftur.
„Nú eru að fara frá okkur um
fjörutíu bílar,“ segir Sverrir V.
Hauksson, framkvæmdastjóri bíla-
sviðs Heklu. Hann segir Heklu líka
hafa náð að stoppa bíla sem voru á
leið til landsins. „Við höfum gert
töluvert meira af því en að senda
bíla úr landi,“ segir hann og telur
að meirihluti bílanna sé í dýrari
kantinum.
Sverrir segist sjá teljandi mun á
því hvaða bíla fólk sé að skoða
núna. Aukinn áhugi sé á sparneytn-
ari bílum en hins vegar hafi ekki
orðið breyting á sölumynstri enn
sem komið er. Hann segir lang-
flesta þeirra sem taka lán, taka þau
í erlendri mynt. Bílaumboðin virð-
ast vera með þeim einu hérlendis
sem enn hafa aðgengi að erlendu
fjármagni. - as
Nýir óseldir bílar
fluttir aftur úr landi
35 prósenta samdráttur hefur verið í nýskráningu bíla eftir gengishrun í mars
í samanburði við sama tíma í fyrra. Talið er að milli 400 og 500 nýir bílar sem
komnir voru hingað til lands hafi verið sendir úr landi eða séu á leiðinni út.
EFNAHAGSMÁL „Óskhyggja og fögur orð stjórnvalda
duga skammt í baráttunni við núverandi efnahagsað-
stæður. Aðgerða er þörf ef ekki á illa að fara,“ segir
Richard Thomas, greinandi Merrill Lynch-fjárfest-
ingarbankans, um stöðu íslensku bankanna.
Í skýrslunni er því fleygt fram að Englandsbanki
og Seðlabanki Bandaríkjanna hafi hlaupið undir
bagga með þarlendum fjármálafyrirtækjum. Hann
spyr hvort þessu sé öðruvísi farið hérlendis og það
stefni hugsanlega í þjóðnýtingu bankanna eða gjald-
þrot.
„Svona ummæli dæma sig sjálf,“ segir Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og starf-
andi forsætisráðherra. Hún veltir fyrir sér hvort ein-
hverjar annarlegar hvatir búi þar að baki.
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra segir
gott samstarf milli stjórnvalda og fjármálakerfisins
og undrast þá gagnrýni sem sett er fram í skýrslunni.
„Það er verið að vinna að því að styrkja stöðu fjár-
málakerfisins og lántakan er stærsti hlutinn í þeirri
aðgerð,“ segir hann.
- bþa / sjá síðu 10
Merrill Lynch-fjárfestingarbankinn spyr hvort stefni í þjóðnýtingu banka hér:
Aðgerða þörf ef ekki á illa að fara
BJART MEÐ KÖFLUM Í dag verða
austan 5-13 m/s sunnan og suð-
vestan til, annars hægari. Hálf- eða
léttskýjað víða um land. Hiti 14-22
stig, hlýjast til landsins norðaustan
til.
VEÐUR 4
15
20
20
16
17
20
22
GAMLA GENGIÐ STÓÐST VÆNTINGAR
Buena Vista Social Club stóð vel fyrir
sínu á tónleikum í Vodafone-höllinni.
28
Sviptingar í Eyjum
Atvinnukylfingur er í fararbroddi í
karlaflokki á Íslandsmótinu í golfi en
sextán ára stúlka í kvennaflokki.
31
HEITASTI DAGUR SUMARSINS Gunnsteinn, Íris og Telma busluðu í sjónum við Löngulínu í Garðabæ og nutu þannig blíðviðrisins á
höfuðborgarsvæðinu í gær. Hitastigið í Reykjavík fór yfir 22 gráður og var dagurinn sá hlýjasti í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STÓRIÐJA „Landsvirkjun hefur
enga skoðun á þessum hugmynd-
um iðnaðarráðherra,“ segir
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, um hugmyndir
Össurar Skarphéðinssonar um að
bjóða út orkuvinnsluna á háhita-
svæðunum á
Norðaustur-
landi sem hann
viðraði á
bloggsíðu sinni í
fyrradag.
Guðrún María
Valgeirsdóttir,
sveitarstjóri
Skútustaða-
hrepps, segir að
aðeins jarðeig-
endur geti boðið
verkefnin út.
Össur nefnir fyrirtækin Enex og
Geysi Green sem góða kosti til að
taka við verkefninu. „Það hafa
verið lagðir rúmlega fimm
milljarðar til þessa verkefnis þó
ekki sé búið að skrifa undir
samninga, mér er það til efs að
eitthvert einkafyrirtæki væri
tilbúið til slíks,“ segir Hreinn
Hjartarson, verkefnastjóri
Þeistareykja ehf., sem vinna að
verkefninu með Landsvirkjun.
- jse / sjá síðu 6
Hugmyndir iðnaðarráðherra:
Verkefni tekin
af Landsvirkjun
SLYS Tveir menn voru fluttir með
þyrlu til Reykjavíkur eftir að
jeppi valt við Fornahvamm efst í
Norðurárdal laust eftir klukkan
sjö í gærkvöld.
Mennirnir tveir slösuðust
alvarlega að sögn læknis á
slysadeild Landspítala í gærkvöld
en líðan þeirra var stöðug þegar
Fréttablaðið fór í prentun.
Þrír pólskir karlmenn voru í
bifreiðinni sem valt, að sögn
lögreglu í Borgarnesi. Sá þriðji
var fluttur með sjúkrabíl undir
læknishendur á Heilsugæslustöð-
ina í Borgarnesi.
Grunur leikur á að ökumaður
hafi verið ölvaður undir stýri. - ht
Þyrla sótti tvo slasaða menn:
Veltu jeppa í
Norðurárdal
FRIÐRIK
SOPHUSSON