Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 12
12 26. júlí 2008 LAUGARDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365
RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís
Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA:
Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björn Ingi Hrafnsson og Óli Kr. Ármannsson. Fréttablaðið kemur út í
103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
UMRÆÐAN
Sigmar Eðvarðsson svarar frjálslyndum
Í Fréttablaðinu fimmtudaginn 24. júlí beina Guðmundur Guðmundsson og Ólafur R.
Sigurðsson nokkrum spurningum til mín
fyrir hönd Frjálslynda flokksins í Grindavík.
Sjálfsagt er að svara þeim.
Kostnaður af bæjarstjóraskiptum er
hvergi kominn í ljós og verður miklu meiri
heldur en hefur verið sagt þegar öll kurl
koma til grafar. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur
gerðu ráðningarsamning við Ólaf Örn Ólafsson.
Samningurinn var eins og samningur sem Framsókn-
arflokkur og Sjálfstæðisflokkur gerðu 1998 við
forvera Ólafs, Einar Njálsson. Sams konar samning-
ur, sama krónutala.
Þegar samningurinn við Ólaf var gerður voru
áform flokkanna að starfa saman út kjörtímabilið. En
vegna eiginhagsmunasemi Jónu Kristínar og
valdagræðgi hrifsaði hún til sín sætið og gerði þar
með bæjarstjórastólinn að pólitísku bitbeini. Það er
eitt að gera samning annað að rifta. Þegar samningi
er rift þá kostar það peninga og sú ábyrgð mun alltaf
hvíla á herðum þeirra sem það gerðu.
Framsóknarflokkur og Samfylking gerðu starfs-
lokasamninginn við Ólaf Örn og enginn annar.
Þess vegna er hann á þeirra ábyrgð núna.
Útreiknaður launasamningur við nýjan
bæjarstjóra, sem nýr meirihluti hefur sagt
að sé sá kostnaður sem bæjarbúar muni
bera, er 985.000 kr. á mánuði, auk aksturs-
kostnaðar upp á 120.000 kr. og vaxtatap að
jafnaði 243.000 kr. á mánuði. Samtals hljóðar
þetta upp á heilar 40.296.144 kr. að núvirði. Í
Grindavík búa 2.720 íbúar og þýðir þetta
14.815 kr. skatt á hvern íbúa.
Ég gat ekki greitt atkvæði mitt með nýjum
ráðningarsamningi við Jónu Kristínu, þó svo
að hann væri sagður 20% lægri en það eru ósannindi
því bílastyrkurinn var hækkaður um 25%. Mér finnst
í lagi að greitt sé vel fyrir reynslumikinn og vel
menntaðan mann með rekstrar- og stjórnunarhæfi-
leika eins og bæjarstjóri þarf að vera. Í þessu tilfelli
finnst mér mikið vanta upp á.
Að lokum vil ég benda á að Ólafur og Guðmundur
ættu að snúa sér með allar þessar spurningar til
Björns Haraldssonar, bæjarfulltrúa Frjálslynda
flokksins í Grindavík. Hann studdi þessi bæjarstjóra-
skipti með því að greiða því atkvæði á síðasta
bæjarstjórnarfundi. Hann hlýtur að vita hvað hann
var að styðja.
Höfundur er fulltrúi D-lista í Grindavík.
Að gefnu tilefni
SIGMAR
EÐVARÐSSON
Einhugur
Viðtal Markaðarins við Bjarna
Benediktsson og Illuga Gunnarsson
á miðvikudag hleypti af stað dálitlum
farsa. Í viðtalinu sögðu þingmennirnir
það mistök að hætta við Bitruvirkjun
og það ætti að setja hana aftur á dag-
skrá. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi
svaraði því til að það væri ekkert
búið að hætta við Bitruvirkjun, heldur
undirbúningi frestað á meðan málið
væri skoðað betur. Sá þá Ólafur F.
Magnússon borgarstjóri sig knúinn
til að senda frá sér áréttingu um
að víst hefði Bitru virkjun verið
slegin af. Við það drógu sjálfstæð-
ismenn í land, sögðu það
vissulega rétt að ekkert yrði
aðhafst á þessu kjörtíma-
bili, en ekki sé ólíklegt
að þessi mál verði
skoðuð síðar. Í ljósi þessa má gera því
skóna að áhugi sjálfstæðismanna á
að endurnýja meirihlutasamstarfið við
F-lista eftir næstu kosningar sé lítill.
Nú já
„Flestar vísbendingar benda nú í þá
átt að veruleg kólnun hafi átt sér stað
á innlendum fasteignamarkaði.“ Þetta
kom fram í morgunkorni greiningar-
deildar Glitnis á fimmtudag. Þar segir
enn fremur: „Að öllum líkindum
mun fasteignamarkaður kólna
enn frekar með haustinu
og vel fram á næsta ár.“ Er
greiningardeild Glitnis að átta
sig á þessari
staðreynd
fyrst
núna?
Forsetarnir og Kína
Sú ákvörðun Ólafs Ragnars Grímsson-
ar að vera viðstaddur setningarathöfn
Ólympíuleikanna í Peking sætir mikilli
gagnrýni. Sjálfur segist Ólafur Ragnar
hins vegar trúa að það sé betur fallið
til að styrkja mannréttindi í Kína að
sýna yfirvöldum þar í landi vináttu og
virðingu, frekar en fjandskap. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem ástand
mannréttinda í Kína eru forseta
Íslands fjötur um fót. Vigdís Finn-
bogadóttir lá líka undir ámæli
eftir Kínaheimsókn á sínum
tíma, fyrir ummæli í þá átt
að mannréttindi væru
afstæð.
bergsteinn@frettabladid.is
Takið ykkur stöðu á nýju Hringbraut og horfið á
Landspítalann. Við blasir gamli
góði spítalinn, symmetrískur og
hvítur að lit. Vestan við hann
stendur Barnaspítalinn, glæný og
glansandi grá bygging. Sá
fyrrnefndi er byggður af þjóð í
kröggum, sá síðarnefndri af
ríkustu þjóð heims. Hvor er
fallegri?
Lítið svo lengra til vinstri, á lítið
timburhús sem nú heitir Kennara-
húsið en var upphaflega byggt sem
Kennaraskóli Íslands og Þórbergur
sótti á sínum tíma. Þetta gamla hús
stendur á mjög táknrænan hátt
undir gafli hins nýja Barnaspítalan
(gráveggur sem minnir einna helst
á Berlínarmúrinn) og ljómar undir
honum eins og hið mesta báru-
járnsdjásn; hús sem var byggt af
svo fátækri þjóð að það var ekki
einu sinni teiknað af arkitekti held-
ur byggðu það smiðir, „eftir
auganu“. Af fyrrnefndum þremur
byggingum er það þó sýnu
fallegast.
Já, og lítið út um bílgluggann á
leið ykkar upp í Mosfellssveit.
Niðri á grundunum standa
Korpúlfsstaðir. Þessi steypuver-
sjón af torfbæ verður kannski
seint talin falleg, en hún er þó
svipsterkt kennileiti sem greini-
lega var reist til framtíðar. Ofar í
holtinu, gegnt Korpúlfsstaðabýl-
inu, rís nú verslunarhúsnæði
byggingavörufyrirtækisins
Bauhaus; metnaðarlaus lagergám-
ur af ódýrustu gerð. Stáltjald reist
til einnar nætur. Annarsvegar
höfum við gamalt sveitafjós sem
nú er orðin landsprýði, en var reist
á raunverulegum krepputímum.
Hinsvegar nýmóðins naglamoll
sem hannað var í mesta góðæri
sögunnar.
Afhverju eigum við aldrei
peninga þegar kemur að því að
reisa hús? Afhverju alltaf bara
hámarksnýting rýmis sem alltaf
endar eins; sem kubbur og kassi.
Afhverju hefur enginn nýmillinn
annar en Björgólfur eldri metnað
til að setja mark sitt á bæinn?
Það er gömul klisja að segja að í
byggingarlist sé allt nýtt ljótt. En
hún er furðu lífsseig. Framfarir í
íslenskum arkitektúr hafa þó verið
nokkrar á undanförnum áratugum.
Horfið á Skúlagötuháhýsin
annarsvegar og Sjálandshverfið
hinsvegar. Horfið á einbýlis- og
raðhúsin í Grafarvoginum
annarsvegar og systkini þeirra í
Grafarholtinu hinsvegar. Horfið á
sjúkrahúsið á Ísafirði annarsvegar
og nýja menningarhúsið á
Akureyri hinsvegar.
En stundum er þó eins og við
séum enn föst í gamla tímanum
sem bandaríski rithöfundurinn
Tom Wolfe lýsir svo vel í bók sinni,
From Bauhaus to Our House, þar
sem hann fjallar um byggingarlist
eftirstríðsáranna, þegar ofsatrúin
á fúnkís og fálætisma leyfði
mönnum engin frávik frá reglu-
strikunni. Wolfe ber þennan
arkitektúr, hinn harðkjarna
kubbisma kalda stríðsins, saman
við alræðiskerfin sem á sömu tíð
risu í austrinu rauða. Að hans mati
voru helstu hetjur eftirstríðsára-
arkitektúrsins, þeir Le Corbusier
og Mies van der Rohe, álíka hollir
fagi sínu og Stalín og Maó voru
kommúnismanum. Þeir drottnuðu
eins og einræðisherrar yfir
byggingarstíl seinni hluta
tuttugustu aldar með sinni fasísku
fagurfræði. Stórir kaflar á
Manhattan bera merki þessa
tímabils, og flestar stórborgir
Þjóðverja þjást af sama stálgler-
jaða sálarkulinu. Íslendingar
fundu fljótt orð yfir hús byggð í
þessum stíl: Steinkumbaldar.
Besta dæmið um innreið
kubbismans í byggingarsöguna hér
á landi er viðbygging við aðalbygg-
ingu Landsbankans í Austurstræti
þar sem naumhyggja faðmar
draumhyggju svo minnir helst á
faðmlag dauðans. Þó eru enn
reistar byggingar í anda kubbism-
ans. Það væri synd að segja að
nýju húsin við Höfðatorg geisluðu
af ímyndunarafli og sköpunar-
gleði.
Þegar byggt er nýtt við gamalt,
eða nýtt ofan í gamalt tíðkast
einkum tvær leiðir. Annaðhvort
teikna menn feimnislaust hágler-
jað hús í anda kubbismans, eru
ekkert að fela samtíma sinn eða
reyna að sleikja fortíðina upp með
smeðjulegum dúllum í hennar
anda. Hér er Iðuhúsið í Lækjar-
götu ágætt dæmi. Eða menn fara
hina leiðina og reyna að byggja í
anda gamla stílsins. Hér er Hótel
Centrum á horni Aðalstrætis og
Túngötu besta dæmið. Við bíðum
enn eftir þriðju leiðinni.
Það sem bárisminn gamli hefur
fram yfir kubbismann eru
smáatriðin. Nostrið. Tröppur,
gluggakarmar, þakskegg; þessi
vinarhót sem blikka mann á röltinu
og gera miðbæinn vinalegan.
Sigurtillaga að nýjum Listahá-
skóla á milli Laugavegar og
Hverfisgötu er í þeim nýkubbíska
anda sem nú er í tísku eins og sjá
má best í Grafarholtinu. Hún er
falleg og fjörleg innan formsins
(gæti reyndar orðið nokkuð
Kjörgarðsleg með tímanum) en við
fyrstu sýn er þó stór galli á
byggingunni: Hún rennir stein-
dauðum Berlínarmúr niður hálfan
Frakkastíginn. Hér er ekkert til að
gleðja augað, engin smáatriði
(nema veggjakrotið þegar þar að
kemur).
Gömlu smiðunum hefði aldrei
komið til hugar að snúa gafli út í
götu.
Kubbisminn
HALLGRÍMUR HELGASON
Í DAG | skipulagsmál
A
thyglisverð staða er komin upp í tengslum við bygg-
ingaáform Listaháskóla Íslands við Laugaveg. Ólaf-
ur F. Magnússon borgarstjóri kann ekki að meta
vinningstillögu samkeppni um nýbyggingu fyrir
skólann og talar engum tæpitungum um hver verða
afdrif hennar innan skipulagskerfis borgarinnar. Í hádegis-
fréttum Ríkisútvarpsins í gær sagðist hann ekki styðja tillög-
una í óbreyttri mynd. Í Fréttablaðinu í dag tekur hann enn
afdráttarlausar til orða og segir alveg ljóst að skipulagsráð
muni ekki samþykkja tillöguna.
Samkvæmt borgarstjóra er afstaða meirihlutans skýr:
Listaháskólinn mun ekki, eins og stendur til, flytja starfsem-
ina árið 2011 í þá byggingu sem sést á teikningum vinningstil-
lögunnar, þá hina sömu og menntamálaráðherra hefur kallað
„mikinn sigur fyrir íslenska arkitekta og íslenska byggingar-
list“.
Formaður skipulagsráðs, Hanna Birna Kristjánsdóttir, odd-
viti sjálfstæðismanna í borgarstjórn og arftaki Ólafs í embætti
borgarstjóra, hefur ekki opinberað sína skoðun á tillögunni.
Eftir eindregin orð Ólafs er ekki þörf á því. Borgarstjóri hefur
tekið af henni ómakið og upplýst um stefnu meirihlutans í mál-
inu. Engu máli skiptir þótt tillagan sé ekki einu sinni komin til
meðferðar hjá skipulagsráði. Borgarstjóri er búinn að leggja
línuna. Hann segir að tillagan verði ekki samþykkt þar.
Borgarstjórnarmeirihlutinn vill aðra útfærslu. Hann veit
betur en dómnefndin sem var skipuð fólki frá Listaháskólan-
um, fasteignaþróunarfélaginu Samson Properties, mennta-
málaráðuneytinu og Arkitektafélagi Íslands. Sem sagt, betur
en fulltrúar þeirra sem eiga að vinna í húsinu, þeirra sem ætla
að reisa það, borga fyrir það og fagfólk í arkitektúr.
Og á hverju skyldi stranda? Borgarstjóri vill standa vörð
um 19. aldar götumynd Laugavegar, sem vissulega er virð-
ingarvert sjónarmið, ef götumyndin væri ekki svona skelfileg
einmitt á þessum reit sem markast af Laugavegi, Frakkastíg
og Hverfisgötu.
Þetta svæði hefur um árabil verið einn vesælasti blettur
miðbæjarins, sama frá hvaða sjónarhorni er horft til þess.
Eina húsið á reitnum sem Húsafriðunarnefnd ríkisins vill að
verði verndað er Laugavegur 41 og samkvæmt vinningstillög-
unni stendur það áfram. Reyndar í útfærslu sem er frá árinu
1983, þegar byggt var verulega við það.
Koma Listaháskólans væri mesta framfaraskref fyrir
Laugaveginn í áratugi. Tillaga Páls Hjaltasonar og félaga hjá
+Arkitektum er stássleg og áræðin eins og er við hæfi fyrir þá
starfsemi sem byggingin á að hýsa.
Það eru ekki oft reist hús í Reykjavík sem setja afgerandi
svip á borgina og lyfta umhverfi sínu á hærra plan. Hér er
komin tillaga að einu slíku.
Það verður núverandi meirihluta til ævarandi háðungar ef
honum tekst að klúðra þessu máli.
Borgarstjóri veit betur um byggingarlist.
19. öldin fremur
en framtíðin
JÓN KALDAL SKRIFAR