Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 18
18 26. júlí 2008 LAUGARDAGUR FÖSTUDAGUR, 18. JÚLÍ. Gengið til skrifta Í morgun fórum við Össur frændi minn í landkönnunargönguferð. Það er að segja, við létum svo heita að við værum að fara til þess að kanna umhverfið og ná áttum en hinn raunverulegi tilgangur göngunnar var sá að leyfa ráð- herranum að skrifta fyrir syndir sínar og yfirsjónir, bæði gagnvart flokkssystkinum sínum í Samfylk- ingunni og þeim yfirgnæfandi fjölda jarðarbúa sem ekki tilheyr- ir þeim stjórnmálaflokki. Því miður er þriggja tíma gönguferð alltof stutt til þess að íslenskur ráðherra nái að létta á samviskunni og þess vegna úti- lokað af minni hálfu að veita end- anlega aflausn eða syndakvittun. Þar fyrir utan er það á móti sannfæringu minni að veita einum ráðherra aflausn vegna syndsam- legs lífernis allrar ríkisstjórnar- innar. Engu að síður var þetta góð og guðrækileg ganga, þar sem skiftust á iðrandi játningar hins bersynduga ráðherra og alvarleg- ar umvandanir og pólitískur píetismi hins stranga skriftaföður sem lætur sér annt um geistlega velferð vina sinna og samferða- manna. Þótt aðeins hafi verið hægt að skauta á yfirborði syndaregist- ursins í þessari stuttu skrifta- göngu er ég ekki alveg vonlaus um velferð frænda míns. Vissu- lega er sá maður veikgeðja sem afhendir íhaldinu stjórnartaum- ana en Össur er drengur góður og hefur hlýtt hjarta og fyrir slíka menn er alltaf nokkur von. Ekki mikil kannski, en von samt. Á meðan á þessu stríði um andlega heill ráðherrans stóð voru eigin- konur okkar ásamt börnum og barna- börnum á baðströnd hérna við sjávarsíðuna og létu vel af sér við heimkomuna. Nú hef ég lifað í nær fullkom- inni fréttaþögn í þrjá daga og er farinn að skynja þann frið sem fylgir því að vera ekki sífellt með eyrun full af fréttasuði. LAUGARDAGUR, 19. JÚLÍ. Strandlíf Í morgun fórum við með börnin niður á baðströnd að leika við öldur Atlantshafsins og byggja sand- kastala sem haf og vindar útmá eins og sporin sem við skiljum eftir í fjörusandi. Allt forgengur í veröldinni og maður er þakklátur fyrir hin áhyggjulausu augnablik sem flögra um eins og fiðrildi. Árný, Össur og frænkurnar buð- ust til að passa börnin í kvöld og ég var ekki svifaseinn að bjóða frú Sólveigu út að borða. Við gengum í bæinn og fengum okkur risarækjur, steikta gæsalif- ur, nautalundir og jarðarberja- frauð ásamt góðu kaffi fyrir 50 evrur – sem væri mjög ódýrt ef félagar Össurar í ríkisstjórninni hefðu haft einhverja stjórn á efna- hagsmálunum. SUNNUDAGUR, 20. JÚLÍ. Apalandsleiðangur Í dag hélt leiðangur til Apalands, það er að segja dr. Árný og frú Sól- veig fóru með börnin að skoða dálítinn dýragarð hérna í nágrenn- inu, þar sem apar og páfagaukar njóta mikillar athygli og virðing- ar. Össur frændi minn neitaði að fara til Apalands og ég fyrir mitt leyti skil vel að hann skuli ekki kæra sig um að vera minntur á starfsumhverfi sitt í miðju sumar- fríi. Það er margt verra til en að liggja í forsælu á sundlaugarbarmi og lesa skemmtilegar bækur. Ég var til dæmis að klára stórmerki- lega bók eftir þýskan blaða- mann, Oliver August, sem ekki alls fyrir löngu var fréttaritari The Times í Kínaveldi og heitir „Inside the Red Mansion“ (Úr salarkynn- um hinnar Rauðu hallar) og fjallar um leit höfundar að þeim manni sem efstur er á lista kínversku lög- reglunnar yfir menn sem hún hefur áhuga á að handtaka. Hinn eftirlýsti maður heitir Lai Changxing og var smábóndi sem sneri sér að viðskiptum og varð á skömmum tíma einn ríkasti maður Kínaveldis. Það er erfitt að koma sér upp gífurlegum auðæfum með því að feta nákvæmlega þröngan veg hófsemi og heiðarleika, einkum í löndum þar sem mútur og ósvífni skipta meira máli en óljós lagabók- stafur. Svo gerist það, að Lai Changxing fer yfir eitthvert ósýni- legt strik og stjórnvöld ákveða að gera hann að blóraböggli í stað þess að láta hann komast upp með að halda áfram að vera lifandi fyrirmynd þeirra sem dreymir um blessun markaðsguðs- ins og allsnægtir hins frjálsa framtaks. MÁNUDAGUR, 21. JÚLÍ. Sundnám Merkisdagur. Litla Sól náði loksins því tæra sambandi milli heila og útlima sem þarf til að geta tekið þau sundtök sem nauðsynleg eru til að færa sig úr einum stað á annan á bólakafi í vökva – þessu tilviki vatni í barnalauginni. Samkvæmt minni reynslu ná krakkar sem fara oft í sund stund- um fyrst tökum á kafsundi og svo kemur eins og af sjálfu sér nokkru síðar að reka hausinn upp úr öðru hverju til að anda að sér súrefni. ÞRIÐJUDAGUR, 22. JÚLÍ. Andleg forherðing og sigursund Þeir Íslendingar sem hafa dvalið með okkur hérna á íbúðahótelinu eru einvalalið, kurteist fólk og hjálpsamt sem hefur verið ánægju- legt að kynnast. Sundnám litlu Sólar í barnalaug- inni er samfellt sigursund. Í dag lærði hún að synda enda á milli í lauginni með munn og nef yfir vatnsborðinu sem auðveldar nauð- synlega súrefnisöflun til mikilla muna. Auk þess tókst henni að ná nokkrum tökum á þeirri grein vatnsíþrótta sem afi hennar stund- ar af mikilli elju og vandvirkni. Sem sé að liggja á bakinu í vatns- yfirborðinu með hendur og fætur teygða frá líkamanum og láta sig fljóta án þess að reyna á nokkurn vöðva í líkamanum. FIMMTUDAGUR, 24. JÚLÍ. Í fréttum er þetta helst... Ég hef ekki vitjað um internetið dögum saman en seinni- partinn í dag ákvað ég að gá að íslensk- um fréttum. Eftir- tekjan var þó held- ur rýr. Helst vakti það athygli mína að forseti Íslands segist alls ekki hafa átt erfitt með að ákveða að drífa sig á Ólympíu- leikana í Kína. Rök- semda- færsla hans er sú að það sé klókt að hafa glæpamenn og siðblindingja góða með því að umgangast þá af ýtrustu kurteisi í von um að þeir taki sönsum. Þarna greinir okkur á. Ég mundi ekki af fúsum og frjálsum vilja halda gestaboð fyrir glæpahyski en gestrisni forsetans virðist ekki þekkja nein takmörk. Hann er nýbúinn að bjóða Mörtu Stewart og áhugafólki um að hitta svoleiðis manneskju til veislu á Bessastöð- um. Ég mundi heldur ekki fara og heiðra einræðis- og ofstopastjórn- ina í Kína eins og Ólafur Ragnar telur útsmogið að gera. Mín skoðun er sú að svín tileinki sér tæplega hreinlæti þótt maður klæði sig í sparifötin og leggist síðan við hliðina á þeim í skítuga stíuna. Það er kannski skiljanlegt að Þorgerður Katrín vilji fyrir hönd Flokksins heiðra systurflokkinn í Kína með nærveru sinni. Ég skipti mér ekki af einkafyrirtækjum og einkaerindum – en á vegum íslensku þjóðarinnar á engin siðuð manneskja erindi til Kína – nema ef vera kynni til að biðja Falun Gong afsökunar á því hvernig tekið var á móti því góða fólki á Íslandi fyrir nokkru síðan. Uppáklæddur í svínastíuna Í dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá iðrun stjórnmálamanns, ströngum skriftaföður, leiðangri til Apalands, strandlífi, merkilegum bókum, sundnámi og siðblindingjum. KÆRA DAGBÓK Þráinn Bertelsson skrifar Viltu skjól á veröndina? www.markisur.com og www.markisur.is Veðrið verður ekkert vandamál Hrein fjárfesting ehf, Dalbraut 3, 105 Reykjavík Upplýsingar í síma 567 7773 og 893 6337 um kvöld og helgar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.