Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 20
[ ] Bílastæðasjóður vinnur nú að því að kortavæða bílastæði borgarinnar. Hægt að borga fyrir stæði í gegnum farsíma. Bílastæðasjóður er ekki vinsælust opnberra stofnana og margir sem bölva starfsmönnum hans í sand og ösku þegar litlum bláum og hvítum miða hefur verið laumað undir rúðuþurrkuna. En þvert á það sem margir halda fram þá er starfsfólk sjóðsins að tryggja að farið sé eftir settum reglum og vinna að því að gera borgina að betri stað. En hvað hefur sjóður- inn gert upp á síðkastið til að að bæta þjónustu sína? „Við höfum aðallega verið að fjárfesta í nýjum tækjum. Búið er að taka gamlar vélar í bílastæða- húsum og nýjar vélar sem tekið geta við debet- og kreditkortum, auk klinks og seðla, hafa tekið við,“ segir Kolbrún Jónatansdótt- ir, framkvæmdastjóri Bílastæða- sjóðs. „Við höfum einnig verið að endurnýja miðamæla og alls stað- ar þar sem traffík er mest eru nú komnir nýir mælar sem taka kort.“ Kolbrún og starfsfólk hennar stefna á að allir gömlu klink- og miðamælarnir verði horfnir með haustinu, svo þeir heyra brátt sög- unni til. „Stakir stöðumælar verða þó eftir á minni svæðum, þar sem eru bara tvö, þrjú stæði en það er aldrei langt í næsta miðamæli ef fólk er ekki með klink,“ segir Kol- brún. „Svo er einnig hægt að borga fyrir stæði gegnum GSM en það er hægt að skoða betur hjá sam- starfsaðilum okkar á vefsíðunum www.leggja.is og www.simasta- edi.is.“ Gömlu mælunum verður einnig haldið eftir á nokkrum stöðum til þess að halda í gamla götumynd, svo sem á Skólavörðustíg. „Það eru fimmtíu og eitt ár síðan fyrsti stöðumælirinn kom á götuna í Reykjavík svo við getum ekki og viljum ekki láta þá alla hverfa í einni svipan,“ segir Kolbrún. Lengi hefur verið rætt um bíla- stæðavanda miðborgarinnar og skoðanir og tillögur að lausnum eru eins margar og gestir og íbúar í miðbænum. En með aukinni upp- byggingu í 101 hefur stæðum óneitanlega fækkað. „Við misstum út Alþingisreitinn og Grófartorgið og þar fóru mörg stæði,“ segir Kolbrún. „Við fáum aftur á móti stæði með tónlistar- og ráðstefnu- húsinu í staðinn, en það er alveg rétt að stæðum hefur fækkað.“ Íbúar í nýrri húsum miðbæjarins hafa hins vegar margir aðgang að bílakjöllurum og bætir það ástand- ið eitthvað fyrir íbúa svæðisins að hennar sögn. En þeim sem sækja miðborgina heim og vilja skreppa í búð eða kíkja á kaffihús, verður einungis erfiðara að finna stæði í framtíðinni. tryggvi@frettabladid.is Kort taka við af klinki Kolbrún Jónatansdóttir er þeirrar skoðunar að of ódýrt sé í bílastæðahús en Íslend- ingar séu einfaldlega ekki tilbúnir til að greiða meira fyrir bílastæði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fyrsta gerð Bjöllunnar, sem framleidd var á árunum 1938 til 2003, kallaðist Type 1 en fljótlega festist Bjöllu-heitið við hana. Framleiðandinn sjálfur tók heitið þó ekki upp fyrr en árið 1967. HPI Savage X 4,6 öfl ugur fjarstýrður bensín torfærutrukkur. Eigum til bíla á gamla verðinu Málningarvörur ehf. | Lágmúla 9 | Sími: 581 4200 | malning@malningarvorur.is | www.malningarvorur.is Hjá Málningarvörum ehf – áður Gísli Jónsson ehf – færðu heimsþekktar bón- og hreinsivörur frá Concept og Meguiar’s. Komdu og fáðu réttu efnin og ráðgjöf frá fagmönnum um hvernig þú getur gert bílinn hreint og beint skínandi fallegan! Meistarabón Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.