Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 8
8 26. júlí 2008 LAUGARDAGUR LEIKSKÓLAMÁL Byggja á tvær fær- anlegar kennslustofur við Norður- berg í Hafnarfirði til bráðabirgða í eitt ár og fjölga þar með leikskóla- plássum um fjörutíu. Kennslustof- urnar verða utan lóðarinnar og verða ekki girtar af. Íbúar hafa mótmælt framgangi skipulagsyfir- valda í bænum, því lítið samráð var haft við þá við undirbúninginn. „Við erum óhress með þetta,“ segir Ragnheiður Davíðsdóttir, íbúi við Heiðvang. Íbúar í næsta nágrenni við leik- skólann voru boðaðir á fund. Mætt- ir voru um 25 íbúar í þeim þremur götum sem leikskólinn liggur að. „Hafnarfjörður lagði mikla áherslu, fyrir síðustu kosningar á íbúalýð- ræði og hér í bæ er rekin jafnréttis- og lýðræðisnefnd. Svo þegar kemur að einhverju svona er ekkert íbúa- lýðræði,“ segir Ragnheiður. Ragnheiður býr alveg upp við leikskólann, í götu sem er botn- langagata. „Gatan ber ekki þann umferðarþunga sem augljóslega verður með tilkomu þessara fram- kvæmda,“ segir Ragnheiður en úttekt liggur fyrir frá Línuhönnun þar sem áætlað er að ferðum, til og frá leikskólanum, fjölgi um fimm- tíu á dag. Almenn samstaða er um málið meðal íbúa, að sögn Ragnheiðar, því hagsmunirnir eru þverpólitísk- ir. „Þetta er rólegt íbúahverfi og það þarf að taka tillit til íbúanna. Við viljum ekki stofna öryggi barna okkar í hættu.“ Hún segir jafn- framt að stefnt sé að mótmælum og undirskriftasöfnun. Almar Grímsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, hefur gagnrýnt vinnubrögð Hafn- arfjarðar í þessu máli og segir stjórnsýsluna hafa verið „ámælis- verða“ vegna þess litla samráðs sem haft var við íbúa og minnihlut- ann í bæjarstjórn. Færanlegu kennslustofurnar eru með tímabundið stöðuleyfi til eins árs, en með því þarf hvorki að breyta deiliskipulagi, né aðalskipu- lagi bæjarins, sem hefði þurft að gera ef byggt hefði verið varanleg viðbygging. Greint var frá í Frétta- blaðinu fyrir nokkru að íbúar við leikskólann Hvamm voru óánægð- ir með byggingu færanlegra kennslustofa. Þau töldu það ekki löglegt, kærðu málið og fyrirhug- uðum áformum hefur verið frestað. „Við höfum verið í þeirri trú á síðustu árum að þetta sé rétt gert samkvæmt reglum,“ segir Gísli Valdimarsson, formaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar. vidirp@frettabladid.is Gatan ber ekki þann um- ferðarþunga sem augljós- lega verður með tilkomu þessara framkvæmda. RAGNHEIÐUR DAVÍÐSDÓTTIR ÍBÚI VIÐ HEIÐVANG ÍRAN, AP Írönsk stjórnvöld sögðust í gær ætla að hætta samvinnu við Alþjóðakjarnorkumálastofnunina (IAEA). IAEA hefur undanfarið ár haft eftirlit með kjarnorkuáætl- un Írana. Gholam Reza Aghazadeh, yfirmaður kjarnorkuráðs Írans, segir hana ætlaða til friðsamlegrar raforkuframleiðslu. Vesturlönd óttast að Íranar ætli að smíða kjarnorkuvopn. IAEA segir Írana ekki hafa verið samvinnufúsa undanfarið ár og ekki hafa svarað spurningum um ýmis grunsamleg gögn sem stofnunin hafi fundið. - gh Alþjóðakjarnorkumálastofnunin: Fulltrúi brott- rækur frá Íran GHOLAM REZA AGHAZADEH MARKAÐURINN á www.visir alla daga 1 Barack Obama ávarpaði tvö hundruð þúsund manns í fyrradag. Hvar? 2 Silvía, Auður, Lilja og Mar- grét skipa stúlknasveit. Hvað heitir hún? 3 Hversu mörg mörk skoraði Eiður Smári í fyrsta æfingaleik Barcelona undir stjórn Joseps Guardiola? SVÖR Á SÍÐU 34 Mótmæla færanleg- um kennslustofum Óánægja er meðal íbúa með byggingu færanlegra kennslustofa við leikskólann Norðurberg í Hafnarfirði. Svipuðum framkvæmdum við Staðarhvamm var frestað nýlega vegna kæru íbúa. Formaður skipulagsráðs segir farið að reglum. RAGNHEIÐUR DAVÍÐSDÓTTIR Hér sést Ragnheiður í garðinum sem liggur nánast upp að leikskólanum. Hún er óánægð með framgöngu bæjaryfirvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM NORÐURBERG Tvær ógirtar, færanlegar kennslustofur verða byggðar utan skólalóðar Norðurbergs. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FILIPPSEYJAR, AP Risaþota frá ástralska flugfélaginu Qantas nauðlenti á flugvelli á Filippseyjum með 345 farþega um borð. Stórt gat hafði myndast á bol vélarinnar og gólf í farþegarými rofnaði svo sást niður í farangursgeymslu. Farþegar voru margir hverjir skelfingu lostnir eftir lendinguna, en allir voru ómeiddir. Flugmaður vélarinnar segir að „skyndileg þrýstingsminnkun“, sem var sprengingu líkust, hafi orðið. „Það er stórt gat hægra megin á vélinni rétt hjá vængnum,“ sagði Octavio Lina, aðstoðarfram- kvæmdastjóri á alþjóðaflugvellinum í höfuðborginni Maníla. Hann bætti því við að gatið væri 2,5 til 3 metrar að þvermáli. Flugvélin, sem er af gerðinni Boeing 747-400, var á leiðinni frá Bretlandi til Ástralíu og hafði millilent í Hong Kong skömmu áður en þetta gerðist. „Eftir klukkustundarflug heyrðist mikil sprenging og síðan byrjaði vélin að lækka flugið,“ sagði Marina Scaffidi, 39 ára farþegi frá Ástralíu. „Flugvélin hélt áfram að lækka flugið, ekki mjög hratt en stöðugt niður á við.“ Ástralska flugfélagið Qantas stærir sig af því að vera eitt hið öruggasta í heimi. Vél frá þeim hefur aldrei farist, og þótt smærri vélar á vegum þess hafi nauðlent þá gerðist það síðast árið 1951. - gb Áströlsk farþegaþota nauðlenti á flugvelli á Filippseyjum: Stórt gat við væng vélarinnar GATIÐ BLASIR VIÐ John Francis Bartels flugmaður virðir fyrir sér gatið á vélinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NÁTTÚRAN Selasetur Íslands á Hvammstanga stóð fyrir selatalningu í Vatnsnesi á sunnu- daginn. Alls tóku 48 manns þátt í talningunni. Í ár voru 1.125 selir taldir. „Gengnir eru um sjötíu kílómetrar í göngunni og talið er frá Miðfjarðarósi að vestan og að Sigríðarstaðar- vatni að austan,“ segir Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, framkvæmdastjóri Selaset- ursins. Talningin er framkvæmd af sjálfboðaliðum sem aðallega eru heimamenn en að sögn Hrafnhildar tóku einnig nokkrir erlendir sjálfboðaliðar þátt. Þetta er í annað skiptið sem selaskoðunin fer fram og nú töldust um 400 fleiri selir en í fyrra. „Við erum ekki alveg klár á skýringunum. Talningin fór fram 25. ágúst í fyrra svo við sjáum ekki hvort selnum er að fjölga fyrr en á næsta ári því við teljum bara annað hvert ár í ágúst,“ segir Hrafnhildur. Talningin er nokkuð vísindaleg að sögn Hrafnhildar því sérfræðingar vinna í samvinnu við Selasetrið. Þá er fólki úthlutað svæði og allir telja á sama tíma, svo litlir möguleikar eru á því að fólk tvítelji. „Við gefum fólkinu fjóra tíma til að telja og það verður að telja fyrir og eftir háfjöru.“ - vsp Selasetur Íslands á Hvammstanga stóð fyrir selatalningu á dögunum: Selirnir fjögur hundruð fleiri en í fyrra SELIR Selatalningin fór fram í annað skiptið á dögunum og tókst vel til. Alls voru 1.125 selir taldir. Alls tóku 48 manns þátt í talningunni og voru gengn- ir sjötíu kílómetrar í það heila. MYND/JÓN PÁLL VEIÐI „Ég var á leið heim í gær þegar ég rakst á strák sem var að veiða við brúna yfir Elliðavatn, hann var búinn að landa einum laxi og var að landa öðrum,“ sagði Sigurður Sigfússon, veiðivörður í Elliðavatni, í samtali í gær. Í Elliðavatni veiðist mest af bleikju og urriða en greinilegt er að laxinn er að gera sig heimkom- inn í vatninu. „Það hefur veiðst lax áður í Elliðavatni en það er ekki algengt. Mest er um að fólk veiði urriða og bleikju. Þessi strákur var búinn að veiða fjóra laxa í þessari viku, þar af tvo í gærkvöldi,“ segir Sigurður. - stp Fín veiði í Elliðavatni: Fjórir laxar á land í vikunni ELLIÐAVATN Ekki er algengt að menn veiði lax í vatninu. Mest veiðist af bleikju og urriða. LÖGREGLUMÁL Lögreglan tók ölvaðan ökumann í Árbænum í fyrrinótt. Að sögn varðstjóra lögreglunnar vakti aksturslag mannsins athygli lögregluþjóna sem voru við umferðareftirlit. Maðurinn ók alltof hratt miðað við aðstæður. Maðurinn mun að sögn hafa viðurkennt að aksturslag sitt hefði verið óábyrgt en hann kvað bíl sinn bremsulausan. Kom í ljós að sú var raunin. - stp Lögregla stöðvaði ökumann: Ölvaður með engar bremsur BRETLAND, AP Breski Verka- mannaflokkur- inn tapaði í gær þingsæti Austur- Glasgowborgar í Skotlandi í gær fyrir Þjóðar- flokki Skota. Kosningin fór fram því sitjandi þingmaður Verkamannaflokksins þurfti að segja af sér vegna veikinda. Tapið þykir enn eitt áfallið fyrir Gordon Brown forsætisráðherra. Verkamanna- flokkurinn hafði haldið sætinu í meira en 50 ár. Fylgi Verkamannaflokksins hefur ekki mælst lægra en nú í langan tíma. Er efnahagsþrenging- um, Íraksstríðinu og persónu Browns kennt um. - gh Enn eitt áfallið fyrir Brown: Verkamanna- flokkur tapar JOHN MASON VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.