Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 49
LAUGARDAGUR 26. júlí 2008
- lífið er leikur
Mótormax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400
Mótormax Akureyri - Sími 460-6060
www.motormax.is
Starcraft 2407
12 feta vagn með
útdreginni hlið.
Truma 4000 miðstöð,
ísskápur, rafmagns-
lyftibúnaður.
Verð áður: 1.929.000-
Tilboðsverð: 1.629.000-
Starcraft R10
10 feta vagn á jeppa-
undirvagni og 15” dekkjum.
Truma 2400 miðstöð,
ísskápur, rafmagns lyfti-
búnaður.
Verð áður: 1.849.000-
Tilboðsverð: 1.549.000-
5 fyrs
tu
fá fortja
ld að v
erð -
mæti a
llt að 2
00.000
kr. í ka
upbæ
ti!
Þú sparar 300.000!
Þú sparar 306.000!
Þú sparar 300.000!
Hagstæðustu verðin
á fellihýsum hjá
Mótormax
Starcraft 1707
8 feta vagn með
geymslukassa að framan
Truma 2400 miðstöð og
ísskápur.
Verð áður: 1.505.000-
Tilboðsverð: 1.199.000-
Hagstæð uppítaka
og góð fjármögnun*
Komdu með vagninn þinn og
sölumenn í sumarskapi gefa
þér gott uppí tökutilboð.
*70% fjármögnun til 5 ára í boði
15 ár á Íslandi
Góður útbúnaður, vandaðar
innréttingar og gott fyrirkomulag
eru þættir sem ánægðir Starcraft
eigendur hafa tekið eftir og notið
í þau 15 ár sem Starcraft hefur
skapað sér gott orð á landinu.
S
K
A
P
A
R
IN
N
A
U
G
L
Ý
S
IN
G
A
S
T
O
FA
Leikkonan Sienna Miller
hefur ákveðið að kæra
tímaritið News of the
World vegna blaðagreina
og ljósmynda sem tíma-
ritið birti. Myndirnar
sýna Siennu í áköfum
faðmlögum og kossaflensi
við hinn gifta kærasta
sinn Balthazar
Getty. Sienna
sagði að mynd-
irnar væru brot á einkalífi
hennar, en ritstjóri tíma-
ritsins sagðist ekki vilja
ræða málin að svo
stöddu.
Myndirnar voru tekn-
ar á almenningströnd á
Ítalíu þar sem Miller og
Getty eyddu nokkrum
dögum saman, fjarri konu
hans og fjórum börn-
um.
Þó að það sé liðinn rúmur ára-
tugur frá því að eina plata kúb-
versku hljómsveitarinnar Buena
Vista Social Club kom út þá virð-
ist áhugi fyrir henni ekkert vera
að dvína. Það var boðað til tón-
leika hennar í Vodafonehöllinni
á Hlíðarenda með litlum fyrir-
vara og þeir haldnir á tíma sem
margir hafa þegar ráðstafað til
sumarleyfa, en samt var Vals-
húsið vel stappað af fólki á
fimmtudagskvöldið. Það vakti
líka athygli að áheyrendur voru
á öllum aldri og mjög mikið af
ungu fólki.
Buena Vista Social Club kvik-
myndin sló í gegn úti um allan
heim og endurlífgaði kúbönsku
tónlistarsenuna og platan er enn
mest selda heimstónlistarplata
sögunnar. Nú, tólf árum eftir að
platan var tekin upp, eru fimm
af meðlimum hljómsveitarinnar
fallnir frá, þ.á.m. söngvarinn
Ibrahim Ferrer, píanóleikarinn
Ruben Gonzalez og gítarleikar-
inn Compay Segundo. Söngkon-
an Omara Portuondo hefur líka
snúið sér að mestu að sólóferli
sínum og var ekki með á tónleik-
unum á fimmtudagskvöldið.
Þrátt fyrir brotthvarf þessara
máttarstólpa sveitarinnar þá
virkaði þessi þrettán manna
útgáfa bandsins sem við fengum
að njóta mjög vel. Í stað Rubens
var kominn ungur djasspíanó-
snillingur, Roland Luna, og yngri
söngvarar höfðu tekið við af
Ibrahim og Omöru, en allir hinir
hljóðfæraleikararnir voru af
gömlu Buena Vista senunni, þ.
á.m. kontrabassaleikarinn frá-
bæri Cachaito Lopez, trompet-
leikarinn Guajiro Mirabal, lútu-
leikarinn Barbarito Torrez og
hljómsveitarstjórinn og básúnu-
leikarinn Aguave Ramos sem
einnig stjórnaði sveitinni á tón-
leikunum í Laugardalshöllinni
fyrir sjö árum.
Tónlist Buena Vista Social
Club er djassskotin blanda af
suður-amerískri tónlist. Það sem
gerir hana ómótstæðilega er
spilamennskan. Þessir gömlu
jálkar leggja sig alla fram, en
setja líka skemmtilegt „attitúd“
í þetta. Trommusólóið sem við
fengum að upplifa á fimmtu-
dagskvöldið var t.d. kostulegt
og oft var stemningin tekin fram
yfir nákvæma og gallalausa
spilamennsku. Sveitin spilaði í
tæpa tvo tíma án hlés, en
Cachaito Lopez og Roland Lupa
héldu tveir uppi fjörinu á meðan
aðrir meðlimir tóku stutta pásu.
Mér fannst tónleikarnir
reyndar aðeins missa flugið
undir lokin þegar bandið datt út
í slagara eins og Quantanamera
og ungi söngvarinn fékk áhorf-
endur til að svara sér úr salnum.
Á heildina voru þetta samt fínir
tónleikar og á köflum alveg frá-
bærir. Margir hljóðfæraleikar-
anna sýndi stjörnutakta og þó
ekki hefði verið annað þá hefði
það verið þess virði að mæta
bara til að fylgjast með tilþrif-
um Cachaito Lopez á kontra-
bassann. Trausti Júlíusson
Gamla gengið
stóðst væntingar
TÓNLEIKAR
Buena Vista Social Club
Vodafonehöllin 24. júlí
★★★
Þrátt fyrir að stærstu stjörnur Buena
Vista Social Club séu fallnar frá
stóð þessi kúbverska stórsveit undir
væntingum á vel sóttum tónleikum
í Vodafonehöllinni á fimmtudags-
kvöldið.
Chris Brown er sagður vera að
undirbúa eigin dansþætti. Söngv-
arinn, sem sýnir fótafimi sína
reglulega í tónlistarmyndböndum
og á sviði, vill nú gefa ungum
dönsurum tækifæri til að spreyta
sig í raunveruleikaþætti.
Í þættinum verður aðaláherslan
lög á hipphopp og götudans. Kepp-
endur munu etja kappi hvor við
annan og mun Brown velja sigur-
vegara eftir hverja lotu, en hann
er þeirrar skoðunar að dans sé
meira en bara viss tegund hreyf-
inga og sé í raun annað tjáningar-
form á tónlist.
Dansþátturinn hefur ekki hlotið
nafn að svo stöddu, en undirbún-
ingur fyrir sjónvarpsútsendingu
mun vera á lokastigi.
Chris Brown með
eigin dansþátt
NÝR DANSÞÁTTUR Fótafimi söngvarinn
Chris Brown mun vera dómari í eigin
dansþætti sem nú er í undirbúningi
vestanhafs.
Sienna kærir