Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 32
● heimili&hönnun
FEGURÐ OG KYRRÐ Í FYRIRRÚMI Gott úrval af garðskrauti er að finna á vefsíðunni
www.gardendecorgalore.com, sem er haldið út af fyrirtækinu Garden Decor Galore. Forsvars-
menn þess líta á garðinn sem griðastað, þar sem fegurð, kyrrð og næði eiga að ríkja. En með
því að skreyta garðinn og ljá honum persónulegan blæ með fylgihlutum eru þeir þess fullvissir
að eigendunum líði betur í honum og nýti í auknum mæli. Til dæmis með því að koma fyrir
skemmtilegum styttum við gönguleiðir, stinga plastfuglum inn á milli blóma eða hengja luktir
á pallinn. Garden Decor Galore sendir vörur sínar eingöngu innan Bandaríkjana og því geta þeir,
sem eiga vini eða vandamenn vestanhafs, látið þá panta þær og áframsenda svo heim til Íslands.
Jean-Marc Caracci hefur myndað víða
í Evrópu. Hann var nýverið staddur
hérlendis en hefur sett stefnuna á Ósló,
Stokkhólm, Prag, Istanbúl, Búdapest
og Vín.
F ranski ljósmyndarinn Jean-Marc Caracci, sem var á dögunum
staddur við tökur í Reykjavík, hefur
nú afhjúpað afraksturinn á heima-
síðu sinni homo.urbanus.free.fr.
Myndirnar eru hluti af verkefninu
Homo Urbanus Europeanum, HUE,
sem Caracci hefur unnið að síðustu
ár og gengur út á að sýna sameigin-
leg einkenni íbúa borga Evrópu og
ýta undir samkennd meðal þeirra.
HUE hefur hlotið nokkra athygli hjá
fjölmiðlum ytra en á síðunni er að
hægt að lesa nokkrar blaðagreinar
um verkefnið. - hs
Reykvíkingar
á netinu
ON/OFF kaffibollinn er sérstakur fyrir þær sakir að á meðan
hann er tómur er hann svartur, en
verður svo hvítur þegar kaffi eða
öðrum heitum vökva er hellt í hann.
Við það skiptir hann líka um letur, úr
OFF í ON. Þegar drukkið er úr bollan-
um dvínar sá hvíti og verður smám
saman aftur svartur. ON/OFF bollinn
þolir allar
uppþvottavélar.
Allar nánari
upplýsingar
um hann er að
finna á www.iw-
antoneofthose.
com.
Bollinn breytist þegar hellt er í hann.
Bolli sem
breytist
26. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR8