Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 4
4 26. júlí 2008 LAUGARDAGUR
GENGIÐ 25.07.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
163,6289
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
80,96 81,34
161,68 162,46
127,44 128,16
17,077 17,177
15,755 15,847
13,465 13,543
0,7545 0,7589
131,85 132,63
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Framlengir leyfið
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytisstjóri
dóms- og kirkjumálaráðuneytisins,
hefur óskað eftir framlengingu á leyfi
frá störfum til 1. október 2008 vegna
veikinda. Setning Rögnu Árnadóttur,
skrifstofustjóra lagaskrifstofu ráðu-
neytisins, í embætti ráðuneytisstjóra
hefur verið framlengd til þess tíma.
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Í uppskrift að skúffuköku sem birtist
í Allt-blaðinu í gær féllu niður tveir
bollar af hveiti. Beðist er velvirðingar
á mistökunum.
LEIÐRÉTTING
MÓTMÆLI Liðsmenn samtakanna
Saving Iceland afhentu Friðriki
Sophussyni, forstjóra Lands virkj-
un ar, bréf á heimili hans við Bjark-
argötu snemma í gær morgun. Í
bréfinu var honum tilkynnt að hann
þyrfti að yfirgefa húsið. Á lóðinni
skyldi reisa virkjun. Bréfið frá
samtökunum var skrifað í nafni
Þorsteins Hilmars sonar, upp-
lýs ingafulltrúa Lands virkjunar.
Skömmu síðar fór fólkið í höfuð-
stöðvar Landsvirkjunar, hélt til í
anddyrinu um stund, hafði hávaða
og truflaði vinnu. Þaðan fóru þau
síðdegis.
Miriam Rose, talsmaður hóps-
ins, segir að með aðgerðunum hafi
þau viljað mótmæla fyrirhuguð-
um virkjunum í Þjórsá og yfir-
gangi gagnvart bændum á svæð-
inu. Þeim hafi verið vel tekið í
höfuðstöðvunum.
Lögreglan var kölluð til þegar
hópurinn mætti í höfuðstöðvarnar
en hvarf fljótlega frá án þess að
aðhafast nokkuð. Miriam var
ánægð með viðbrögð lögreglunn-
ar. „Við erum þakklát fyrir sam-
starfsvilja þeirra,“ segir hún.
Þorsteinn tók ágætlega í aðgerð-
irnar. Þó sagði hann það lýsa
þankagangi mótmælendanna vel
að um leið og farið hefði verið með
þau upp um hæð til fundar við
Friðrik, hafi þau hringt bruna-
bjöllu. Þau hefðu augljóslega ekki
áhuga á að ræða málin. - sh
Liðsmenn Saving Iceland mótmæltu heima hjá forstjóra Landsvirkjunar:
Vísuðu Friðriki úr eigin húsi
HOPP OG SKOPP Mótmælendurnir létu
á köflum afar ófriðlega í anddyri höfuð-
stöðvanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SKÓLAMÁL Kostnaður við bygg-
ingu nýs menntaskóla í Borgar-
firði hefur farið langt fram úr
áætlunum. Frá þessu var greint í
Skessuhorni.
Bygginganefnd lagði á dögun-
um fram framkvæmdaskýrslu
sem sýnir að byggingakostnaður
verði í heild einn milljarður og 43
milljónir. Eftir að bygging hófst
árið 2006 var ákveðið að hafa
kjallara undir húsinu og hækkaði
þá kostnaður um 140 milljónir.
Endurmetin kostnaðaráætlun frá
í fyrra gerði ráð fyrir að kostnað-
ur yrði 881 milljón. Kostnaður
hefur því farið um 160 milljónir
fram úr síðustu áætlun. - þeb
Menntaskóli Borgarfjarðar:
Kostnaður fram
úr áætlunum
KYNNINGAR
VERÐ
Í JÚLÍ
10 ltr.
4.590
BANDARÍKIN, AP Meðan Barack
Obama hefur baðað sig í kastljósi
fjölmiðla á ferðum sínum um
heiminn nú í vikunni hefur keppi-
nautur hans, John McCain, átt erf-
iðara með að vekja athygli á sér.
„Aðdáendur bíða Obama í röðum
í París,“ sagði McCain í gær. „Og
þá er ég bara að tala um banda-
ríska fjölmiðlamenn,“ bætti hann
við, greinilega vel meðvitaður um
erfiðleika sína við að vekja athygli
fjölmiðla.
Ýmislegt hefur auk þess farið
úrskeiðis hjá McCain. Á miðviku-
dag hugðist hann halda mikla
ræðu á olíuborpalli en varð að
hætta við vegna veðurs.
McCain hefur þó ferðast víða
um Bandaríkin síðustu daga, hald-
ið ræður og gefið í skyn að stutt sé
í að hann velji sér varaforsetaefni
fyrir kosningarnar, sem haldnar
verða í nóvember.
Bandaríska dagblaðið Washing-
ton Post fullyrti í gær að McCain
ætli að tilkynna um val sitt á vara-
forsetaefni áður en Ólympíuleik-
arnir í Kína hefjast, en það verður
8. ágúst næstkomandi.
Á sjónvarpsstöðinni CNN var
hins vegar haft eftir nánum sam-
starfsmanni McCains, ónefndum
þó, að ekkert hafi verið ákveðið,
hvorki um varaforsetaefnið né
tímasetningu tilkynningar um það
hver verði fyrir valinu.
Meðal þeirra sem taldir hafa
verið líklegir er Rob Portman,
fyrrverandi þingmaður frá Ohio,
sem um tíma starfaði fyrir ríkis-
stjórn George W. Bush. Í síðasta
mánuði sagðist hann þó ekki hafa
áhuga á varaforsetaembættinu.
Nú í vikunni sagði síðan annar,
sem nú í sumar hefur þótt líklegur
í slaginn, hinn ungi ríkisstjóri í
Louisiana, Bob Jindal, útilokað að
hann sætti sig við hlutverk vara-
forseta. Hann tók þó fram að hann
ætli sér að hjálpa McCain sem rík-
isstjóri í Louisiana.
Tveir aðrir ríkisstjórar hafa
lengi þótt líklegir til að verða fyrir
valinu. Annar er Mitt Romney,
sem hefur stutt McCain af alefli
síðan hann sjálfur hætti að sækj-
ast eftir að verða forsetaefni Rep-
úblikanaflokksins, en hinn er
Charlie Christ, ríkisstjóri í Flórída
og náinn vinur McCains.
gudsteinn@frettabladid.is
McCain kemst varla
að í fjölmiðlum
Vangaveltur um hugsanlegt varaforsetaefni Johns McCain hafa einna helst
komið honum í fjölmiðla nú í vikunni. Ferðalög demókratans Baracks Obama
um heiminn hafa náð allri athygli fjölmiðla og aðdáendur hans bíða í röðum.
HLÁTURMILDUR Á FUNDI Í OHIO Bandarískir fjölmiðlar telja sumir stutt í að John
McCain skýri frá vali sínu á varaforsetaefni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
Helsinki
Eindhofen
Amsterdam
London
Berlín
Frankfurt
Friedrichshafen
París
Basel
Barcelona
Alicante
Algarve
Tenerife
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
25°
27°
30°
26°
26°
26°
29°
29°
26°
31°
28°
25°
28°
26°
28°
32°
28°
21°
14
15
17
20
Á MORGUN
8-13 m/s allra syðst ann-
ars hægari. Fer að rigna
sunnan til um kvöldið.
MÁNUDAGUR
3-8 m/s.
20
15
18
20
20
20
16
14
17
4
5
3
3
3
2
6
6
6
8
10
16
15
18
15
20
20
22 16 20
20
15
20
20
22
HITI 25 STIG
Í gær fór hitinn í 25
stig á Þingvöllum og
víða í 24 stig, þar á
meðal í Reykjavík.
Sé horft til næstu
daga eru horfur á
að framhald verði á
þessum hlýindum,
einkum þó til lands-
ins á norðanverðu
landinu en einnig
er að sjá að hitinn
nái upp undir 20
stig sunnan til og
vestan.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
KÝPUR, AP Leiðtogar Grikkja og
Tyrkja á Kýpur hafa ákveðið að
hefja viðræður um sameiningu 3.
september næstkomandi.
Dimitris Christofias forseti,
sem er grískur, og Mehmet Ali
Talat, leiðtogi Kýpur-Tyrkja, tóku
þessa ákvörðun í gær.
Friðarviðræður hafa legið niðri
í fjögur ár, eða allt síðan Kýpur-
Grikkir höfnuðu sameiningartil-
lögu frá Sameinuðu þjóðunum,
sem Kýpur-Tyrkir féllust þó á.
Kýpur hefur verið klofin í tvo
hluta síðan 1974, þegar Tyrkir á
norðurhluta eyjunnar sögðu skilið
við gríska hlutann eftir að
Grikkir höfðu reynt að knýja
fram sameiningu við Grikkland.
- gb
Grikkir og Tyrkir á Kýpur:
Kýpurviðræður
hefjast í haust
LEIÐTOGAR SPJALLA Dimitris Christofias
og Mehmet Ali Talat. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRETLAND, AP
Breskur
dómstóll dæmdi
í gær dagblaðið
News of the
World til að
greiða Max
Mosley, forseta
Alþjóðabif-
reiðasambands-
ins, sem sér um
Formúlu 1
keppnina, tæpar tíu milljónir
króna í skaðabætur og rúmlega
hundrað og fimmtíu milljóna
króna lögfræðikostnað.
Blaðið birti frásagnir og
myndir af „sadó-masókískum“
kynlífsathöfnum Mosleys með
fimm vændiskonum.
Dómarinn taldi frásögnina ekki
eiga erindi til almennings og
brjóta á friðhelgi einkalífs
Mosleys. - gh
News of the World dæmt:
Mosley bætt
kynlífsfrásögn
MAX MOSLEY
ÍSRAEL, AP Skipulagsnefnd í Ísrael
hefur samþykkt að reist verði ný
byggð handa landtökumönnum á
Vesturbakkanum. Enn þarf þó
samþykki frá Ehud Barak
varnarmálaráðherra og endan-
lega staðfestingu frá Ehud
Olmert forsætisráðherra.
Ban Ki-moon, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna,
sagðist hafa áhyggjur af málinu.
„Þetta eyðileggur tveggja ríkja
lausnina,“ sagði Saeb Erekat,
aðalsamningafulltrúi Palestínu-
manna, í viðræðum við Ísraela
um friðsamlega lausn á sambúð
Ísraela og Palestínumanna.
„Ég vona að Bandaríkjamenn
láti Ísraela ógilda þessa ákvörð-
un. Ég held að þeir geti látið
Ísraela gera það,“ sagði Erekat.
- gb
Ísraelsk stjórnvöld:
Heimila nýja
landtökubyggð