Fréttablaðið - 26.07.2008, Blaðsíða 30
● heimili&hönnun
Hjónin Erla Dögg Ingjaldsdóttir
og Tryggvi Þorsteinsson hafa rekið
arkitektastofuna Minarc í Los Ang-
eles við góðan orðstír síðustu tíu
ár. Þau eru nú að kynna nýja fram-
sækna tækni í byggingaframleiðslu
og ætla að setja fyrstu húsin, sem
kallast M3house, á markað næsta
haust. Þau hafa nú þegar hlotið um-
hverfisverðlaun viðskiptadeild-
ar Santa Monicu fyrir M3house
og Residential Architect Design
Award, ein virtustu verðlaun íbúð-
arhúsaarkitekta í Bandaríkjunum.
„Okkar hugmynd gengur út á
að skapa hús úr endurunnu efni,
sem jafnframt er endurnýtanlegt
eða lífrænt svo það brotni niður að
loknum líftíma húsanna. Við vilj-
um nýta það sem okkur er næst,
meðal annars með því að breyta og
nota þekkta hluti á nýjan hátt. Hug-
vitið byggist á gömlum íslenskum
hugsunarhætti sem er hverfandi.
Bandaríkjamenn eru löngu búnir
að gleyma honum. Hann gleymdist
með velmeguninni, svo nú er öllu
hent og rusl staflast upp,“ segir
Tryggvi. „Við vorum akkúrat út af
þessu á Discovery Channel í júní,“
segir Erla en hús þeirra hjóna var
sýnt í þættinum Renovation Na-
tion sem dæmi um umhverfisvæna
húsagerðarlist.
Markmiðið er að húsin verði
orkulega sjálfbær. „Hvert hús er
sérhannað eftir aðstæðum þannig
að öll orka sem fellur til, svo sem
jarðhiti, sólar- og vindorka, er nýtt.
Við erum búin að gera orkupróf á
einu húsanna og 85 prósent af orku
þess var sjálfbær,“ segir Tryggvi.
Fleira býr þó á bak við þessa
nýjung. „Það var tími til kominn
að gera stórvægilegar breyting-
ar á byggingaraðferðunum. Kröf-
urnar aukast stöðugt en iðnaður-
inn notast alltaf við sömu tækn-
ina. Því er stöðugt meiri hætta
á mistökum og kostnaðurinn við
húsin er orðinn gríðarlegur,“ segir
Tryggvi og bætir við að M3house
séu byggð á annan og mun kostn-
aðarminni máta. „Þetta eru hálf-
gerð „kit homes“ úr vönduðum
panel-einingum, sem eru samsettar
eins og legókubbar. Bæði er hægt
að setja húsin saman í verksmiðju
eða á staðnum svo ekki þarf að ótt-
ast veðurfar og auðvelt að fylgjast
vandlega með framleiðslunni. Þá
er líka hægt að taka húsin í sundur
eins auðveldlega og þau voru sett
saman,“ segir Erla.
Hjónunum hefur gengið vonum
framar frá því Minarc var stofnað.
Þau hafa hannað hús fyrir fjölda
fólks, meðal annars þekktar Holly-
wood-stjörnur en vilja ekki nafn-
greina viðskiptavini sína. „Við vilj-
um að fólk lesi um okkur til að það
átti sig betur á því hvað það geti
gert til að vera umhverfisvænt,
því almenningurinn er sterkasti
hlekkurinn í þessum málum,“ segir
Tryggvi en almenningur virðist
ekki skorta áhugann þar sem Min-
arc hafa borist fyrirspurnir eftir
M3house frá Kaliforníu, Suður-Am-
eríku, Mexíkó og Spáni, svo fátt eitt
sé nefnt. - mþþ
Orkulega sjálfbær
og endurvinnanleg
● Hjónin Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson, sem reka arkitektastofuna
Minarc í Los Angeles, eru að setja byltingarkennd hús á markað næsta haust.
Húsið þeirra Erlu og Tryggva. Þau eru með borðstofu með arineldi úti á verönd. MYNDIR/ÚR SAFNI MINARC
Erla og Tryggvi hafa rekið arkitektastof-
una Minarc í tíu ár.
„Hugmynd okkar er að húsið sé eins og
lifandi tré. Það er á staðnum í ákveðinn
tíma og nýtir þá orku sem þar er til stað-
ar og þegar það deyr þá skilur það eftir
sig fóður fyrir framtíðina,“ segir Tryggvi.
Teikning af M3house. Húsin eru gerð úr vönduðum panel-einingum sem auðvelt er
að setja saman og taka sundur aftur.
V erk og vinnustofa listamannsins Ólafs Elíassonar er í brennidepli í bókinni Studio Olafur Eliasson, An Encyclopedia, sem bókafor-
lagið Taschen gaf nýverið út.
Vinnustofa Ólafs, sem er í Berlín, þykir ekki síður athyglisverð en
verkin, fyrir þær sakir að vera meira í ætt við tilraunastofu sem stýrt er
af listamanninum sjálfum.
Bókin gerir lesendum kleift að skoða
verkin á vinnustofunni frá öllum sjón-
arhornum. Þá er helstu hugmyndum á
bak við verkin raðað niður eftir stafrófs-
röð þar sem Ólafur lýsir þeim í stuttu
máli.
Studio Olafur Eliasson, An Encyclop-
edia er fáanleg í öllum helstu bóka-
verslunum hérlendis. - mmf
Tilraunastofa í brennidepli
Verk eftir Ólaf Elíasson voru til sýnis í MoMa í New York í sumar.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
BYLGJAN BER AF
Samkvæmt könnun Capacent í aldurshópnum 18-54 ára á tímabilinu
1. janúar til 29. júní 2008. Hlutdeild - hlustun í mínútum á dag.
26. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR6