Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.07.2008, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 26.07.2008, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 26. júlí 2008 13 UMRÆÐAN Gunnar Einarsson skrifar um „frítt“ í strætó Nauðsynlegt er að efla almenn-ingssamgöngur á höfuðborgar- svæðinu. Það verður þó ekki gert með því að gefa öllum „frítt“ í strætó. Bæta þarf rekstrarstöðu Strætó bs. og efla þjónustu fyrir- tækisins til að laða að fleiri notend- ur. Ríki, sveitarfélög og notendur strætisvagna þurfa að leggja sitt af mörkum til að gera almennings- samgöngur að góðum valkosti á höfuðborgarsvæðinu. Með þessari grein er tilraun gerð til að fá mál- efnalega umræðu um almennings- samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, þátttöku ríkisins og rekstur Strætó bs. almennt. Þáttur ríkisins Í stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðis- flokks og Samfylkingar segir að ráðist verði í stórátak í samgöngu- málum. Aukin áhersla verði lögð á almenningssamgöngur og að ríkis- stjórnin muni beita sér sérstaklega fyrir úrbótum á samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins. Eins og staðan er nú hækka tekjur ríkisins af Strætó um leið og almennings- samgöngur á höfuðborgarsvæðinu eru styrktar. Tekjur ríkisins eru m.a. vegna bifreiðagjalda, virðis- aukaskatts og tryggingagjalda launa og ríkið leggur ekki til almenningssamgangna nema end- urgreiðslu á um 80% af olíugjaldi. Fram til þessa hefur ríkið verið áhugalaust um að taka þátt í efl- ingu almenningssamgangna. Við- kvæðið hefur verið að ekki sé um skylduverkefni ríkisins að ræða en reyndar eru almenningssamgöng- ur ekki skylduverkefni sveitarfé- laganna heldur ef út í það er farið. Hinsvegar hefur ríkið áhuga á að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda og liður í því gæti verið, í sam- ræmi við umhverfissjónarmið, að efla almenningssamgöngur. Í ágætri skýrslu starfshóps um efl- ingu almenningssamganga sveitar- félaga sem nú er til umfjöllunar í samgönguráðuneytinu er tíundað með hvaða hætti ríkið kemur að eflingu almenningssamgangna á Norðurlöndunum. Við þann yfir- lestur má greina verulegan mun á afstöðu og þátttöku ríkisstjórna á Norðurlöndum til styrktar almenn- ingssamgöngum í samanburði við Ísland. Í framangreindri skýrslu er einnig fjallað um þátttöku notenda á Norðurlöndum í rekstrarkostnaði og útboð á þjónustu, en yfirleitt er þjónustan boðin út. Á sama tíma og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð- inu eru að óska eftir aukinni þátt- töku ríkisins í rekstri er að sjálf- sögðu hjákátlegt að samþykkja í stjórn Strætó afsal af tekjum í formi verkefnisins „frítt“ í Strætó. „Frítt“ í strætó? Almenningssamgöngur þurfa að vera tíðar, fljótar, áreiðanlegar og þægilegar. Að mínu viti ráða þessir þættir mestu um hvort íbúar notar almenningssamgöngur, en ekki hvort þjónustan kostar t.d. 100 kr. á ferð fyrir aldurshópinn 6-18 ára líkt og núverandi gjaldskrá segir til um. Til að geta veitt góða þjónustu þurfa sveitarfélög, ríkið og notend- ur þjónustunnar að koma að borð- inu. Á Norðurlöndum er þátttaka notandans frá 30-70% af heildar- kostnaði við almenningsvagnakerf- ið. Sjaldgæft er að gefið sé „frítt“ í strætó, hinsvegar eru afslættir til einstakra aldurshópa og vegna ferðamagns. Það vekur athygli að hlutfall farþegatekna er mjög lágt hjá Strætó bs. miðað við aðrar borg- ir og nágrannalöndin samanber nefnda skýrslu. Fyrir utan ávinn- inginn af kostnaðarþátttöku not- andans til bættrar þjónustu er ávinningurinn einnig í formi virð- ingar fyrir þjónustunni og skýrra skilaboða til notenda um að gera kröfur um góða þjónustu. Sam- kvæmt úttekt sem Strætó lét gera fjölgaði farþegum úr hópi fram- halds- og háskólanema um 8-12% eftir að þeir fengu „frítt“ í strætó. Hvort sú aukning er eingöngu til- komin vegna þess að „frítt“ er í strætó er erfitt að meta. Aukinn rekstrarkostnaður einkabifreiða, umfjöllun og auglýsingar um ágæti notkunar strætó og fjölgun þeirra sem stunda nám á framhalds- stigi geta einnig útskýrt fjölgun farþega. Jafn- framt má í þessu sam- hengi benda á þá „hættu“ að færri nýti sér að hjóla eða ganga þegar þeir fá „frítt“ í strætó. Færa má rök fyrir því að allar aðgerðir gegn einkabif- reiðum auki notkun á almenningssamgöngum. Fulltrúi Garðabæjar í stjórn Strætó bs. sat hjá við afgreiðslu stjórnar á fram- haldi á verkefninu „frítt“ í strætó m.a. vegna þeirra raka sem koma fram hér að framan, en einnig til þess að vekja athygli á mjög erfiðri rekstrarstöðu Strætó bs. sem alls ekki má við skerð- ingu tekna af fargjöldum. Rekstur Strætó bs. Rekstur Strætó bs. er þungur. Á komandi árum má búast við að hann þyngist, m.a. vegna hærri rekstrarkostnaðar og auk- inna krafna um þjónustu. Á árinu 2007 var heildar- rekstrarkostnaður vegna reksturs Strætó bs. rétt rúmlega 3,0 milljarðar, en á móti koma tekjur af farmiðasölu um 670 milljónir. Framlög sveitarfélag- anna með rekstrinum námu því um 2,3 milljörðum króna. Reykjavík, sem dæmi, greiddi til reksturs Strætó bs. samkvæmt þessu tæp- lega 1,7 milljarða króna árið 2007. Ef heldur sem horfir í rekstri Strætó bs. mun heildarrekstrar- kostnaður verða um 5 milljarðar innan fárra ára og ef allir ættu að fá „frítt“ þýðir það að Reykjavík þarf að borga um 3,2 milljarða árlega samkvæmt skiptareglu til reksturs Strætó bs. Kópavogur hefur tekið ákvörðun um að veita sínum íbúum öllum „frítt“ í strætó frá og með hausti. Einnig hefur núverandi borgarstjóri Reykjavík- ur lýst sinni framtíðarsýn í þá átt að allir Reykvíkingar fái „frítt“ í strætó fyrir lok kjörtímabilsins. Þessi sveitarfélög þurfa að kaupa farmiða samkvæmt gildandi gjald- skrá Strætó bs. fyrir sína íbúa þegar að þessari framkvæmd kemur, að öllu óbreyttu. Efling almenningssamgangna Til að efla almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu þarf margvís- legar aðgerðir sem ríki, sveitarfé- lög og notendur þurfa að koma að. Auka þarf forgang strætó í umferð- inni, fjölga göngu- og hjólastígum, auðvelda tengingar milli bæjarfé- laga og auka upplýsingaflæði til íbúa um leiðir og ávinning af notk- un almenningssamgangna. Nauð- synlegt er að bæta rekstrarum- hverfi Strætó bs. þannig að hægt verði að bjóða tíðar ferðir í þægi- legum og öruggum vögnum. Þjón- usta verður ekki bætt nema til komi aukinn stuðningur ríkisins, notend- ur greiði sanngjarnt farmiðagjald og að allur rekstur verði boðinn út. Höfundur er bæjarstjóri Garðabæjar. Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu GUNNAR EINARSSON Í Gestastofu gefst þér kostur á að skoða sýningu í máli og myndum um byggingu Tónlistar- og ráðstefnu- hússins og skipulag Austurhafnarsvæðisins. Innsýn er gefin í söguna á bak við hönnunar- og byggingarferlið, einnig geta gestir kynnt sér fjöl- breytta notkunarmöguleika hússins og væntan- lega starfsemi sem í því verður. Til sýnis eru líkön af húsinu, glerhjúpnum og heildar- skipulaginu. Stórglæsilegur 10 metra útsýnis gluggi gefur gestum kost á að virða fyrir sér framkvæmda- svæðið og nánasta umhverfi þess. GESTASTOFA TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚSSINS Gestastofa á Lækjartorgi er öllum opin alla daga vikunnar – Velkomin aftur og aftur. VELKOMIN Í GESTASTOFU VIÐ LÆKJARTORG OPIÐ: VIRKA DAGA 10:00 - 17:00 UM HELGAR 13:00 - 17:00

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.