Fréttablaðið - 26.07.2008, Qupperneq 26
„Uppáhaldsstaðurinn minn á heim-
ilinu er svefnherbergið og þá eink-
um rúmið. Ég eyði reyndar mjög
miklum tíma í því núna þar sem
ég á von á fjórða barni mínu og
við erum með skjávarpa og bíó-
tjald í svefnherberginu þannig að
þetta er helsti griðastaður heimilis-
ins,“ segir Helga Sæunn Árnadóttir,
förðunar- og naglafræðingur.
Svefnherbergið hjá Helgu Sæ-
unni er í raun samkomustaður fjöl-
skyldunnar þar sem börnum henn-
ar finnst gott að stinga sér þangað.
„Sá yngsti sefur reyndar enn hjá
okkur en stelpurnar sem eru sex og
tólf ára kíkja stundum líka,“ segir
hún brosandi. „Rúmið okkar er ekki
heilagt heldur er þetta allt saman
mjög frjálslegt.“
Rúmið góða er rafmagnsrúm
með Tempur-dýnum og fékkst í
í versluninni Betra bak. Að sögn
Helgu Sæunnar er það einstaklega
þægilegt og hefur hún átt það í þrjú
ár. „Það er ótrúlega gott að liggja í
því og maður hvílist vel eftir vinnu-
daginn.“
Helga Sæunn, sem hefur starf-
að við förðun síðan 1992 og neglur
frá því 1994, á og rekur Snyrtivöru-
verslunina Andorra við Strandgötu
í Hafnarfirði. „Þessi verslun hefur
verið hér í fjörutíu ár, ég keypti
hana fyrir ári síðan og er hér með
naglastúdíóið mitt og verslun með
snyrtivörur eins og Biotherme,
Lancôme og Dior.“
Þrátt fyrir að vera Hafnfirðing-
ur í húð og hár mun hún þó vænt-
anlega flytja í Kópavog á næstunni.
„Við erum að byggja stórt einbýlis-
hús þar þannig að í nógu er að snú-
ast. Okkur er þó enn alltaf að snú-
ast hugur og langar stundum bara
að selja nýja húsið og búa áfram í
Hafnarfirðinum, en við sjáum hvað
setur,“ segir Helga Sæunn sem
kann auðheyrilega vel að meta bæj-
arstemninguna í Hafnarfirði. - hs
● Forsíðumynd: Mynd úr safni arkitektastofunnar
Minarc Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105
Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvindsson
roald@frettabladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@
frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s.
517 5439 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
Helga Sæunn nýtur samverustunda fjölskyldunnar í hjónarúminu en í herberginu
er einnig stærðarinnar kvikmyndatjald. Með henni á myndinni eru dóttirin Kamilla
Ívarsdóttir, sex ára, og sonurinn Árni Jón Ívarsson, tveggja ára. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Rúmgóður griðastaður
● Helga Sæunn Árnadóttir heldur mikið upp á rúmið sitt sem auk þess að vera einstaklega
þægilegt er líka samkomustaður fjölskyldunnar.
Þ
egar ég flutti inn í litlu sætu íbúðina mína fyrir rúmum fjórum
árum, var ég mjög heppin með hversu smekklegir fyrri eigend-
ur höfðu verið í litavali á veggi. Svo smekklegir voru þeir að ég
sá enga ástæðu til að mála, enda tónaði grágræni liturinn vel við
hvítlakkaða glugga- og dyrakarma.
Með tímanum komu hins vegar rákir á veggina eftir húsgögn og
myndir sem höfðu verið færðar til og göt eftir ónotaða nagla. Svo fór
mig líka að langa að skipta um lit. Lengi hugleiddi ég hvaða lit ég vildi
og þegar kvikmynd ársins kom í bíó, Sex and the City, fannst mér til-
valinn blágræni liturinn sem hún Carrie vinkona mín valdi þegar hún
gerði upp íbúðina sína. Þegar Mamma Mía kom svo í bíó fékk ég stað-
festingu á því að hinn suðræni blái litur væri alveg ég.
Næsta skref var að arka út í næstu málningarvöruverslun og finna
rétta litinn. Ég gerði það og gekk út með þrjár prufur af mismunandi
bíómyndabláum og einn pensil. Það tók mig ekki langan tíma að finna
rétta litinn og þar sem slatti var af málningu í prufudósinni byrjaði
ég bara að mála með penslinum mínum. Það var alveg með ólíkindum
hvað prufudósin dugði langt. Ég náði að mála tvær umferðir á tvo litla
veggi í stofunni. Vinstri öxlin á mér var reyndar ekki alveg í lagi eftir
að ég hafði hamast með pensilinn í tvo daga, en svo lukkuleg var ég
með þessa óvæntu sparnaðarleið að ég ákvað að kaupa nokkra prufu-
dósir í viðbót og redda þessu þannig á spottprís.
Mikið hlógu málararnir að mér þegar ég sló um mig með þess-
um snilldarlausnum í málningarvöruversluninni. Þeir bentu mér á að
prufumálningin væri ekki með sama glansstigi og alvöru málningin og
að ef ég ætlaði mér að mála alla stofuna með pensli væri mikil hætta á
að för kæmu á veggina. Þetta þýddi að ég þurfti að mála allt upp á nýtt
og sniðugu sparnaðaráformin mín voru úr sögunni.
Hundsvekkt kom ég heim með allar réttu græjurnar, stóra fötu af
málningu með réttum glans, tvær stærðir af rúllum, málningarbakka
og fullt af límbandi til að afmarka allt sem ekki á að verða suðrænt og
blátt. Og nú er bara að byrja … aftur!
Bíómyndablár á veggina
HEIMILISHALD
KLARA KRISTÍN ARNDAL
● ELDHÚSÁHÖLD ÚR SILÍKONI Silíkonæði hefur gripið um sig í
Kokku og er þar nú hægt að fá ýmis eldhúsáhöld úr efninu. Silíkonið þolir
háan hita svo hægt er að setja það í ofn, örbylgjuofn og uppþvottavélina.
Sem dæmi má nefna silíkonpottaleppa sem halda öllum hita frá höndun-
um. Algengt er að óhreinka pottaleppa við notkun og þá kemur sér vel
að geta skellt þeim beint í uppþvottavélina.
● heimili&hönnun 26. JÚLÍ 2008 LAUGARDAGUR2