Fréttablaðið - 26.07.2008, Síða 44
24 26. júlí 2008 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Jökulsárhlaup verður haldið í fimmta
sinn í dag en hlaupið er með vinsæl-
ustu víðavangshlaupum landsins.
Hlaupið er um stórbrotið landslag
Þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum og
liggur leiðin um margar af helstu nátt-
úruperlum landsins.
„Þetta eru þrjár vegalengdir en að-
alhlaupið er frá Dettifossi og norð-
ur í Ásbyrgi en það er um 33 kíló-
metra vegalengd. Síðan er hægt að
hlaupa frá Hólmatungu að Ásbyrgi
sem er 21,2 kílómetrar og frá Vestur-
dal að Ásbyrgi sem er 13,2 kílómetr-
ar,“ segir Þorsteinn Hymer, aðstoðar-
maður þjóðgarðsvarðar í Vatnajökuls-
þjóðgarði.
Sama leið hefur verið hlaupin frá
upphafi. „Þetta fór rólega af stað og í
upphafi stóð Kelduneshreppur á bak
við þetta en nú er hópur fólks sem
stendur á bak við hlaupið og hefur gert
undanfarin ár. Sex manna nefnd sér
um hlaupið og síðan hafa ýmsir styrkt-
araðilar komið til liðs við okkur,“ út-
skýrir Þorsteinn áhugasamur.
Má þar nefna Saga Capital Fjárfest-
ingarbanka, 66°Norður og Bókafor-
lagið Opnu. Hlaupið hefur einnig undið
upp á sig í gegnum árin er kemur að
fjölda þátttakenda og nú er svo komið
að biðlisti hefur myndast.
„Þetta verður stöðugt stærra og viða-
meira hjá okkur. Nú erum við komin
með langa biðlista auk þess sem hlaup-
inn er hringur og við erum í vandræð-
um með að útvega rútur til þess að
flytja hlauparana að rásmarki, enda
háannatími núna,“ segir Þorsteinn og
bætir við brosandi: „Við eigum nú erf-
itt með að segja nei en verðum því
miður að draga mörkin þar sem flutn-
ingsmátinn takmarkar okkur.“
Metskráning er þetta árið en um
hundrað og sextíu hafa skráð sig til
leiks og fleiri eru á biðlista. „Þetta
hlaup sameinar góða hreyfingu og
stórkostlegt umhverfi sem hlaupið er
í. Lagt er af stað við Dettifoss sem er
einn aflmesti foss Evrópu og þaðan
er hlaupið um sanda og auðnir uns
komið er í fallega gróðurvin í Hólma-
tungum þar sem spretta fram tærar
bergvatnsár undan klöppunum. Svo
halda menn áfram og koma þá niður
í Hljóðaklettasvæðið og enda með því
að hlaupa niður í Ásbyrgi og fá á leið-
inni stórkostlegt útsýni yfir Ásbyrgi,“
segir Þorsteinn heillaður.
Hlaupið endar svo yst við Ásbyrgi
en markið er við gestastofu þjóðgarðs-
ins.
Allir þátttakendur fá verðlaunapen-
ing fyrir þátttöku en sigurvegararnir
fá stærri verðlaunagrip og nafn þeirra
verður áletrað á átta tonna bjarg sem
stendur fyrir utan gestastofu þjóð-
garðsins. „Sigurvegararnir fá einn-
ig bók um Jökulsárgljúfur sem Bóka-
forlagið Opna gefur út og 66°Norður
gefur hlaupafatnað úr nýrri línu sem
þeir eru að fara af stað með,“ segir
Þorsteinn.
Sumir hlauparanna hafa verið með
frá byrjun en að sögn Þorsteins eru
alltaf nýir að bætast í hópinn. „Svo
skemmir veðurspáin ekki fyrir og
sumir hlauparanna eru nú þegar mætt-
ir á tjaldstæðið og ætla að vera hér í
útilegu fram yfir hlaup.“
hrefna@frettabladid.is
ÞORSTEINN HYMER ÞJÓÐGARÐSVÖRÐUR: JÖKULSÁRHLAUP Í FIMMTA SINN
Sameinar útivist og hreyfingu
HLAUPIÐ Í STÓRBROTINNI NÁTTÚRU Þorsteinn Hymer er einn af skipuleggjendum Jökulsárhlaupsins þetta árið. MYND/SNÆDÍS LAUFEY BJARNADÓTTIR
MERKISATBURÐIR
1953 Brúin yfir Jökulsá á Lóni
er vígð og var þá næst-
lengsta brú landsins.
1959 Eyjólfur Jónsson synd-
ir úr Kjalarnestanga til
Reykjavíkur. Vegalengd-
in er um tíu kílómetrar og
tók sundið fjóra og hálfa
klukkustund.
1965 Maldíveyjar öðlast sjálf-
stæði.
1983 Einar Vilhjálmsson setur
Íslandsmet í spjótkasti,
90,66 metra, þegar hann
sigrar á úrvalsmóti Norð-
urlanda og Bandaríkj-
anna.
1992 Teygjustökk er reynt í
fyrsta sinn opinberlega á
Íslandi í tilefni af fimm ára
afmæli Hard Rock Café í
Reykjavík.
Það var á þessum
degi fyrir sjötíu
og tveimur árum
að Pétur Eiríks-
son synti Grettis-
sund frá Drang-
ey til lands. Þá
var hann aðeins
nítján ára gam-
all en tíu árum
áður gekk hann
við hækjur. Níu
árum áður hafði
Erlingur Pálsson,
yfirlögregluþjónn
og stofnandi Sundsambands Íslands, synt úr
Drangey til lands á fjórum klukkustundum og
tuttugu og fimm mínútum en talið er að Er-
lingur hafi verið fyrstur til að synda þessa leið
síðan Grettir Ás-
mundarson gerði
það árið 1030.
Árið 1998 þreytti
Kristinn Magn-
ússon sundgarp-
ur Grettissund
og varð þar með
fimmti maðurinn
til að ljúka Grett-
issundi. Kristinn
bætti eldra metið
í Grettissundi en
hann synti skrið-
sund alla leiðina
og fór vegalengdina á 2,10 klukkustundum.
Grettissund er synt frá Uppgönguvík í Drang-
ey.
Grettissund er 7,5 km.
ÞETTA GERÐIST: 26. JÚLÍ 1936
Grettissund frá Drangey til lands
KATE BECKINSALE LEIKKONA
FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1973.
„Eftir að ég varð móðir varð ég
öll viðkvæmari og varð betri
leikkona fyrir vikið.“
Kate Beckinsale er dóttir leikkon-
unnar Judy Loe og breska leikar-
ans Richard Beckinsale. Hún hefur
átt mikilli velgengni að fagna í
kvikmyndum og hefur unnið til
ýmissa verðlauna.
Ketilás í Fljótunum er fornfrægur ballstaður. Áður fyrr
skemmtu Sigl-, Ólafs- og Skagfirðingar, auk nærsveitunga,
sér konunglega á böllum þar, einkum er Stormar spiluðu
fyrir dansi.
Nú á að endurtaka leikinn laugardagskvöldið 26. júlí og
endurupplifa hippastemninguna.
Húsið er opnað kl. 21.30 og Stormar stíga á svið fljót-
lega eftir það. Kvenfélagið verður með gos- og samloku-
sölu á staðnum en vilji gestir væta kverkarnar með söngol-
íu verða þeir að koma með hana sjálfir.
Aðgangseyrir er 2.500 krónur og rennur allur ágóði til
hússjóðs Ketiláss til viðhalds. Ballgestir eru hvattir til að
mæta klæddir í anda tímabilsins.
Aldurstakmark er 47 ár og verða allir sem yngri eru að
koma í fylgd með fullorðnum. - tg
Hippaball um helgina í Ketilási
STORMAR Í KETILÁSI Á GULLALDARTÍMANUM Fyrir endurkomuna hafa
meðlimir bandsins, sjö talsins, verið í stífum æfingabúðum á Siglufirði
í viku. MYND/ÚR EINKASAFNI
90 ára afmæli
Kristján Reykdal,
leigubifreiðastjóri, ökukennari og
sunnudagaskólakennari til margra
ára, verður 90 ára þann 27. júlí. Hann
mun taka á móti ætting jum og vinum
á afmælisdaginn milli kl. 16 og 18 í
félagsmiðstöðinni að Árskógum 4,
Neðra-Breiðholti, 109 Reykjavík.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Gunnhildur
Guðmundsdóttir
Hvassaleiti 20, 103 Reykjavík,
sem lést laugardaginn 19. júlí síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 30. júlí kl. 15.00.
Guðmundur Sigurðsson Valgerður Marínósdóttir
María Sigurðardóttir Einar Loftsson
Áslaug Sigurðardóttir Sveinn Hannesson
Hrefna Sigurðardóttir Haukur Valdimarsson
Sigurður Sigurðarson
Ingibjörg Sigurðardóttir Bjarni S. Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
fósturmóðir, amma og langamma,
Lára Kristjana Hannesdóttir
lést að kvöldi miðvikudagsins 23. júlí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Aðalheiður Halldórsdóttir Valdimar Jónsson
Hannes Einar Halldórsson Kristín Valgerður Ólafsdóttir
Gunnar Sigurður Halldórsson Guðrún Ingvarsdóttir
Garðar Friðfinnsson Hulda Sigurðardóttir
Rut Friðfinnsdóttir Tómas Sigurðsson
Björk Friðfinnsdóttir Jón Óskar Hauksson
Viðar Már Friðfinnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Jóhann Guðmundsson
Erluási 38, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 24. júlí 2008.
Guðrún J. Guðlaugsdóttir
Jóna Laufey Jóhannsdóttir Ingvar Hreinsson
Inga Jóhannsdóttir Daði Bragason
Jóna Guðrún Jóhannsdóttir Þorgils E. Ámundason
Guðmundur Jóhannsson Guðrún Ágústa Unnsteinsdóttir
og barnabörn.